1.
kafli
Þorvaldur
hét maður og var kallaður skiljandi. Hann bjó í eynni Ylfi á
Hálogalandi. Hann átti konu þá er Þorgerður hét og var
Hallfreðardóttir. Galti hét bróðir hennar. Hann var ríkur
maður og bjó í Sogni. Synir Þorvalds voru þeir Óttar og
Þorkell silfri og var Þorkell laungetinn. Ingjaldur hét maður
er þar bjó enn í eynni. Hans son hét Ávaldi. Óttar var með
Ingjaldi.
Sokki
hét víkingur einn mikill og illur viðureignar. Hann fór víða
með hernaði og var vinur Gunnhildarsona því að þeir voru þá
yfir Noregi. Hann kom um nótt á bæ Þorvalds og segir mönnum
sínum að þar muni gott fang í hendur bera er auðigur maður bjó
fyrir "og skulum vér bera eld að bænum."
Og
svo gera þeir.
Þorvaldur
gekk til dyra og spyr hver fyrir eldinum réði. Sokki sagði til
sín.
"Hvers
gjöldum vér að?" segir Þorvaldur. "Eg man eigi mótgerðir mínar
við þig."
Sokki
segir: "Ekki förum vér víkingar að því. Viljum vér hafa líf
þitt og fé."
"Á
því munuð þér nú vald eiga að sinni," segir Þorvaldur.
Nú
sækja víkingar að bænum með eldi og vopnum og lýkur svo að
Þorvaldur brann þar inni við fimmtán menn en nokkurir komust
brott úr eldinum. Víkingar tóku fé það allt er þeir máttu með
komast.
Sumt
lið Sokka fór til bæjar Ingjalds og lögðu þar eld í hús. Hann
gekk til dyra og beiddi mönnum útgöngu en þess var engi
kostur.
Þá
gekk Ingjaldur að sveinunum Óttari og Ávalda og mælti: "Það er
líkast að liðin séu mín örlög en gjarna vildi eg koma ykkur úr
eldinum og mættuð þið njóta lengri forlaga. Skal eg skjóta
ykkur út um laundyr og væru ykkur nóg efni til seld að hefna
þessa ef þið fengjuð nokkura uppreist."
Þeir
svara að vera mundi viljinn til "en eigi sjáum við efni okkur
til þess að svo búnu."
Síðan
var þeim skotið út um laundyr einar og komust þeir með reyk í
brott og hlaupa út á eyna en fyrir gný og eldsgangi og það er
þeir voru eigi feigir þá komast þeir undan og til eins bónda
er þar bjó í eynni.
Óttar
mælti þá: "Viltu flytja okkur til lands?"
Bóndi
kenndi þá og flutti þá til lands. Þar komu þeir er síldferja
var og menn á norðan úr Vogum. Þeir sögðust vera fátækir
sveinar og koma sér þar í þjónustu. Þeir fara þar til er þeir
koma suður um Sognsæ. Þá segja sveinarnir að þeir vilja þar
inn í fjörðu, "eigum við hér frændur fyrir."
Stýrimaður
mælti: "Það skal nú sem þið viljið eða munuð þið hér eigi verr
komnir en þar sem vér tókum ykkur. Hafið þið vel þjónað og
munuð þið brátt brugðnir við meira."
Síðan
skildu þeir. Síð dags komu þeir til Galta móðurbróður Óttars
og settust utarlega. Galti gekk að þeim og spurði hverjir þeir
væru. Óttar sagði satt til þeirra.
"Þá
er skapleg koma ykkur," sagði Galti, "og gangið til sætis."
Þar
voru þeir í góðu yfirlæti sjö vetur eða átta og gerðust
gervilegir menn. Þá var Óttar á Fitjum er Hákon konungur féll
en Gunnhildarsynir tóku ríki.
Það
var einn dag er Galti mælti: "Svo virði eg Óttar sem þú sért
fyrir ykkur fóstbræðrum og vænti eg að þú verðir
framkvæmdarmaður en nú er sú öld í Noregi að eg treystist eigi
að halda ykkur hér með mér. Nú vil eg fá ykkur kaupeyri og
skuluð þið sigla vestur til Englands og vita hvernig það vill
takast."
