1.
kafli
Á
dögum Hákonar konungs Aðalsteinsfóstra bjó út á Íslandi í
Breiðafirði á bæ þeim er að Kvennabrekku heitir maður sá er
Steinn hét. Kona hans hét Þorgerður. Hún var Oddleifsdóttir,
systir Gests af Barðaströnd. Steinn var auðigur maður og hinn
besti bóndi og þá gamall mjög.
Son
áttu þau er Refur hét. Hann var mikill vexti á unga aldri,
vænn að yfirliti og ódællegur. Engi maður vissi afl hans. Hann
var eldsetinn og öngva hafði hann aðra iðn fyrir starfi en
veltast fyrir fótum mönnum er þar gengu. Mikið mein þótti þeim
hjónum á þessu, að þeirra son skyldi svo lítt vilja siðu nema
annarra manna. Hann var af flestum mönnum fífl kallaður.
Maður
er nefndur Þorbjörn, auðigur og ódæll og vígamaður mikill og
hinn mesti ójafnaðarmaður. Hann hafði búið í öllum
landsfjórðungum. Höfðingjar og öll alþýða höfðu þenna mann
brott gervan, hver úr sínum landsfjórðungi, fyrir sakir
ójafnaðar og vígaferlis. Öngan mann hafði hann fé bættan.
Rannveig hét kona hans. Hún var heimsk og harðráð og það var
kallað að Þorbjörn mundi hafa unnið nokkurum óhöppum færra ef
hún hefði hann eigi fram æstan. Þorbjörn hafði nú keypt land
það er að Sauðafelli heitir. Margir menn kvíddu mjög við komu
hans, þeir er áður höfðu spurt til Þorbjarnar.
Skammt
var á millum bæja þeirra Steins og Þorbjarnar og féll þar á
ein í millum sú er skildi lönd þeirra. En er Þorbjörn hafði
búið þar um stund þá tók fénaður hans að leggjast í land
Steins því að hann átti margt ganganda fjár.
Eitthvert
sinn kom Steinn að máli við Þorbjörn búa sinn og mælti:
"Þanninn er farið að þú hefir búið í grennd við mig tvo vetur
og hefir okkar verið í milli heldur vel en illa en þú ert
kallaður maður ekki vinsæll af alþýðu. Hefi eg önga raun af
þér haft né þinni eign allt hingað til. En nú leggst fé þitt í
engjar mínar og beitast þær. Nú vil eg að þú látir skipast við
mína umræðu og látir betur geyma fjárins en hér til hefir
verið. Kann og vera, þar sem eg er engi skröksmaður, að til
verði einnhver að trúa mínum orðum þeir er þig deili málum. Má
eg þá slíkt fram bera að eigi hefir þú mér sýnt ójafnað eða
mitt með röngu ágirnst."
Þorbjörn
kvað þann öngan verið hafa að jafnhógværlega og viturlega
hefði við hann um talað, lést það ætla ef fleiri hefðu svo um
talað það ábóta þætti vant, að hann mundi færri stökkivíg gert
hafa: "Skal og að vísu batna við þína umræðu."
Eftir
það skiljast þeir. Lætur Þorbjörn svo vel skipast við umræðu
Steins að fé hans gerir honum aldrei mein.
2 kafli
Nú
líða svo stundir þar til að Steinn tekur sótt. Hann lýsir yfir
því að hann mundi eigi fleiri sóttir taka og kvað sér þessa
mundu einhlíta til bana.
Hann
mælti þá við Þorgerði konu sína: "Það vildi eg að þú seldir
land þitt eftir dauða minn og færir vestur á Barðaströnd til
Gests bróður þíns. Segir mér svo hugur um að Þorbjörn muni
ekki rór í byggðinni við þig þó að vel haf fallið á með okkur.
Varir mig að honum þyki nú dælla land þitt til beitingar en þá
er eg var við."
Eftir
það andast Steinn.
Nú
nennir Þorgerður eigi að lóga landinu því að henni sýndist það
fagurt og að flestu gott. Og er eigi liðu langar stundir
versnaði fjárvarðveislan Þorbjarnar. Gengur nú fé hans í
engjum Þorgerðar nótt með degi. Svo gerist að þessu mikill
gangur að það bítur upp alla töðuna og var það tvo vetur að
búfénu varð frá að lóga fyrir heyleysi. Þorgerður ræddi oft um
við Þorbjörn að hann skyldi féið betur varðveita og stoðar það
ekki. Nú leitast hún um ef nokkurir vilji land hennar kaupa en
engi lést fús að sitja svo nær Þorbirni. Var því landið ekki
selt.
Þess
er við getið að sá maður var þar í héruðum er Barði hét, manna
minnstur. Hann var kallaður Barði hinn litli. Allra manna var
hann frástur og ekki hljóp hann minna en hinn besti hestur.
Hann var skyggn og glöggþekkinn. Hann hafði fjárgeymslu á
sumrum. Hann var tryggur og trúr um alla hluti. Þenna mann
fann Þorgerður á vorþingi og spyr ef hann vilji ráðast til
hennar fjár að gæta, lést honum mundu kaup fá svo honum
hugnaði. Hún lýsti og því fyrir honum að hann mundi oftar
þurfa og ekki minnur að geyma fjár Þorbjarnar við misgöngum,
sagði honum ljúft og leitt hvað þar var til vanda garða á
millum.
Barði
svarar: "Ekki mundi eg heldur kjósa mig annarstaðar en með þér
að vera, þanninn sem þú segir þar frá. Vex mér það ekki í augu
að verja land þitt við beit annarra manna."
Fer
nú Barði heim með Þorgerði og tekur til fjárgæslu. Hann gerir
sér skála tvo, annan við fjall en annan á fitjum ár er þar
fellur í millum húsa. Hann hefir þar náttból einart og varðar
svo fé Þorbjarnar land Þorgerðar að það kemur aldrei yfir ána.
Stendur hann á bakkanum og ver þaðan fénu. Aldrei gengur hann
yfir ána.
3. kafli
Fé
Þorgerðar nytjast nú vel en hin fyrri sumurin hafði það eyfit
gert.
Rannveigu
húsfreyju þótti verða sumarfang lítið með sér. Hún talar einn
dag við Þorbjörn og spyr hvert fénu sé haldið. Hann sagði
ganga um daga með ánni.
"Hvort
gegnir það nokkru," sagði hún, "að sá maður sé með Þorgerði að
fé voru banni haga er það hefir haft þessi sumur? Eru þér þó
mislagðar hendur í kné Þorbjörn er þú hefir hlaupið í höfuð
þeim mönnum er saklausir hafa með öllu verið en þú lætur þenna
vitling ganga fram í slíkum ósóma að banna fé voru jörð þá er
það vill hafa."
"Hver
er sjá maður?" sagði Þorbjörn.
"Hann
heitir Barði," segir Rannveig, "og er manna minnstur og
vesallegastur og liggur hann úti hverja nótt og varðar fé voru
að koma yfir ána."
Eftir
það tekur Þorbjörn hest sinn og ríður yfir ána og þar kemur
hann sem Barði var við skála.
Þorbjörn
mælti þá: "Er það satt að þú varðar fé voru haga þessa og berð
það svo það þorir ekki að bíta í nánd ánni? Höfum vér að svo
gervu öngar nytjar fjárins."
Barði
svarar: "Ekki er það logið að eg læt aldrei þitt fé koma í
vora landeign en það er ekki satt að eg berji fé þitt eða
varði því sjálfs þíns land. Ætla eg yður nú hafa munu ekki
minna sumarfang en hin fyrri sumur. Hafið þér nú og betur að
komist."
Þorbjörn
mælti: "Líklegri þykir mér þú til óheimilt að hafa en eg, er
þú mátt kallast útilegumaður, ef illar verða heimtur í haust.
Nú vil eg að þú kveðjist þessa verks ella mun þér ekki hlýða."
Barði
svarar: "Svo hefi eg oftast fjárgæslur tekið að eg hefi haldið
vist minni og svo hefir enn verið."
Þorbjörn
höggur þá Barða banahögg og dregur hann síðan inn í skálann og
ríður síðan heim og sagði hvað í hafði gerst. Rannveigu þótti
þá vel um ráðið og lét þegar reka féið í land Þorgerðar.
Gengur féið heim í túnið og brýtur ofan sætið hennar og gerir
margt illt. Hún kemur út og sér nautin standa um allan
garðinn. Þóttist hún vita að illu mundi gegna, sendir til að
reka í burt fénaðinn, og finna Barða veginn í skálanum, sögðu
nú Þorgerði þessi tíðindi. Hún gengur þá inn í eldaskála og
sér Ref son sinn.
Hún
mælti þá: "Ávallt hrýs mér hugur við er eg sé þig, frændaskömm
þína, fyrir mínum augum og hve mikill ógæfumaður eg var þá er
eg ól þinn óvita. Væri þar betri dóttir. Mætti eg þá gefa hana
þeim manni er oss væri nokkuð traust að. En þótt landeign vor
sé beitt upp eða taða niður brotin eða menn drepnir þá liggur
lydda þín og lætur sem vér eigum ekki að annast."
Refur
rís þá upp og mælti: "Harðar munu að heyra þínar fleiri átölur
móðir er slíkar eru hinar fyrstu."
Hann
tekur ofan höggspjót mikið. Steinn hafði verið vopnamaður
mikill. Refur gengur nú úr garði og fer á þá leið að hann
skýtur spjótinu fyrir sig og hleypur þar eftir. Húskarlar
Þorbjarnar voru á verki og sjá fór Refs og kenna manninn og
gera að gys mikinn. Refur stefnir heim á bæ Þorbjarnar og er
hann kemur fyrir dyr sér hann ekki úti manna. Hann heyrði að
konur voru í stofu og töluðu um hvort Þorbjörn mundi vaknaður.