Óttar
kvaðst hans ráðum hlíta vilja. Selt hafði Galti jarðir þeirra
og tekið fyrir lausafé. Nú fara þeir úr landi fóstbræður,
Óttar og Ávaldi, vestur til Englands og afla sér fjár. Þrjá
vetur eða fjóra voru þeir í siglingum til Englands og áttu þá
stórfé. Þeir fóru þá til Orkneyja og voru þar vel metnir af
góðum mönnum.
Óttar
mælti þá til Ávalda: "Það leikur mér í skapi að kaupa
Íslandsfar og ráðast þangað. En þó vildi eg að við hefndum
áður feðra okkarra en við losnuðum brott með öllu."
Ávaldi
bað hann fyrir sjá. Síðan keyptu þeir sér skip gott og réðu
þar menn til og sigla nú til Noregs og komu í Sogn til Galta
og sögðu honum sína ætlan.
Galti
segir: "Það ber vel til. Sokki liggur héðan skammt í brott á
einu skipi og sefur á landi um nætur í einu lofti. Skal eg fá
ykkur mann þann er allt er kunnigt fyrir og Sokki mun síst
varast."
2. kafli
Nú
fóru þeir frá skipi sínu, Óttar og Ávaldi, og sá maður með
þeim er Steinn hét. Þeir komu síð um kveld að bæ þeim er Sokki
svaf að um nætur og Sóti bróðir hans. Steinn fór einn til
bæjar og kom sér brátt í tal við þá Sóta og drakk með þeim um
kveldið. Og er þeir gengu til svefns og upp í loftið þá gerði
Steinn þeim Óttari vísbending. Þeir Sóti voru sjö saman í
göngu og komu í loftið og ætluðu að afklæðast. Þá koma þeir
Óttar að og leggur hann þegar með sverði til Sokka neðan undir
brynjuna og svo upp í smáþarmana og fékk Sokki þegar bana.
Ávaldi hjó með sverði til Sóta og af honum báða þjóhnappana.
Síðan hljópu þeir út allir og létu myrkrið gæta sín. Þeir komu
til skips síns og héldu þegar í haf og fengu góðan byr og
þótti þeirra ferð allsköruleg orðið hafa.
Gunnhildur
spyr þetta og kvað það mein að hún hafði eigi þá menn augum
leitt er vini hennar höfðu drepið og skammað "en eg veit þó,"
segir hún, "hverjir gert hafa."
Þeir
Óttar komu í Blönduós fyrir norðan land og voru þá numin lönd
öll. Óttar keypti land í Grímstungum í Vatnsdal að þeim manni
er Einar hét og gaf honum við kaupskipið. Óttar gerði bú.
Ávaldi var með Óttari hinn fyrsta vetur. Um vorið keypti hann
land að Hnjúki í Vatnsdal. Hann fékk þeirrar konu er Hildur
hét, dóttir Eyvindar sörkvis. Dóttir þeirra hét Kolfinna. Hún
var væn kona og ofláti mikill.
Ólafur
hét maður er bjó að Haukagili. Hann var auðigur maður og átti
þá konu er Þórhalla hét og var dóttir Ævars hins gamla. Aldís
hét dóttir þeirra og var sköruleg kona. Hennar bað Óttar og
fékk með miklu fé. Son þeirra hét Hallfreður en annar Galti.
Dóttir þeirra hét Valgerður og var allra kvenna fríðust.
Ólafur að Haukagili fóstraði Hallfreð og var hann vel haldinn
þar. Hann var snemma mikill og sterkur, karlmannlegur og
skolbrúnn nokkuð og heldur nefljótur, jarpur á hár og fór vel.
Skáld var hann gott og heldur níðskár og margbreytinn. Ekki
var hann vinsæll.
Þorsteinn
Ingimundarson var þá höfðingi í Vatnsdal. Hann bjó að Hofi og
þótti mestur maður þar í sveitum. Hann var vinsæll og
mannheillamaður mikill. Ingólfur og Guðbrandur voru synir
hans. Ingólfur var vænstur maður norðanlands. Um hann var
þetta kveðið:
Allar
vildu meyjar
með
Ingólfi ganga
þær
er vaxnar voru,
vesöl
er eg æ til lítil.
Eg
skal og, kvað kerling,
með
Ingólfi ganga
meðan
mér tvær of tolla
tennr
í efra gómi.