Þorbjörn hafði lagst niður að sofa. Refur brýtur neðan af
spjóti sínu, gengur inn síðan snúðigt og eftir skálagólfinu.
Þorbjörn heyrði til mannsins og spurði hver þar færi.
Refur
svarar: "Eg fer hér nú."
"Þú
hver?" kvað Þorbjörn."
"Maður
af öðrum bæ," segir Refur.
"Nafn
muntu þó eiga," sagði Þorbjörn.
"Eg
heiti Refur."
Og
í því snakar Refur í lokrekkjugólfið.
Þorbjörn
hafði kastað af sér klæðunum og mælti: "Allmjög förlast mér nú
er eg kenni þig ekki. Kom þú heill og vel Refur eða hvert er
erindi þitt hingað?"
Refur
mælti: "Mjög er það komið undir þér hvert það skal vera."
"Hverninn
er það?" segir Þorbjörn.
Refur
svarar: "Eg er kominn til þess að beiða bóta fyrir víg Barða
húskarls míns. Mun eg vera að lítilþægur og hafa það er þér er
minnst fyrir að láta en mér þó sæmd við að taka. Er mér það
sæmd að þú virðir þess orð mín þar þú hefir óríkan mann
drepið."
Þorbjörn
klæðist nú skjótt og mælti: "Vel er slíks leitað og má vera að
eg bæti nokkuru eða hitt ekki síður að hvorki bæti eg þenna né
neinn annan."
Refur
mælti: "Hitt er sæmilegra að þú látir fyrir verða nokkuð."
Þorbjörn
mælti: "Alls þú mælir svo vel til þá skal fyrir verða nokkuð."
Hann
var nú klæddur, þreifar nú niður með rekkjustokkinum og þrífur
þar upp hníf einn, mikinn einjárnung, og með brýni.
Þorbjörn
tók þá sverð í hönd sér og rétti þá hnífinn og brýnið að Ref
og mælti: "Deigan skal deigum bjóða."
Í
því leggur Refur spjótinu á Þorbjörn miðjan. Féll Þorbjörn á
bak aftur og gat ekki brugðið sverðinu. Var það og friðbent
enda bar bráðum að. Refur lauk þá aftur hurðina á lokrekkjunni
og snýr síðan til útidyra. Í því var lokið stofuhurðinni.
Mikill viðarköstur stóð fyrir karldyrum af rektrjám. Það ráð
tók Refur að hann hljóp í viðköstinn því að hann vissi að
húskarlar Þorbjarnar voru á leiðinni og þegar mundi vart við
verða ef hann færi heimleiðis. Konur höfðu heyrt mannamálið og
forvitnuðust til. Sáu þær þá renna blóð eftir gólfinu. Kölluðu
þær þá á húskarla og er þeir komu til sjá þeir Þorbjörn
veginn. Þeir leita Refs og finna hann eigi. Engi þóttist hann
séð hafa heim ganga. Um kveldið var hætt leitinni.
Gekk
Refur þá úr kestinum og heim. Hann vekur móður sína og bað
hana út ganga. Hún gerði svo. Og er þau komu út spurði hún
hvort Þorbjörn hefði nokkuru bætt víg Barða.
Refur
kvað:
Mér
bauð mætan fúrar
máskeiðs
í dag breiðan,
trautt
var það tækt í sættir,
týnir
hníf og brýni.
Orms
mærar hefi eg órum
unda
naðri úr mundum
hjarta
stíg á hneigi
hann
og vegið kannað.
"Seg
þú manna heilastur," sagði hún. "Tak þú nú hesta tvo hér hjá
garði og haf hingað til mín."
Var
þar lagður á söðull á annan en annar var búinn með töskur.
Voru þar í gripir góðir. Refur tók þá og góð klæði. Þótti hann
þá hinn víglegasti maður.
Þorgerður
mælti þá: "Maður heitir Grímur er þar býr skammt fram í dalinn
á landi okkru. Hann skal vera leiðtogi þinn. En eg sendi þig
vestur á Barðaströnd til Gests bróður míns. Vil eg að þú sért
þar til þess er sæst er á víg þetta."
4. kafli
Refur
fer nú leið sína og léttir eigi fyrr en hann kemur í Haga.
Fékk Refur þar góðar viðtökur. Og er þeir frændur tókust orðum
spyr Gestur ef hann segði nokkur tíðindi. Refur lést engi
segja.
"Veistu
þó nokkur?" sagði Gestur.
Refur
kvað það eigi örvænt og segir nú slík sem hann hafði um að
vera. Gestur sagðist að vísu skyldu halda hann og spurði ef
hann væri nokkur íþróttamaður. Refur kvað það fjarri fara.
Gestur
mælti: "Eg sé á þér að þú ert hinn mesti íþróttamaður að
nokkurum hlut en það mun eg sjá brátt hvað það er."
Refur
dvelst þar nú um hríð.
Eitt
sinn kemur Gestur að máli við Ref og mælti: "Nú veit eg íþrótt
þína. Þú ert þjóðsmiður ef þú vilt. Eg hefi að hugað er þú
hefir upp tekið reimunarkefli og hefir þú það hvorki telgt
vint né skakkt og eigi óslétt. Og það hefir fimlegast verið
sem þú hefir við leitað."
"Vera
má það," segir Refur, "því að eg hefi aldrei smíðað."
Gestur
segir: "Eg vil reyna það. Vil eg að þú gerir mér selabát."
Refur
mælti: "Fá þú mér svo efni til og smíðartól að það sé allt
meir en nógt því að það er margra manna háttur að þeir kenna
því um, ef eigi verður vel, að latlega sé til fengið. Eg vil
og að engi maður forvitnist þessa smíð því að það er mælt, ef
vel verður, að sá nokkur muni til hafa komið er mér muni kennt
hafa."
Gestur
lætur nú búa hróf eitt mikið og draga þangað viðu mikla. Knörr
einn hafði brotið á fjörum Gests. Hafði hann keypt upp
skipviðuna. Þessa alla viðu lætur Gestur færa til hrófs Refs
og svo sauminn allan. Gestur átti og járn ósmíðað og lést
Refur það vildu til sín taka, kveðst sjálfur vildu saum slá.
Smíðartól á alla vega lét Gestur þangað bera, svo afl og kol.
Þá
mælti Gestur: "Nú hefi eg svo alla hluti látið bera til hrófs
þíns að eigi mun fleiri þurfa þótt þar væri smíðaður byrðingur
sá er vel mætti fara á til annarra landa."
Refur
kvað hann ekki meira mega að gera hvern veg sem til tækist.
Nú
tekur Refur til smíðar. Hann rís upp snemma en kemur síð heim.
Þessu fer fram þrjá mánuði.
Það
var einn morgun að Gestur sendi trúnaðarmann sinn til
hrófsins, bað hann vita hvað líður um selabátinn, kvað þess
von að hann mundi ger þótt hann kynni alllítið að. Sá fór er
sendur var og kom þar svo að Refur varð ekki við var og hyggur
að smíðinni vandlega.
Fer
hann heim og segir Gesti að eigi mun oft sénn slíkur selabátur
"því að komið munu hafa út hingað til Íslands ekki stærri
skip."
Gestur
bað hann ekki til leggja.
Liðu
nú svo fram tveir mánuðir.
5. kafli
Það
var einn morgun að Gestur var á fætur kominn að hann sér að
Refur liggur í hvílu sinni.
Gestur
tekur á honum og mælti: "Lengi sefur þú nú frændi. Er nú ger
selabáturinn?"
"Kalla
má nú, segir Refur, "að borinn sé borði og ekki mun eg nú að
gera meira fyrr en þú sérð."
"Við
skulum þá ganga til í dag," segir Gestur, "og sjá smíði
þetta."
Gestur
gengur nú til hrófsins við fá menn því að hann vildi eigi að
alþýða vissi ef ófimlegt væri. Og er hann kom þar stóð þar
byrðingur einn vel haffærandi. Gestur hyggur vandlega að þessu
skipi og þykir mikils um vert hagleik hans þar sem hann hafði
eigi fyrr skip gert og þakkar honum nú smíðina: "Vil eg því nú
launa þér að eg vil þetta skip þér gefa."
Refur
kveðst gjarna þiggja vildu.
Spyrst
þetta nú víða að Refur Steinsson hafði gert byrðing
haffærandi. Þóttu það vera hér fáheyrð tíðindi því að hann var
kallaður af mörgum mannvitull. Sá atburður hafði orðið að með
föður hans hafði verið á vist norrænn maður og son hans. Voru
þeir jafngamlir, Austmannsson og Refur. Austmannsson hafði sér
að leiku skip það er verið hafði í Noregi sem líkast
haffæröndum byrðingum. En áður Austmannsson færi á brott gaf
hann Ref skip þetta og það hafði Refur haft til skemmtanar sér
í eldaskálanum að smíða þar eftir.
Nú
líður af veturinn og takast upp leikar.
Maður
er nefndur Gellir. Hann var farmaður mikill, var annan vetur í
Noregi en annan hér, hávaðamaður mikill og hélt mjög til
gleði. Móðir hans bjó skammt burt þaðan, þar sem hét í Hlíð.
Hún hét Sigríður, auðig mjög. Bóndi hennar var andaður og því
var Gellir kallaður Sigríðarson. Gellir gekk mjög að leikum og
var hann knástur af þeim sem að voru.
Það
var einn dag að Gellir fór til leiks við nokkura menn í Haga.
Gellir spurði ef Refur vildi fara með honum. Refur kvað sér
ekki henta leika og kveðst eigi mundu fara. Gellir spurði þá
ef Refur vildi leysast af og glíma við hann. Refur kveðst eigi
mundu það gera.