Haustboð
var efnað í Grímstungum og knattleikur. Ingólfur kom til leiks
og mart manna með honum neðan úr dalnum. Veður var gott og
sátu konur úti og horfðu á leikinn. Valgerður Óttarsdóttir sat
upp í brekkuna frá og konur hjá henni. Ingólfur var að leiknum
og fló knötturinn upp þangað. Valgerður tók knöttinn og lét
koma undir skikkju sína og bað þann sækja er kastað hafði.
Ingólfur hafði þá kastað. Hann bað þá leika en hann settist
niður hjá Valgerði og talaði við hana allan þann dag.
3. kafli
Nú
var slitið leiknum og fóru menn heim, þeir er eigi voru í
boði. Síðan vandi Ingólfur komur sínar í Grímstungur til tals
við Valgerði.
Óttar
kom að máli við Ingólf og mælti: "Eigi gest mér að komum þínum
og spurt muntu það hafa að vér höfum eigi setið um skapraunir
eða skammir. Muntu komast að ráðahag við hana ef þú vilt."
Hann
kvaðst mundu vera sjálfráði ferða sinna hvað sem Óttar segði,
lét svo að eins skipaðan dalinn að hann kvaðst engis manns
nauðarmaður vera skulu.
Síðan
hitti Óttar Þorstein og bað hann halda svo son sinn að hann
fengi enga ósæmd af honum "því að þú ert vitur maður og
góðgjarn."
Þorsteinn
segir: "Víst gerir hann slíkt í móti mínum vilja og heita vil
eg þér mínu umtali."
Og
skilja þeir við það.
Þorsteinn
mælti til Ingólfs: "Annan hátt hafið þér en vér höfðum á unga
aldri, gerið yður að ginnungum er höfðingjaefni eruð. Lát af
tali við dóttur Óttars bónda."
Ingólfur
kvað við hans umtal batna skyldu og lét þá af komum fyrst í
stað. Síðan orti Ingólfur mansöngsdrápu um Valgerði.
Óttar
reiddist því mjög, fer enn að hitta Þorstein og kvað sér nú
leitað mikillar skapraunar: "Nú bið eg að þú lofir mér að
stefna syni þínum því að eg nenni eigi að kyrrt sé."
Þorsteinn
segir: "Meðallagi er það ráðlegt en eigi vil eg banna þér."
Þá
mælti Jökull bróðir Þorsteins því að hann var þar hjá: "Heyr á
endemi. Þú mundir stefna oss frændum hér í sveit. Skaltu fá
ófagnað."
Jökull
bjó uppi í Tungu í Vatnsdal. Þorsteinn sýndi enn góðvild sína
og setti menn til með þeim á Húnavatnsþingi en bauð handsöl
fyrir son sinn. Þorsteinn bað þess að Óttar yndi því að hann
dæmdi um drápumálið og það er milli þeirra var. Þessa fýstu
menn Óttar og varð það að sættum að Þorsteinn skyldi einn
gera.
Síðan
mælti Þorsteinn: "Skjót eru hér mín ummæli. Mun eg sjá fyrir
hvorumtveggjum hversu sem ykkur líkar. Eg geri hálft hundrað
silfurs til handa Óttari en hann skal selja jarðir sínar og
ráðast í brott úr þessi sveit."
Óttar
kvaðst eigi vara að honum mundi slíkur ójafnaður ger vera.
Þorsteinn kvaðst eigi síður fyrir hans hlut séð hafa við
skaplyndi hvorratveggju. Og eftir það réðst Óttar suður í
Norðurárdal og bjó fyrst á Óttarsstöðum.
Þá
var Hallfreður son hans nær tvítugum manni. Hann lagði hug á
Kolfinnu Ávaldsdóttur en Ávalda var lítið um það og vildi
gifta honum dóttur sína en Hallfreður vildi eigi kvænast.
Ávaldi fer að hitta Má vin sinn er bjó á Mársstöðum og sagði
honum til vandræða sinna.
Hann
svarar: "Hér mun fást ráð til. Eg skal fá mann til að biðja
hennar. Maður heitir Grís og er Sæmingsson. Hann er vinur minn
og býr að Geitaskarði í Langadal" - hafði hann verið út allt í
Miklagarð og fengið þar miklar sæmdir - "hann er auðigur maður
og vinsæll."
4. kafli
Nú
sendi Már orð Grísi og kemur hann á Mársstaði.
Már
mælti: "Ráð hefi eg hugað fyrir þér. Þú skalt biðja Kolfinnu
dóttur Ávalda. Þar skortir eigi fé og er hún kostur góður en
mér er sagt að Hallfreður Óttarsson eigi tal við hana jafnan."
Þetta
var áður en Óttar fór norðan.
Nú
koma þeir Már og Grís til Ávalda og voru sjö saman. Þeir settu
úti spjót sín. Grís átti gullrekið spjót. Nú sátu þeir að
málunum og fylgdi Már fyrir hönd Gríss. Ávaldi kvað Márs
forsjá á skyldu vera "ef yður líst svo og mun yður eigi frá
vísað."
Og
í það mund komu þeir Hallfreður og förunautur hans og sáu
spjótin.
Hallfreður
mælti: "Komnir munu hér menn nokkurir um langan veg og gættu
hesta okkarra en eg mun fara til dyngju Kolfinnu."
Og
svo gerir hann. Hann settist hjá henni og spurði hvað komið
væri, "en engi þekkt mun mér á þeim vera því að þeir munu
biðja þín og trúi eg að það mun eigi vel verða."
Kolfinna
segir: "Láttu þá fyrir því sjá er ráða eiga."
Hann
segir: "Finn eg að þér þykir nú þegar biðill þinn betri en
eg."
Hallfreður
setti hana í kné sér úti hjá dyngjuvegginum og talaði svo við
hana að allir sáu þeir er út gengu. Hann sveigir hana að sér
og verða þá einstaka kossar.
Nú
koma þeir Grís út.
Hann
mælti: "Hverjir eru þessir menn er hér sitja á dyngjuvegginum
og látast svo kunnlega við?"
Grís
var heldur óskyggn og súreygur.
Ávaldi
svarar: "Hallfreður er þar og Kolfinna dóttir mín."
Grís
mælti: "Er þetta vandi þeirra?"
"Oft
ber svo til," kvað Ávaldi, "en þú verður nú þetta vandræði af
að ráða er hún er þín festarkona."
Grís
svarar: "Auðsætt er það að við mig vill hann nú illt eiga og
er slíkt til hræsni gert."
Nú
ganga þeir Grís til hesta sinna.
Þá
mælti Hallfreður: "Vita skaltu það Grís að þú skalt fjandskap
minn hafa ef þú ætlar þér þenna ráðahag."
Már
mælti: "Engis munu þín orð metin Hallfreður um þetta mál og
mun Ávaldi eiga ráð dóttur sinnar."
Þá
kvað Hallfreður vísu:
Svo
nökkvi verðr sökkvis
sannargs
troga margra
ægileg
þess augum
allheiðins
mér reiði
sem
ólítill úti
ills
mest við för gesta,
stæri
eg brag fyrir brúði,
búrhundr
gamall stúri.
"Og
hirði eg ekki Blót-Már," segir Hallfreður, "hvað er þú leggur
til."
Már
sagði ef hann flimtaði hann að hann skyldi hart í móti taka.
Hallfreður kvaðst ráða mundu orðum sínum.
Hann
kvað þá vísu:
Ráða
rækimeiðar
randaliðs
að biðja,
ótti,
einkadóttur
Ávalds,
er það skaldi.
Síð
mun Surts um bíða,
svo
geta menn til hennar,
kvonar
byrr af kyrri
Kolfinnu
mér renna.
Hallfreður
reið þá í brott og var reiður.
Már
mælti þá: "Ríðum eftir þeim."
Og
svo gera þeir og voru níu saman. Fékk Ávaldi þeim tvo menn.
Ólaf
fóstra Hallfreðar grunaði um ferð þeirra Gríss og Márs. Hann
sendir þegar eftir Óttari og er þeir finnast segir Ólafur
honum að Hallfreður mun manna þurfa.
Nú
er að segja frá Hallfreði að þeir ríða tveir undan en níu
eftir.
Hallfreður
sér eftirreiðina og mælti: "Rennum eigi lengra undan."
Þeir
voru þá komnir hjá holti einu. Bjuggust þeir þar við og brutu
upp grjót. Nú koma þeir Grís að og sækja að þeim en þeir
verjast alldrengilega. En þó kom þar sem mælt er að ekki má
við margnum, og verða þeir Hallfreður handteknir og bundnir
báðir.
Þá
mælti Grís: "Menn ríða hér að oss og eru eigi færri en þrír
tigir og má vera að sigurinn verði skammær."