Gellir
hleypur þá af baki og ræður á Ref og mælti: "Heyr endemi að þú
segist eigi glíma ef eg vildi. Skaltu nú glíma nauðigur þóttú
viljir eigi."
Hann
leitar á marga vega að fella Ref og fær eigi felldan hann.
Refur forðast meðan Gellir sækir sem mest. En er Gellir linar
sókninni tekur Refur undir bróklindahaldið Gelli annarri hendi
en annarri í milli herðanna og skýtur honum á klakann stund þá
frá sér. Koma niður á Gelli olbogarnir og springur hvortveggi
en enni hans blánar. Hann spratt upp skjótt og hljóp á bak og
tekur upp spjót og reiðir upp spjótshalann og lýstur til Refs.
Kemur það á herðar honum og hrýtur af upp og kom í höfuðið.
Varð honum ekki illt við. Gellir hleypir á braut og förunautar
hans og hælast mjög. Kallast Gellir hafa lostið Ref tvö högg
mikil og reiðir þetta víða og segir Ref eigi munu hefna. Refur
lét sem hann vissi eigi. Gestur hafði eigi verið heima.
6. kafli
Eftir
jól bræðir Refur skip sitt og býr það. Gestur fær til allan
reiða. Þess er getið að Gellir átti heimanför og lá leið hans
hjá hrófinu og lítur Gellir á skipið. Maður einn fór með
honum. Refur heyrir að Gellir mun kominn vera, hleypur undan
skipinu með smíðaröxi sína og að Gelli.
Refur
mælti: "Nú skal eg gjalda þér tvö högg með einu."
Höggið
tók af síðuna og þar öxin inn á hol. Féll Gellir þar dauður á
jörð en förunautur hans reið á brott. Refur gekk heim og
fundust þeir Gestur.
Hann
mælti: "Giftusamlegur ertu nú frændi eða hvað er nú tíðinda?"
Refur
kvað:
Roðin
var randar gyðja,
ráð
knúðist dag þenna,
fýrsveigi
hjó eg frægan
Flóðs,
í Gellis blóði.
Nú
tel eg hefnt, en hrafni
heitr
fangaðist sveiti,
getið
verðr slíks fyr snotrum
seggjum,
höggs og tveggja.
"Manna
heilastur," segir Gestur. "Það mundi eg kjörið hafa, þá eg
heyrði það víðast borið að Gellir hefði lostið þig tvö högg,
að slíkt hefðir þú að. Eða hvað er nú ráða þinna?"
Refur
segir: "Eg ætla að halda skipi mínu til Grænlands."
Gestur
mælti: "Nú kaust þú það sem eg vildi því að þér mun ekki vel
fritt í Noregi þegar spyrst víg þetta. Nú mun eg afla þér
háseta til skipsins og fá þér fjárhlut sem þú vilt hafa en við
móðir þín munum síðan við skiptast sem okkur líkar."
Refur
býr nú skip sitt og veljast til bóndasynir vaskir að fylgja
honum. Leysir Gestur hann vel af höndum.
Og
að skilnaði mælti Gestur við Ref: "Ef þér verður eigi útkomu
auðið þá vil eg að þú látir skrifa frásögn um ferð þína því að
hún mun nokkurum merkileg þykja því að eg hygg að þú sért
annar spekingur mestur í vorri ætt. Mun og nokkuð gott af þér
verða. Mæli eg nú og svo fyrir að sá hinn sami er sólina hefir
skapað efli þig til góðra hluta."
Refur
þakkar Gesti vel sín tillög.
Nú
skiljast þeir og lætur Refur í haf. Þeim ferst vel þar til er
þeir fá sýn af Grænlandi og síðan velkir þá lengi og hefur þá
norður með landinu. Um síðir koma þeir á fjörð einn norðarlega
í óbyggð. Jöklar ganga allt til suðurs í sjá út. Og með því að
þeir voru hafvelktir þá voru þeir landfúsir. Þeir lögðust um
akkeri.
Refur
reri til lands og gekk hann upp á hið hæsta fjall að sjást um.
Hann sá að fjörðurinn skarst langt í land inn er þeir voru á
komnir og höfðar tveir gengu á víxl í firðinum. Fór hann þá
aftur til skips síns. Um morguninn bað hann þá flytja inn
skipið þar til er þryti fjörðinn og svo gerðu þeir. En er þeir
komu að höfðunum þá sáu þeir að þar hófst upp fjörður mikill
og langur. En er þeir komu að fjarðarbotni var þar góð höfn.
Skógi var vaxið allt um hlíðir og grænar brekkur. Jöklar girtu
þar um allt báðumegin. Þar var fjöldi dýra. Rekaviður lá þar
um allar fjörur en veiðiskapur nógur. Ekki mátti þá til byggða
halda. Þar gerðu þeir skála mikinn og bjuggust um vel. Þar
voru þeir um veturinn. Þar smíðaði Refur ferju mikla og bjuggu
hana um vorið til byggða en bjuggu þar eftir um kaupskipið.
Síðan
sigldu þeir í byggðina og komu í einn víkbarm. Skammt þar upp
frá stóð einn bær. Þar bjó sá maður er Björn hét. Hann var
kvongaður og átti eina dóttur er Helga hét. Hún var væn og kæn
og þótti sá kostur bestur í þeirri byggð. Refur selur ekki
varning sinn og tekst á hendur smíð. Björn hittir Ref og spyr
ef hann vill kaupast láta að húsa bæ sinn. Refur játar því og
síðan kaupast þeir við. Tekur Refur nú að húsa bæinn og gerir
skrautlegan. Sá bær heitir í Hlíð.
Öðrumegin
ness þess er þar gekk fram stóð bær sá er í Vík heitir. Þar
bjó sá maður er Þorgils hét og kallaður Víkarskalli. Hann var
grályndur og kvittsamur og slægvitur. Mikill ódældarmaður var
hann og þótti öllum illt við hann að eiga. Hann var hniginn á
efra aldur og kvongaður. Þengill hét son hans hinn elsti,
annar Ormur, þriðji Þorsteinn, fjórði Geir. Ólöf hét dóttir
hans. Hún var gift þeim manni er Gunnar hét. Þengill hafði
beðið Helgu og vildi hún eigi eiga hann.
Refur
er nú með Birni og húsar bæ hans og þá biður hann Helgu. Björn
tók því vel. Að ráði með honum var sá maður er Þormóður hét.
Hann var fóstri Helgu. Hann fýsti mjög að þessi ráð tækjust og
þar kom að Ref var heitið konunni og á kveðin brullaupsstefna.
Síðan takast þessi ráð með þeim skildaga að Refur skal taka
við búi í Hlíð og þau Helga en Björn vill vera búlaus á vist
með þeim.
Um
vorið eftir tekur Refur við búi og rakaði skjótt fé saman.
Hann smíðaði til stór fjár. Helga var og skörungur mikill. En
er þau höfðu skamma hríð ásamt verið fór Björn að deyja. Því
næst var þeim barna auðið, Ref og Helgu. Þau áttu son er
Steinn hét. Tveim vetrum síðar áttu þau annan er Björn hét.
Þeir bræður voru hinir efnilegustu menn.
Refur
bjó átta vetur á Grænlandi á sama bólstað. Á þeim vetri hafði
hann skip í smíð, mikla ferju, en hrófið var út við nes það er
fram gekk milli Víkur og Hlíðar. Hann gekk snemma til en síð
frá. Hann læsti þar í hrófinu smíðaröxi sína um nætur en gekk
slyppur heim.
7. kafli
Það
var einn aftan er hann gekk svo búinn heim sem hann var vanur.
Refur gat að líta fram á nesið hvar hvítabjörn var. Björninn
skundar nú sinni ferð er hann sá einn mann. Refur þykist þá
óvarlega farið hafa. Nýsnævi var á jörðu og auðsæ spor hvert
sem rekja skyldi. Refur sá ekki efni sín á að ganga á mót
birninum vopnlaus. Snýr hann nú aftur til hrófsins og tók
öxina, læsir síðan hrófinu, snýr nú þangað sem björninn hafði
verið og var hann þá dauður. Höfðu þeir bræður synir Þorgils
sigrað björninn er þeir höfðu gengið frá róðri. Refur gekk þá
heim.
Þar
er nú til máls að taka að þeir Þorgilssynir koma heim. Faðir
þeirra spurði hvað þeir hefðu fiskt. Þeir létust ekki fiskt
hafa "en veitt höfum vér hvítabjörn einn."
Þorgils
mælti: "Mikið er um uppheldi yðvart er þér veitið búi voru og
munu fáir svo fyrir vinna."
Þengill
mælti: "Búið var við að vér mundum lítið fá af veiðiskap
þessum ef ekki hefði Refur hinn ragi sýnt sinn drengskap. Hygg
eg það að aldrei hafi dáðlausara höfuð komið til Grænlands en
hann ber því að mannsspor liggja frá hrófinu og hafði horfið
aftur og var hland drifið í sporunum."
Þengill
mælti þá við Ref mörgum áþéttisorðum. Þorgils faðir hans
þagði. Þengill spurði því hann þegði "eða veistu ekki faðir
hver Refur hinn ragi er?"
Þorgils
mælti: "Um slíkt er illt að ræða og ávallt mætti Grænland
rauða kinn bera er það heyrði Refs getið því að eg sá þegar
hann var hingað nýkominn að öfluð hafði verið áður Grænlandi
hin mesta skömm. Því hefi eg fátt við hann átt að þá er eg var
á Íslandi var hann ekki í æði sem aðrir karlar heldur var hann
kona hina níundu hverju nótt og þurfti þá karlmanns og var
hann því kallaður Refur hinn ragi og gengu ávallt sögur af
hans fádæmum endemlegar. Nú vildi eg því að þér ættuð ekki við
hann."