Þeir
Grís sneru aftur og riðu þá undan hart og yfir ána og var þar
götuskarð í bakka og vígi gott. Þar nema þeir staðar. Þá koma
þeir Óttar að ánni. Grís kvaddi Óttar og spurði hvað hann
vildi.
Óttar
mælti: "Hvar er Hallfreður frændi minn?"
Grís
segir: "Hann er bundinn en eigi drepinn hjá holti því er vér
fundumst."
Óttar
segir: "Óvirðulega hafið þér við hann búið eða viltu unna mér
eindæmis fyrir þetta?"
Grís
kvaðst hans orð mikils virða skyldu og að því sættust þeir og
skildu við svo búið. Óttar ríður nú aftur á veg og finnur
Hallfreð og leysir þá félaga.
Óttar
mælti: "Eigi er ferð þessi virðuleg orðin frændi."
Hallfreður
kvað eigi lofa mega "og eigi hirði eg faðir hversu þú gerir
gerð þessa ef Grís á eigi Kolfinnu."
Óttar
segir: "Grís skal konu eiga alls hann trúir mér til en þú
frændi skalt fara utan og leita þér meiri sæmdar."
Hallfreður
segir: "Hver mun mér þá trúr ef faðirinn bregst? Nú skal það
fyrri að hendi berast að eg bjóði Grísi hólmgöngu þegar eg sé
hann."
Nú
ríður Óttar heim en Hallfreður til Haukagils. Ólafi þótti illa
orðið hafa og þótti Hallfreður ótrúlegur að halda sættir og
sendi orð Óttari að honum leist vandræða líklegt. Þá komu orð
til Hallfreðar að faðir hans væri sjúkur og kvaðst vilja finna
hann og gera skipan sína.
Hallfreður
kom og þegar lét Óttar taka hann og fjötra: "Eru nú tveir
kostir, annaðhvort að sitja í fjötrum eða láta mig einn ráða
fyrir þína hönd."
Hallfreður
segir: "Eigi hefir þú þó í tveim höndum við mig en heldur
muntu ráða en eg sitji hér í fjötrum."
Þá
var fjöturinn af Hallfreði látinn.
Már
hafði inni boð þeirra Gríss og Kolfinnu og fór hún til bús með
Grísi út til Geitaskarðs. Ekki voru miklar ástir af hennar
hendi við Grís.
Ólafur
að Haukagili fýsti mjög Hallfreð frænda sinn utan að fara,
"skal eg fá þér fé svo að þú megir vel fara með góðum mönnum."
Faðir
hans fýsti hann mjög utan að fara. Óttar lauk upp gerð með
þeim Grís og gerði hundrað silfurs Hallfreði til handa.
Hallfreður
vildi það eigi hafa og mælti svo: "Sé eg elsku þína við mig
faðir. Munuð þér þessu ráða en svo segir mér hugur um að vor
vandræði verði löng."
Þá
fór Óttar einum vetri síðar suður til Norðurárdals.
5. kafli
Þetta
sumar fer Hallfreður suður til Hvítár og er hann kom til skips
kvað hann vísu:
Fús
em eg enn þótt ósa
áföll
drepi stáli,
mjög
skýtr Mörnar vakri,
minnast
við Kolfinnu,
því
að álgrundar endis
ættgóðrar
mér tróðu
betr
unnum nú nytja
nær
en heitið væri.
Hallfreður
fór utan og til Noregs. Hann sótti á fund Hákonar jarls hins
ríka er þá réð Noregi, gekk fyrir hann og kvaddi hann. Jarl
spurði hver hann væri.
Hann
kveðst vera íslenskur maður "en erindi er það herra að eg hefi
kvæði ort um yður og vildi eg hljóð fá."
Jarl
segir: "Líklegur ertu til að vera höfðingjadjarfur maður. Þann
veg ertu í bragði og skaltu víst hljóð fá."
Hallfreður
kvað kvæðið og var það drápa og flutti vel og skörulega. Jarl
þakkaði honum og gaf honum exi mikla silfurrekna og góð klæði
og bauð honum með sér að vera um veturinn og þá Hallfreður
það.
Um
sumarið fer Hallfreður til Íslands og kemur fyrir sunnan land
og hafði þá mikið fé. Síðan var hann í förum nokkura vetur og
var aldrei fyrir norðan land.
Og
eitt sumar er hann kom af Íslandi þá lágu þeir við Agðanes.