Nú
skilja þeir sitt tal. Er nú farið eftir bjarnarslátrinu. En
hvar sem þeir Þorgilssynir komu þá bera þeir upp þetta illmæli
og kveikja það í öllu að Refur hafi fyrir regi sakir ger verið
af Íslandi og verið í burt keyptur nokkuru fé. Þeir færðu
þetta hróp á vöxtu og svo fer þetta í fjölmæli að Refur verður
þessa áheyrsla. Ekki lætur hann sem hann viti. En skip það sem
hann hefir í smíð býr hann að öllu sem best. Hann lætur
slátrast mjög um haustið en sumt fé sitt selur hann til
grænlensks varnings. Refur hefir haustboð mikið og býður til
sín vinum sínum en í hljóði seldi hann land sitt við lausafé.
Hann skilur og það til að hann skal þá á misserum land laust
láta og gera hinum orð um. Hann hefir með sér margt röskra
manna, ekki færri en tólf. Refur var orðinn stórauðigur. Þetta
var að tvímánuði.
8. kafli
Það
var einn dag að Þormóður kom að máli við Ref og mælti svo:
"Illan orðróm hefir nær alþýða manns um þig og eru að því
upphafsmenn Þorgils og synir hans. En þá er eg fýsti að ráð
tækjust með ykkur Helgu hugðumst vér gifta hana dugandi dreng
og svo ætla eg þig. En of mjög þykir mér þú sanna vondra manna
orð er þú lætur þá um kyrrt sitja. Nú bið eg þig að þú látir
þá kenna á sjálfum sér fyrir sín illyrði."
Refur
svarar: "Fyrr skyldi maður hafa hugað ráð nokkuð fyrir sjálfum
sér en rata í stórræði eða eggja aðra til."
Nú
skilja þeir sitt tal og sest Refur nú til smíðar og gerir eitt
fádæma mikið spjót. Með því mátti bæði högga og leggja. Hann
skeftir það lágu skafti og vefur allt járni. Því næst hvetur
hann það svo það stóð á kampi.
Þessu
næst að áliðnum degi gengur Refur heiman einn saman. Hann
hefir spjót eitt vopna. Hann gengur í Vík. Hann kom þar síð
dags. Þorgils var að soðningu í eldahúsi. Refur snýr þangað.
Þorgils spurði hver þar færi. Refur segir til sín.
Þorgils
mælti: "Mjög leggur reyk í augu mér er eg kenni þig ekki og
kom þú heill og vel."
Refur
svarar: "Það vil eg þiggja."
Þorgils
mælti: "Hvað er að erindum?"
Refur
svarar: "Eg er kominn að beiða bóta fyrir illmæli það er þér
hafið til mín haft."
Þorgils
mælti: "Nær höfum vér illa til þín talað eða hvert er það mál
er þú kennir oss?"
Refur
sagði þá fram orðin.
Þorgils
mælti þá: "Ekki dyl eg þess að vér mælum margt í gamni en þó
mun þetta ekki logið því að eg ætla hér hvert orð satt í
vera."
Refur
höggur þá til hans með spjótinu og klýfur hann í herðar niður.
Síðan kippir hann í brott spjótinu og gengur þá ofan til
strandar og sest í naust þeirra bræðra, Þorgilssona.
Niðamyrkur gerði á mikið. Því næst heyrir hann áraglamm. Og er
þeir bræður koma að landi hleypur Þengill fyrir borð, gengur
upp og vill sækja hlunna í naustið. Og er hann kom þar hjó
Refur höfuð af honum. Þorsteinn hljóp þá utanborðs og veit
ekki til þessa því að svo var myrkt að ekki sá til naustsins.
Þorsteinn tekur árar og ber upp. Og er hann kom að
naustdyrunum leggur Refur spjótinu í gegnum hann.
Þorsteinn
kallar í því og mælti: "Forðið ykkur sveinar. Þengill bróðir
ykkar er drepinn en eg er lagður í gegnum."
Ormur
greip árar úr öðru skipi og hratt út með skipinu. Reru þeir á
brott og þangað um nesið sem hróf Refs stóð, lögðu þar að
landi og ætluðu Ref ekki mundu þangað leita þeirra. En er þeir
höfðu upp brýnt skipinu þá kom Refur þar og drap þá báða.
Eftir
það gekk Refur heim og heitir á menn sína að til skips skyldi
flytja bæði vistir og fjárhlut. Refur lætur nú verða hlaðna
ferjuna. Stenst þá á endum að þá er ljós dagur um morguninn,
er þá og á skip kominn allur sá fjárhlutur er Refur vildi með
sér hafa. Hann velur þá gjafir þeim hinum ungum mönnum er með
honum höfðu verið og bað þá vera til reiðu sér að fylgja er
hann léti vitja þeirra, nær sem það væri. Þeir játa því
gjarna. Refur sendir þá orð með þeim að þeir tækju þá landið
er keypt höfðu.
Refur
gengur þá á ferjuna og kona hans og synir hans. Steinn var þá
níu vetra en Björn sjö vetra. Þormóður hét hinn þriðji og var
sá þrevetur. Þormóður fóstri Helgu skyldi og fara. Kom vindur
af landi og undu þeir Refur segl upp, létu svo ganga um daginn
til hafs.
Eru
þau nú fyrst úr sögunni.
9. kafli
Þar
er nú fyrst til að taka er heimamenn styrma yfir Þorgilsi er
hann er veginn. Og um kveldið er farið til strandar og fundust
þeir þar vegnir, Þengill og Þorsteinn, en hina tvo fundu þeir
vegna um morguninn. Þessi tíðindi spyrjast nú víða og harma
fáir Þorgils né sonu hans. En mikið þykir verkið orðið hafa
eins manns og á einu aftankveldi og þykir Refur óslælega rekið
hafa illmælið.
Gunnar
mágur Þorgils spyr nú þessi tíðindi og lætur hann setja vörðu
á hvert annes um byggðir báðar ef Ref kynni nokkur að að bera
um haustið. En eignir mátti ekki upp taka er allar voru
seldar. Gunnar var fyrir mönnum í Vestribyggð. Hvergi spyrst
til Refs. Um vorið sendir Gunnar menn norður í óbyggðir að
leita Refs og finnst hann ekki og engi maður spyr til hans.
Gunnar leggur nú á það hug að Refur muni látist hafa er hann
hafði á skip gengið með sex einum mönnum og þó öllum
óknálegum. Nú líða svo fjórir vetur og spyrst hvergi til Refs
og leggst nú niður þessi umgröftur um Ref. Þykjast menn nú
vita að hann mun týnst hafa eða rekið skip hans til óbyggða.
Munum
vér hér fyrst hverfa frá.
10. kafli
Og
meðan saga sjá hefir gengið og uppfæðsla Refs höfðu orðið mörg
höfðingjaskipti í Noregi. Var nú kominn til ríkis Haraldur
konungur Sigurðarson.
Með
hirð konungs var sá maður er Bárður hét. Hann var konungi
handgenginn. Hann var á sumrum í kaupferðum til ýmissa landa,
Íslands eða Vesturlanda, og fór hann nú þetta sumar er nú
segjum vér frá. Býr hann skip sitt og ætlar út til Íslands.
Konungur lætur kalla Bárð til sín og spyr hvert hann ætlar
halda skipi sínu.
"Til
Íslands," segir Bárður.
Konungur
mælti: "Eg vil að þú farir öðruvís. Skaltu nú sigla út til
Grænlands og flyt til vor tönn og svörð."
Bárður
segir að konungur skyldi ráða.
Eftir
það sigldi Bárður á haf og tókst honum hið greiðasta. Kom hann
við Grænland og fór til vistar um veturinn með Gunnari. Og er
hann hafði þar verið um hríð þá vekur Bárður til við Gunnar og
spyr hvað satt væri í því er hann heyrði sagt að einn
íslenskur maður hefði vegið fimm feðga á einu kveldi og hefnt
svo þess illmælis er þeir höfðu kveikt um hann. Gunnar lét
haft til þessa nokkuð. Bárður spurði hvað af þessum manni er
orðið.
"Það
hyggjum vér," sagði Gunnar, "að hann hafi týnst í hafi því að
hann varð svo hræddur að hann lét í haf við sétta mann við
vetur sjálfan."
Bárður
spyr hvað til hafi orðið með þeim. Gunnar segir nú af slíkt er
hann veit.
Bárður
mælti: "Allmjög undrast eg ef sá maður er sokkinn niður og
hefir þetta allmjög verið öll hans gæfa er hann komst úr
höndum yður. Og þykir mér hún vonum bráðara við hann hafa
skilist. Eða hafið þér leitað í óbyggðir?"
Gunnar
kvað leitað hafa verið alls staðar þar sem von þætti að menn
mættu vera og þó víðara.
Bárður
mælti: "Hversu mundi hann fara á haf í mót vetri við fá menn á
einni ferju? Ætla eg þér betra þykja að segja slíkt er ekki
verður hefnt Þorgils eða sona hans. Vil eg nú í vor snemma að
þú látir búa okkur skip og förum í óbyggðir og ætla eg það
víst ef eg finn hann ekki að sannlega sé hann týndur."
Gunnar
kvað svo vera skyldu. Líður nú af veturinn. Og þegar ísa
leysti bjó Gunnar ferð sína. Þeir höfðu ferju og á sjö menn.
Þeir halda nú í óbyggðir og leita í hvern leynivog og finna
ekki það að þeim þyki sem mannavistir muni verið hafa. Bárður
var manna skyggnastur.
Þeir
koma aftan dags á einn fjörð mikinn og krækti ýmsa vega í
landið. Og þar kom að hann bytndi. Þeir lögðu skipi sínu um
nóttina í vík eina. Bárður rær til lands á báti. Hann gekk upp
á höfða þann er var við fjarðarmynnið og litast um. Þá var
ljós nótt. Vindgul lítið lá utan eftir firðinum. Hann sá hvar
þangflota rak utan eftir og að botninum. Þá hvarf hann allur.
Þetta undrar Bárður mjög og gekk hann allt á framanverðan
höfðann. Hann sá hvar annar fjörður hófst upp mikill og langur
og þar sá hann dal ganga upp að fjöllum fagran og mikinn. Hann
gengur nú aftur til skipsins og leggst niður.
Um
morguninn spyr Bárður hvort þeir hafi kannað fjörð þann allan.
Gunnar kvað það vera. Bárður kveðst fara vildu þar til er hann
þryti með öllu. Og svo gera þeir, koma nú þar er höfðarnir
gengu á víxl. Þar skerst inn sund á millum. Það var allmjótt
en djúpt var það mjög. Þá laukst upp fjörðurinn í öðru sinni
og var sá fjörður mjög langur. Þeir komu þá í eina vík um
kveldið síðla. Ekki nenntu menn þá að kanna landið og lögðust
menn niður allir nema Bárður. Hann skaut báti til lands og
gekk einn saman með sjánum og kom þar, að spónahrúga mikil
var. Hann tekur upp spónu nokkura og hefir með sér, fer síðan
aftur til skips þeirra.
En
um morguninn sýnir Bárður Gunnari spónuna og mælti: "Aldrei á
ævi minni sá eg spónu jafnhaglega telgda. Eða var Refur nokkuð
hagur?"
Gunnar
svarar: "Hann var hinn mesti þjóðsmiður."
Bárður
segir: "Það mundi eg ætla að svo mundum vér eftir Ref eiga að
leita sem hann væri lífs."
Og
nú ganga þeir frá skipi nokkurir menn. Þeir geta brátt að líta
hvar virki stóð nær á framanverðum sævarbakkanum. Þeir gengu
þangað til og umhverfis og hyggja að því vandlega og þykjast
ekki séð hafa jafnfagurt smíði. Það var mikið og rammgert,
óbrætt og með fjórum hornum. Hvergi sjá þeir á því fellingar.
Var það að sjá sem ein fjöl.
En
er þeir hugðu þar að kemur maður fram á virkið. Sá var mikill
vexti. Hann heilsar Gunnari og hann tók kveðju hans. Kenna
þeir að þar var Refur. Hann spyr hvert þeir ætluðu að fara.
Bárður
svarar: "Ekki lengra fram á veg."
Refur
spyr að tíðindum. Bárður lést honum engi segja mundu. Refur
sagði þá og ekki fregna skyldu meir en fallið þætti.
Bárður
bað þá draga við að virkinu. En er umhverfum var kominn
viðurinn slá þeir í eldi. Kyndist þá skjótt viðurinn. Og því
næst sjá þeir að eldurinn slokknar. Þeir draga að við af nýju
í annað sinn að virkinu. Þeir sáu þá að vatnfall mikið fór af
virkinu og slokknar allur eldurinn. Þeir leita umhverfum
virkið og finna hvergi vatn. Þeir báru þá að eldinn uppi að
virkinu og kom þar ekki síður vatn úr fellingum en niðri.
Refur
gekk fram á virkið og mælti: "Sækist seint virkið?" segir
hann.
Bárður
mælti: "Vel máttu því hælast um fjölkynngi þína að vér munum
hér frá hverfa að sinni. En eg heit þér því, ef þú þorir að
bíða hér annars vors, að við Gunnar skulum yfir þínum
höfuðsvörðum standa."
Refur
mælti: "Ekki þér né Grænlendingum verður þess auðið að standa
yfir mér dauðum þótt eg sé hér jafnmarga vetur aðra nema þér
njótið yður vitrari manna við."
11.kafli
Eftir
það snúa þeir Bárður og Gunnar til skips síns með sínum mönnum
og halda til byggða. Komu þeir um haustið í Vestribyggð og er
Bárður með Gunnari annan vetur.
Eftir
um sumarið bjó Bárður skip sitt til Noregs og gefur Gunnar
honum gjafir. Gunnar sendir Haraldi konungi þrjá gripi. Það
var hvítabjörn fulltíði og vandur ágæta vel. Annar gripur var
tanntafl og gert með miklum hagleik. Þriðji gripur var
rostungshaus með öllum tönnum sínum. Hann var grafinn allur og
víða rennt í gulli. Tennurnar voru fastar í hausinum. Var það
allt hin mesta gersemi.
12. kafli
Bárður
lætur nú í haf og ferst vel. Kom hann í þær stöðvar sem hann
mundi kjósa. Hann færði Haraldi konungi margan grænlenskan
varning ágætan.
Fer
Bárður fyrir konung einn dag og mælti: "Hér er eitt tafl herra
er yður sendi hinn göfgasti maður af Grænlandi er Gunnar
heitir og vill ekki fé fyrir hafa heldur vinfengi yðart. Var
eg með honum tvo vetur og varð mér hann góður drengur. Vill
hann gjarna vera vin yðar."
Það
var bæði hneftafl og skáktafl.
Konungur
leit á um hríð og bað þann hafa þökk fyrir er slíkt sendi:
"Skulum vér víst vináttu vora á móti leggja."
Eigi
leið langt áður Bárður lét leiða inn í höllina hvítabjörn
fyrir konung. Hirðinni fannst mikið um dýrið.
Bárður
mælti: "Herra," segir hann, "þetta dýr sendi yður Gunnar af
Grænlandi."
Konungur
mælti: "Mikið er um gjafir þessa manns við mig eða hvað vildi
hann af oss fyrir slíkt hafa?"
"Auðvitað
er það herra, vinfengi yðart og viturleg ráð."
"Hví
mun það ekki maklegt?" segir konungur.
Og
er á líður veturinn var það einn dag að Bárður bað konung
ganga í málstofu sína. Hann gerði svo.
Og
er þeir komu þar ber Bárður fram hausinn fyrir konung með
öllum blóma sínum og mælti: "Hinn göfgasti maður, Gunnar á
Grænlandi, sendi yður þessar gersemar."
Konungur
hyggur að hausinum vandlega og lést honum sú sending þykja
ágæt og bað hann varðveita.
Konungur
mælti þá: "Seg nú Bárður hvað býr undir sendingum þessum og
veit eg nú að fleira mun undir búa en vináttumál ein saman."
Bárður
mælti: "Svo er sem eg sagði yður herra. Hann vill hafa
vinfengi yðart og viturlegt ráð til þess að vinna einn ref
þann er þeim Grænlendingum hefir unnið mikinn skaða."
Konungur
spyr hvað refi það væri.
Bárður
svarar: "Það er maður íslenskur og drap fimm feðga á einu
kveldi, hefir síðan siglt í óbyggðir við sétta mann og gert
þar virki úr stórtrjám. En vér fundum hann og bárum eld að
virkinu en alls staðar hljóp út vatn um virkið og slokknaði
eldurinn. Ekki hljóp síður út vatnið uppi úr virkinu en niðri
og þar á milli. En vér fundum engi vötn."
Konungur
mælti: "Mun þetta sá Refur er kaupskipið gerði á Íslandi og
hafði aldrei áður kaupskip séð og á því skipi fór hann til
Grænlands og er hann hafði búið þar nokkura vetur var kveikt
um hann illmæli mikið og hefndi hann þess svo rösklega að hann
einn vó þá fimm á einu kveldi?"
Bárður
svarar: "Um einn munum við ræða báðir."
Konungur
spyr hversu þar væri landslegi háttað. Bárður segir það
innilega.
"Slíkt
eru þó menn," sagði konungur.
Bárður
mælti: "Svo sagði hann að skilnaði vorum að engi mundi þaðan
geta hann brott flæmdan."
"Vera
má það," sagði konungur. "Kann vera að hann hafi og öðruvís um
talað. En það vil eg þér ráða," sagði konungur, "að þú farir
ekki þangað oftar því að ekki kemst þú á brott ef þú ferð
oftar."
Bárður
svarar: "Eg hefi svo heitið Gunnari að það má eg ekki rjúfa."
Nú
skilja þeir sitt tal og líður veturinn.
13. kafli
Og
um vorið býr Bárður skip sitt og er það var búið gekk hann á
konungs fund og mælti: "Herra," sagði hann, "hafið þér nokkuð
hugsað nauðsyn Gunnars?"
Konungur
mælti: "Hugsað hefi eg nauðsyn þína, að þú farir ekki til
Grænlands því að óskylt er þér að gremjast þeim manni sem þú
átt ekki illt að launa. Varir mig að þér reifi illu ef þú
ferð."
Bárður
svarar: "Að öðru munuð þér sannspárri herra."
Konungur
mælti: "Hitt ætla eg ef þetta rýfst að eg muni að fá sannspár.
En ef þú vilt víst fara þá mun eg nokkur ráð til leggja með
yður ef ykkur Gunnari þykir mikið undir."
"Ekki
ræði eg um það," segir Bárður.
"Þess
get eg þá," sagði konungur, "að í þeim litla dal er þar gengur
upp að jöklunum muni vatn vera. Mun Refur hafa veitt vatnið og
mun hann hafa felldan stokk í stokk þar til að vatnið kemur að
virkishorninu neðsta. Þar ætla eg gerva tvo stokka og mun úr
einum renna í hina báða stokkana og fylla svo hvorntveggja
hlut virkisins. En virkið allt mun gert stokkum holum og mun
hver stokkur lúta eftir öðrum og hver mun upp frá öðrum og mun
svo fylla virkið uppi og niðri af vatninu. Á þá leið hygg eg
þar umbúð veitta. En þar sem yður þótti ekki verða mót á
viðinum er vatn féll út alls staðar umhverfis virkið, þar hygg
eg hann munu borað hafa langar borur svo mjóvar að ekki mátti
koma nema því tré er þynnst verður telgt og ætla eg hann þau
tré hafa sett alls staðar í virkisstokkana. En í þeim bleðgum
ætla eg vera skaup og mun hann þeim þá munað hafa lítt að er
hann vildi að vatnið rynni úr virkinu. Alla þessa bleðga mun
hann sett hafa af smíði og mun eins konar tré verið hafa í
bleðgunum og í stokkunum. Nú er það mitt ráð við Gunnar að þér
farið norður í vor á tveim skipum, tólf á hvoru. Aðrir tólf
skulu skurð grafa fyrir norðan virkið jafnlangan, stundar nær
svo djúpan að taki manni undir hendur, og munu þeir finna
umbúð lækjarins. Og ef svo er þá stemmi þeir lækinn að hann
beri ekki vatnið í virkið. En aðrir tólf beri við að virkinu.
Síðan þætti mér von að þér megið brenna virkið fyrir vatns
sökum. Nú hefi eg til lagt þau ráð að eg heit því Gunnari að
annaðhvort mun vera, að Refur mun flýja virkið og Grænland eða
mun Gunnar fá handtekið hann. En ósýnt mundi mér þykja
hverninn sá maður mundi á brott komast er svo væri við kominn
nema hann hafi mikinn viturleik sér í brjósti. En ekki vildi
eg að þú færir sjálfur Bárður því að eg veit ei hvað þú sækir
að Ref."
Bárður
segir ekki mega öðruvís vera og þakkar konungi nú sín tillög
og lætur síðan úr landfestum.
14. kafli
Nú
er þar til máls að taka að Refur situr í óbyggðum. Synir hans
gerast hinir gildustu menn. Þetta sama vor sendir Refur þá
suður til byggðar til móts við þá menn er heitið höfðu Ref
liðveislu sinni eftir því sem fyrr segir. Þeir bræður fóru
leynilega og fékk Gunnar önga njósn af ferð þeirra. Og þegar
þeir vissu orðsendingar Refs þá urðu þeir vel við og fara
þegar til móts við hann. Refur fór þá til og lét fram setja
skipið það sem hann hafði haft af Íslandi. Hafði það haldið
hrófi og bráði svo að það var þétt sem bytta. Refur lét þá
ferma skipið af grænlenskum varningi, svörð og tönn og
skinnavöru. Og þegar skipið var búið halda þeir því norður í
þann fjörð er þar er næstur og lögðu þar skipinu í einn
leynivog. Þar var á Helga kona hans og Þormóður fóstri hennar
og Þormóður son þeirra og þeir tólf menn er úr byggð komu.
Refur sagði þá feðga enn skyldu byggja virkið um stund.
Frá
ferð Bárðar er það að segja að honum ferst einkar vel. Tók
hann Grænland þar sem hann mundi kjósa. Gunnar tók
feginsamlega við Bárði. Setja þeir þegar til menn að sjá fyrir
varnaði Bárðar. En þeir fóru þegar í óbyggðir með jafnmörgum
mönnum sem konungur hafði á kveðið. Þeim er þar nú kunnigt og
rata þeir skjótt þann fjörð er virki Refs stóð í. Gunnar
lendir skipi sínu í utanverðan fjörðinn því að það var þungt
undir árum og hlaðið af vist þeirra. Þótti þeim léttara að
ganga inn í fjörðinn. Þeir Bárður reru inn mjög allt að
virkinu. Komu þeir Gunnar nú og þar. Þeir ganga allir upp að
virkinu. Var þar öngum hlut breytt svo að þeir mættu sjá nema
grafinn var skurður jafnsítt virkinu það er að sjó horfði.
Skurðurinn tók á framanverðan sævarbakkann. Þar var aðdjúpt
mjög og ekki útfiri. Þessi skurður var ekki djúpari en tók
manni í bróklinda.
Í
því kemur maður gangandi á virkið. Þenna mann kenna þeir. Var
þar Refur. Hann heilsar þeim og spyr tíðinda.
Bárður
kveðst honum engi mundu segja "önnur en þú stendur þar feigum
fótum á virkinu. Eru það," sagði hann, "lítil tíðindi."
Bárður
fer þegar til og lætur skurð grafa og því næst finna þeir þar
stokka og eru vafðir næfrum. Þeir högga nú upp stokkana og
hleypur þar úr vatn mikið. Þeir Gunnar draga nú við að virkinu
og bera eld í. Hleypur þar fyrst úr vatn mikið úr virkinu en
brátt tók virkið að þorna. Refur gekk þá fram á virkið og
spurði hver þessi ráð hefði til lagt með þeim. Bárður kvað
hann það öngu varða.
Refur
mælti: "Eg veit og," segir hann, "að engi yðar mundi þetta ráð
fundið hafa nema þér nytuð yður hyggnari manna við."
Bárður
svarar: "Hver sem oss kenndi þessi ráð þá skulum vér þér nú
drottna í dag og þínum fjárhlut og hengja þig þar er þú megir
líta yfir þenna þinn bólstað, eða skaltu brenna."
Þá
kvað Refur vísu:
Þykkist
þremja stökkvir,
það
er líkindi, að ríki
reyndr,
í röskum höndum
ráð
vort hafa báðum.
Fyr
get eg hins en hjörva
hljómbeiðir
mig veiði,
hugðr
mun hróðr, að brögðum
hringbætandi
mæti.
Refur
snýr þá inn aftur í virkið. Þeir auka nú eldana og var nú eisa
mikil og votareykur ómáttulegur. Og í því heyra þeir braukun
mikla í virkið og er minnst varði fellur sá virkishluturinn er
fram horfði að sjónum. Þar var svo gegnt til ætlað að virkið
féll í skurðinn á framanverðan sævarbakkann. Það var svo slétt
sem ein fjöl. En í því er virkið féll rann þar eftir fram skip
á hvelum og þegar fram á sjóinn. Þeir Refur draga þegar segl
upp. Er á gol nokkuð norðan eftir fjöllunum. Undir þeim hluta
virkisins er féll urðu undir fjórir menn Bárðar og höfðu þegar
bana.
15. kafli
Bárður
heitir nú á sína menn. Hlaupa þeir til skips átta. Vinda þeir
þegar upp segl sitt og róa undir slíkt er þeir mega. Dró hann
nú brátt eftir þeim Ref.
En
Gunnar kannar nú virkið og var það eitt í virkinu er engi
hirti að hafa. Sneri hann þá út með firðinum með sínum mönnum
til skipsins.
Refur
sér að Bárður mun skjótt eftir koma.
Þá
mælti Refur: "Nú skulum vér fyrst hleypa niður segli voru. En
mig varir, er hitt skipið skríður skjótt, að þeir fái það ekki
stöðvað en þeir vita önga von að vér munum bíða og mun þeirra
skip renna fram á annað borð. Þá skaltu Steinn," sagði Refur,
"höggva höfuðbendur þeirra en þú Björn skalt dafla í árum að
þeim sýnist sem vér róum undan í skerpingi en þú lát sem skip
vort muni sem minnst skríða."
Refur
hjó nú hvel undan skipi sínu og því næst tók hann spjót eitt
lítið og hvatti í ákafa.
Nú
er að segja frá Bárði að þeir gera bæði, sigla og róa, en
varði ekki að Refur mundi bíða. Rennir skip þeirra fram hjá
skipi Refs. Í því skýtur Refur spjótinu til Bárðar. Flýgur það
þegar í gegnum hann og nísti út við borðið. Steinn höggur
allar höfuðbendur þeirra. Fór þá seglið útbyrðis með öllum
sínum reiða og við því búið að hvelfa mundi skipinu. Drógu
þeir Refur þá upp segl sitt og voru brátt mjög fjarri og fóru
þeir Refur þá leið sína þar til er þeir komu út úr firðinum.
Skipverjar Bárðar gátu borgið reiða sínum. Lögðu þeir þá að
landi undir nes eitt.
Gunnar
og hans menn sáu að Refur sigldi út eftir firðinum. Þóttist
hann þá vita að sá einn mundi hafa orðið fundur þeirra Bárðar
er hann mundi ekki orð eftir senda. Bað hann þá sína menn
flýta sér til skipsins og komast fyrir fjarðarmynnið. Þeir
gera svo. Tók nú að líða dagurinn.
Þá
er Refur og synir hans komu úr sundinu og í sundur lauk
firðinum í annað sinn gátu þeir að líta hvar Gunnar reri frá
landi og hans menn sem mest máttu þeir. Tók þá mjög að dimma
af nótt en tunglsljós lítið.
Refur
mælti þá: "Vér skulum sækja róður sem ákafast. En þú Björn,"
sagði hann, "skalt láta síga segl vort æ smám og um síðir
fella."
Þeir
gera nú svo.
Gunnar
mælti þá til sinna manna: "Klækilega sækist yður róðurinn. Vér
vorum áðan svo nær þeim að eg hugði að vér mundum skjótt taka
þá en nú firrast þeir oss svo að lítil þúfa þykir skip þeirra
að sjá. Mun þar vera vindur meiri. Mun þá því bera undan. Nú
munum vér snúa til lands og rekast ekki á hafsmegin um nætur
eftir Ref."
Þeir
gerðu nú svo.
Um
morguninn komu menn Bárðar til Gunnars og sögðu sínar ekki
sléttar. Höfðu þeir þar lík Bárðar. Sneri Gunnar nú aftur til
byggðar og undi illa við sína ferð. Var þar og eitt allra
manna orðtak að fár mundu reknar verri fyrir einum manni.
Hásetar
þeir er verið höfðu með Bárði gerðu skjótt varningsskipti.
Sigldu þeir í Noreg um haustið og er þess ekki getið að Gunnar
sendi Haraldi konungi neinar gersemar. Sögðu þeir konungi lát
Bárðar og um skipti þeirra Refs. Konungi þótti farið hafa ekki
fjarri getu sinni.
16. kafli
Refur
og synir hans sneru þá til skips síns og urðu þar hvorir öðrum
fegnir. Bjuggust þeir síðan til hafs og þegar þeir voru búnir
sigldu þeir á haf. Þeir höfðu útivist langa og hæga. Þeir tóku
Noreg um haustið og komu þar fyrst við land sem heitir Æðey.
Landsmenn spurðu hver skipi því stýrði. Hann nefndist Narfi og
lést vera íslenskur maður. Narfi spurði eftir hvar konungur
væri í landinu. Landsmenn sögðu hann vera í Þrándheimi. Æðey
er hálfa tylft suður frá Þrándheimi. Narfi sigldi þaðan inn
til meginlands, leggur þar skipi sínu í einn leynivog, lætur
þar eftir föruneyti sitt en leigir sér sexæring einn og
leiðsögumann. Synir hans fara með honum og kona hans. Menn
hans skulu gæta þar skips.
Ekki
er getið um ferð Narfa fyrr en hann kemur til kaupbæjar í
Niðarósi og leigði sér þar skemmu eina. Þau dvöldust þar
nokkrar nætur. Narfi bauð þeim á varygð mikla að þeir gangi
aldrei svo frá skemmunni að Helga væri þar ein eftir. Hann lét
gera sér kufl bláan. Hafði hann og jafnan svarðreip um sig.
Skegg hafði hann og látið binda sér hvítt og lést hann vera
gamall kaupmaður, gekk nú jafnan svo búinn um torg. Spjót
hafði hann í hendi á lágu skafti og járni vafið skaftið.
Konungur
var þar í bænum og mikið fjölmenni. Hirðmaður konungs hét
Grani og var kallaður Skálp-Grani, fríður maður sýnum og barst
á mikið að vopnum og klæðum. Grani var vífinn og kvensamur.
Gerði hann mörgum í því mikla skapraun. Varð honum það nú
þolað er hann hafði konungs traust.
Svo
bar til einn dag að konungur hafði þing fjölmennt í bænum og
var mönnum til blásið almennilega. Narfi gekk til þings og
synir hans, Steinn og Þormóður. Björn var eftir hjá móður
sinni. Og ekki því síður var honum forvitni á hvað talað var
þar á þinginu og fer hann þangað. Narfi þekkir Björn og snýr
að honum og spyr hvað eftir væri hjá Helgu. Hann segir að ekki
var. Narfi snýr nú aftur til skemmunnar.
Litlu
síðar en Björn var í brottu genginn kemur maður í skemmuna. Sá
var í blám klæðum og lét mikið yfir sér. Helga heilsaði þeim
manni og spyr að nafni.
Hann
lést heita Grani og vera hirðmaður Haralds konungs: "Er eg því
hér kominn," segir hann, "að eg vil mér konu kaupa."
Hún
bað hann ganga til þess í annan stað. Grani kvað það ósæmilegt
að gamall maður ætti unga konu svo fríða og fagra. Hún kveðst
mundu vera fyrir honum sjálfráða. Grani kveðst mundu vera ekki
færavandur og tók til Helgu. Hún sprettur upp og verst. Slær
þar í glímu. Og í því kemur Narfi til gluggans og sér inn. En
er Grani sér skuggann bera fyrir gluggann þá slíst hann úr
höndum Helgu og leitar til dyranna. Narfi vildi og komast
fyrir dyrnar. Grani komst þá út fyrr og hefur þegar á rás.
Helga
hljóp og til dyranna og vill þrífa til Narfa "og láttu Grana
fara," segir hún, "því að hann hefir öngri eigu þinni spillt."
Narfi
sleit Helgu af sér og hljóp eftir Grana og eggjar hann að
bíða. Hann hleypur ekki að síður þar til að hann kemur að
skíðgarðshliði einu. Þá var skammt í millum þeirra. Grani sér
þá að hann mun tekinn verða.
Hann
snýst þá við og mælti svo: "Hygg þú að," sagði hann, "hvað þér
er geranda. Þó þú drepir mig þá er það dauði þinn. En svo
lengi sem þú ert hér í bænum þá skal eg þér aldrei mein gera."
Hann
baðst undan sem hann kunni.
Narfi
mælti: "Það er satt," sagði hann, "að þér er alls kostar illa
gefið. Þú berst á meira en menn og þykist mikill fyrir þér og
gerir mörgum skömm en nú veistu ekki hversu þú skalt láta eða
þér breyta, svo ertu hræddur. Bústu svo við fyrir því að ekki
mun nú tjá að friðmælast."
Narfi
lagði þá til hans spjótinu. Grani hafði öxi í hendi. Laust
hann af sér lagið. Hann fór svo nokkrum sinnum. Narfi varð
honum harðskeyttur og lauk svo að hann rak í gegnum hann
spjótið. Hann dregur hann þá upp undir skíðgarðinn meðan hann
var í fjörbrotunum og hylur hræ hans þar.
Narfa
kemur nú í hug að ekki mun ráð að myrða manninn og best muni
fallið að segja konunginum sjálfum. Gengur Narfi nú fyrst heim
til skemmunnar og biður Helgu taka föng þeirra og hafa til
skips og svo leiðsögumann þeirra.
Narfi
gekk nú þangað til sem þingið var. Þar var allmikill
mannfjöldi og þröng. Narfi þröngdist nú fram millum manna þar
til að hann kom fyrir konung. Í því bili talaði konungur um
nauðsynjar manna.
Narfi
tók ekki því síður til orða og mælti svo: "Herra konungur,"
sagði hann, "við Sverðhús-Grani urðum saupsáttir í dag er hann
vildi fjallskerða konu mína. Eg stórkeraldaði hann í gegnum
strábeygisauga. Þá langhúsaði hann, herra. Þá langhúsaði eg,
herra. Þá hreiðurballaði eg hann, herra, en hann marghrossaði
á mót. Þá fagurröggvaði eg hann, herra, en hann skipskeggjaði
þá við. Þá lynghnappaði eg hann, herra, undir einn skíðgarð
skammt í braut og voðvirkti eg yfir hann að lyktum."
Narfi
snýr þegar í brott og til skips síns og hvatar nú mjög sinni
ferð. Létu ganga um kveldið og um nóttina suður með landi þar
til er þeir komu til skips Narfa. Þeir sigldu þá þegar til
hafs.
17. kafli
Nú
er að segja frá Haraldi konungi að hann er staddur á þinginu
sem fyrr var sagt. En meðan Narfi flutti fram sitt erindi þá
lét konungur ekki sína ræðu falla og engi maður fann að hann
gæfi gaum að hvað Narfi sagði.
Og
er hann hafði lyktað sínu erindi lét konungur blása til hljóðs
og mælti síðan: "Hver var maður þessi oss ókunnur er stóð
fyrir oss um hríð í blám kufli og svarðreip mikið um sig og
spjót í hendi eða hvaðan er hann?"
Menn
sögðu að þeir vissu aldrei hvaðan hann var, sögðu hann hafa
verið þar í bænum nokkura daga og leigt þar skemmu eina og
nefnst Narfi.
Konungur
mælti: "Hvað þótti yður hann segja?"
Þeir
kváðust það aldrei vita að það væri annað en vitleysa og
hégómi.
"Vera
má að svo sé", segir konungur, "en ekki varð mér maður sá
lítill fyrir augum eða hvar er Skálp-Grani hirðmaður vor?
Kalli hann fyrir mig."
Þeir
gerðu svo og fundu hann ekki.
Konungur
mælti þá: "Verri efni munu í vera. Maður þessi tók svo til
orðs: "Við Sverðhús-Grani urðum saupsáttir í dag. Hann vildi
fjallskerða konu mína." "Þess get eg," sagði konungur, "að
hann muni átt hafa við hirðmann minn, Skálp-Grana, því að
skálpurinn er hús sverðsins. Mun hann hafa farið um herbergi
að leita sér kvenna. Má vera að þá hafi fyrir orðið kona Narfa
þessa. Sá er drykkur á Íslandi er mysa heitir. Er það allt
eitt, mysa og saup og drykkur. Nú munu þeir hafa orðið
missáttir. Hann sagði hann hafa viljað fjallskerða konu sína.
Þar hefir hann viljað hvíla með henni því að þá er kallað að
konur séu giljaðar en gilin eru fjallskörð. Þá kveðst hann
stórkeralda hann í gegnum strábeygisauga. Það er rétt atkvæði,
sáir eru þau keröld stór. Þá vitið þér að vindur heitir
strábeygir en vindauga á húsum og hefir hann séð hann um
glugginn á herberginu er þau hafa saman átt. "Þá langhúsaði eg
konungur," sagði hann, "og þá langhúsaði hann." Rann heitir
langt hús og hefir þá hvortveggi þeirra runnið. Mun hann hafa
hlaupið með skemmuveggnum hart er hann hefir séð sameignina.
Það mun Grani heyrt hafa. Má vera að þá hafi hann staðar látið
nema athöfn þá er hann hafði. Mun hann þá hafa forðað sér. "Þá
hreiðurballaði eg hann," kvað hann. Þá mun hann hafa eggjað
hann að bíða því að egg er hreiðurböllur. "En hann
marghrossaði við." En stóð hross heita og eru mörg saman
jafnan. Mun hann þá hafa staðar numið. Þá kveðst hann
fagurröggva hann "en hann skipskeggjaði við." Skikkjur eru þær
á Íslandi er feldir heita. Er það ýmist kallað á feldinum
röggur eða lagður. Nú mun hann hafa vikið svo til málinu að
kalla lagð. Mun hann þá hafa lagt í gegnum hann er hann kveðst
fagurröggva hann. "En hann skipskeggjaði við." Barð heitir á
skipi. Þá mun hann barist hafa er hann var í fjörbrotunum. "Þá
lynghnappaði eg hann undir skíðgarð einn," sagði hann, "skammt
í braut." Byrður heitir lynghnappur og hefir hann þá borið
hann undir skíðgarðinn. Þá kveðst hann hafa voðvirkt yfir hann
síðan. Er það málsháttur á Íslandi að konur lúka vef. Mun hann
þá hafa hulið hann. Nú vil eg," sagði konungur, "að þér leitið
að þessum mönnum, bæði að hinum vegna og svo vegandanum."
Gerðu
menn nú sem konungurinn bauð. Fannst Grani nú dauður en Narfi
fannst hvergi.
Um
morguninn lét konungur blása til móts og sagði svo: "Þau
tíðindi urðu hér í gær að því er betur að slík eru sjaldan, er
hirðmaður vor var veginn. Veit eg ekki þess íslensks manns von
að það mun þora að gera hér undir handarjaðri vorum. Nú mun eg
geta til hver þessi maður er. Hér mun kominn sá sami Refur er
Grænlendingum hefir gert mikið illbýli."
Eftir
það nefndi konungur menn til að leita þessa manns bæði á sjó
og á landi. Fóru þeir eftir því sem konungur gerði ráð fyrir.
18. kafli
Nú
er að segja frá ferð Refs að þeir léttu ekki fyrr sinni ferð
en þeir komu til Danmerkur. Refur sótti þegar á konungs fund
og sagði honum allan vöxt á þarkomu sinni og bað hann viðtöku.
Konungur
sagði svo að honum þætti svo verða í hans frásögn sem nauður
hefði til rekið víðast um harðræði hans: "Líst mér svo á þig
og sonu þína sem gott muni brautargengi í yður. Nú af því að
þú hefir vorn fund sótt, hefir þú og þann varning flutt í land
vort sem oss er nú ekki um hríð mjög auðfengur sakir vorra
fjandmanna, sem er svörður til reiða á skipum vorum, þá munum
vér við yður taka. Mun eg fá yður eignir og bú þar sem oss
líkar en synir þínir, Steinn og Björn, skulu vera með oss.
Munu sæmdir þeirra þar við liggja hvert mannkaup er mér þykir
í þeim þann tíma er vér reynum. En Þormóður son þinn skal vera
með þér."
Refur
kveðst gjarna vildu að konungur sæi einn fyrir "en þó munum
vér fyrst herra sjá fyrir peningum vorum og búa þá bræður til
yðar."
Konungur
kvað svo vera skyldu.
Fóru
þeir Refur þá til skips síns. Kom það upp að þeir hefðu of
fjár í svörð og tannvöru og skinnavöru og mörgum þeim hlutum
er fásénir voru í Danmörk af grænlenskum varningi. Þeir höfðu
fimm hvítabjörnu og fimm tigu fálka og fimmtán hvíta.
19. kafli
Þar
er nú til að taka að skip það kom þetta haust af Grænlandi er
Bárður hafði stýrt. Spyr konungur nú víg Bárðar og alla
atburði þá sem þar höfðu orðið.
Konungur
lætur nú blása til móts einn dag og á því móti talaði Haraldur
konungur og sagði mönnum víg Bárðar hirðmanns síns af
Grænlandi "og þeir atburðir," sagði konungur, "sem hér urðu um
víg Grana. Veit eg víst nú að sá hinn sami Narfi hefir verið
Refur Steinsson. Mun eg lengja nafn hans og kalla hann
Króka-Ref. Nú þó að hann sé mikill fyrir sér þá verðum vér þó
að geyma vorrar tignar, að leiða öðrum að drepa niður hirð
vora og af því gerum vér hér í dag þenna mann útlægan fyrir
endilangan Noreg og svo vítt sem vort ríki stendur."
Eftir
það nefnir konungur til Eirík bróður Grana og með honum sex
tigu manna að fara suður til Danmerkur að sitja um líf Refs.
20. kafli
Eiríkur
býr nú ferð sína og þeir menn sem honum skyldu fylgja. Léttu
þeir ekki sinni ferð fyrr en þeir komu til Danmerkur og lágu
við Jótland í góðri höfn nokkura daga.
Sem
þeir komu þar þá kom af landi ofan karl einn gamall við tvo
stafi og í vondri heklu og hvítt skegg af hæru. Þeir fögnuðu
honum vel. Þeir spurðu karl að nafni. Hann nefndist
Sigtryggur. Þeir spurðu hvar ætt hans væri. Hann kveðst vera
norrænn að hinum fyrrum ættum en verið nú í Danmörk um stund
og orðið þar fátækur. Þeir kváðu hann mundu vera góðan karl og
kunna þeim margt að segja. Hann spurði að hverju þeir vildu
spyrja. Þeir kváðust vildu forvitnast til þess manns er Refur
héti og mundi þar hafa komið um sumarið á skipi við nokkura
menn.
Sigtryggur
mælti: "Mun mér það til nokkurs vera að segja yður það er þér
viljið vita?"
Þeir
kváðu honum ekki mundu matskort um nokkura daga.
Sigtryggur
mælti: "Ekki mun eg þetta til matar eins gera, að segja yður
til Refs, því að eg veit af umræðu manna að þér munuð sitja um
líf hans. Nú mun eg gera yður þann kost að fylgja yður þar til
þér sjáið Ref og sonu hans og þá tólf menn sem honum hafa
fylgt í sumar enda skal eg eignast eyri silfurs af hverjum
yðrum og einn kostgrip af skipi yðru enda skuluð þér skyldir
að flytja mig til Noregs, ef eg vil, á yðrum kosti. Skuluð þér
og mig láta ráða fyrir ferð vorri þar til er vér finnum Ref."
Þessu
kaupa þeir saman.
Sigtryggur
mælti: "Nú skulum vér taka tjöld af skipi voru þegar í stað og
róa fram um nesið."
Þeir
gerðu svo og lögðu þar að landi.
"Nú
mun eg ganga upp," sagði karl, "og tveir yðrir menn með mér og
vita hvers vér verðum vísir."
Þeir
gerðu nú svo. Var þar skógur nær. Og er þeir komu skammt í
skóginn hlupu þar að þeim menn með vopnum. Voru þar synir Refs
og þeir tólf saman. Voru hinir norrænu menn handteknir báðir.
Sigtryggur kastar þá tötrunum og svo skegginu. Gengu þeir þá
annan veg til sjóvar. Flutu þar fyrir tvö langskip og tvö
hundruð manna. Hafði Sveinn konungur sent þetta lið til Refs
þegar hann vissi að njósnarmenn voru til hans gervir. Refur og
hans menn vopnuðust og veittu Eiríki atróður og hans mönnum.
Og er þeir fundust urðu þar skjót umskipti, að menn voru allir
drepnir af Eiríki nema tíu voru handteknir.
Refur
mælti þá: "Nú er svo komið Eiríkur að hér er kominn Sigtryggur
félagi þinn og kaupunautur er þú fannst í gærkveld. Hefi eg nú
ent það er eg hét þér að nú máttu hér sjá Ref og sonu hans. Nú
af því að eg drap bróður þinn þá vil eg nú gefa þér líf ef þú
vilt sverja það að sitja aldrei um líf mitt né sona minna.
Skaltu og segja Haraldi konungi allt hið sanna um vorn fund.
Seg honum og að nú hefi eg launað honum nokkuru fjörráð þau er
hann lagði til með þeim mönnum er líf mitt vildu hafa. En
Haraldi konungi mun ekki auðið verða að láta drepa mig. Skal
honum sá einn óþarfari í Danmörk en eg er meira má."
Eftir
það sór Eiríkur eiða þessa. Refur fékk þá Eiríki tólfæring
einn og þar með þá hluti sem hann þurfti að hafa að
nauðsynjum. Refur tók til sín langskip það er þeir höfðu
þangað haft og færði Sveini konungi.
Lofaði
konungur mjög tiltæki Refs, kvað þau vera bæði harðmannleg og
drengileg "skaltu nú og þetta nafn hafa," sagði Sveinn
konungur, "hér í voru ríki, að heita Sigtryggur, því að hitt
er hér fánefnt. En að nafnfesti viljum vér gefa þér gullhring
þenna er stendur mörk. Þar með skaltu þiggja af oss tólf bú
vestur á Vendli, þau er þú kýst, af því að eg skil að þú munt
vera stórvitur maður."
Refur
þakkaði konungi með fögrum orðum höfðinglegar gjafir og alla
þá sæmd er hann veitti honum. Refur fór nú til búa sinna er
konungur hafði gefið honum og Helga kona hans og Þormóður son
þeirra. Gerðist Sigtryggur þar hið mesta stórmenni.
Og
er hann hafði þar setið nokkura vetur bjó hann ferð sína út í
Rómaborg og sótti heim hinn helga Pétur postula. Og í þeirri
ferð fékk Sigtryggur sótt þá er hann leiddi til bana og er
hann jarðaður á ríku munkaklaustri út í Frakklandi.
Steinn
og Björn voru með Sveini konungi lengi og virti hann þá mikils
svo að hann fékk þeim göfug kvonföng í Danmörk og staðfestust
þeir þar báðir og þóttu ágætir menn. Frá Steini er kominn
Absalon erkibiskup er var um daga Valdimars konungs
Knútssonar. Þormóður son Refs fór til Íslands eftir fall
Haralds konungs og tók við landi á Kvennabrekku og kvæntist á
Íslandi og er margt göfugra manna frá honum komið.
Lúkum
vér þar Króka-Refs sögu.