Þar hitta þeir menn að máli og spurðu tíðinda. Þeim var sagt
að höfðingjaskipti var orðið í Noregi. Var Hákon jarl dauður
en Ólafur Tryggvason kominn í staðinn með nýjum sið og
boðorðum. Þá urðu skiparar á það sáttir að slá í heit og
skyldi gefa Frey fé mikið ef þeim gæfi til Svíþjóðar en Þór
eða Óðni ef til Íslands kæmi en ef þeim gæfi eigi í brott þá
skyldi konungur ráða. Þeim gaf aldrei í brott og urðu að sigla
inn til Þrándheims og komu við höfn þá er á Flagða hét. Þar
lágu fyrir mörg langskip. Veður gerði á mikið um nóttina af
hafi svo að eigi hrifu akkerin við.
Þá
mælti einn af langskipamönnum: "Þessir menn eru illa staddir á
kaupskipinu og mun þeim eigi duga er veðrið stendur þar á sem
þeir liggja og skulum vér róa til þeirra."
Þeir
gengu á skip þrír tigir manna og sat einn í stafni. Og er þeir
komu til kaupskipsins mælti sá er í stafninum sat: "Þér eruð
illa komnir og er hér óhreint fyrir og skulum vér greiða ferð
yðra."
Sjá
var mikill vexti.
Hallfreður
mælti: "Hvað heitir þú?"
Hann
segir: "Eg heiti Akkerisfrakki."
Og
er þeir töluðust þetta við þá gekk í sundur akkerisstrengurinn
en sá er í stafninum sat kastaði sér þegar fyrir borð og
kafaði eftir strengnum í storminum og náði þegar. Var þá upp
dregið akkerið.
Þá
kvað Hallfreður stöku þessa:
Færum
festar vorar,
ferr
sjóroka að knerri.
Svörð
tekr heldr að herða.
Hvar
er Akkerisfrakki?
Úlpumaður
segir:
Enn
í úlpu grænni
eg
fæ dreng til strengjar
þann
er hnakkmiða hnykkir.
Hér
er Akkerisfrakki.
Þeir
reru fyrir skipinu í gott lægi. Ekki vissu kaupmenn hver þessi
hafði verið en síðar var þeim sagt að konungurinn sjálfur
hafði hjálpað þeim.
Eftir
það lögðu þeir inn til Hlaða. Þar var Ólafur konungur fyrir og
var honum sagt að þessir menn mundu vera heiðnir og nýkomnir
af Íslandi. Hann stefnir þeim á sinn fund og er þeir komu þar
taldi konungur trú fyrir þeim og bað þá kasta forneskju og
illum átrúnaði en trúa á sannan guð, skapara himins og jarðar.
Hallfreður
svarar máli konungs: "Eigi mun það kauplaust konungur að eg
taki þann sið er þú boðar."
Konungur
mælti: "Hvað er til mælt?"
Hann
svarar: "Þú skalt mig aldrei láta þér af höndum hvað illt sem
mig hendir."
Konungur
segir: "Þann veg værir þú í bragði að fárs mundir þú svífast
og mart láta þér sóma."
Þá
gekk Hallfreður í brott og vildi síðar við konung tala.
Konungur spyr þá hvar Íslendingur væri og bað ganga eftir
honum. Nú kom Hallfreður til konungs annan tíma.
Þá
mælti konungur: "Tak nú skírn og skal það nú til vinna er þú
beiðist eða hvað heitir þú?"
Hann
kvaðst Hallfreður heita.
"Þú
ert einarðlegur maður og skörulegur og þjóna eigi lengur
fjandanum."
Hallfreður
segir: "Sú er bæn mín önnur herra að þú haldir mér undir
skírn."
Konungur
segir: "Þú beiðist svo margs að eigi má við þig fást."
Þá
mælti biskup: "Ger þetta sem hann beiðist. Því meira gerir guð
fyrir þína skyld sem þú gerir fleira til eflingar kristni
guðs."
Eftir
þetta heldur konungur Hallfreði til skírnar og fær hann síðan
í hendur Þorkatli nefju bróður sínum og Jósteini og lét þá
kenna honum heilug fræði. Þetta sannar Hallfreður í kvæði því
einu er hann orti um Ólaf konung:
Hlaut
eg þann er æðstr var einna,
eg
sanna það, manna
undir
niðbyrði Norðra
norðr
guðföður orðinn.
6. kafli
Nú
var Hallfreður með konungi um hríð og orti um hann flokk og
bað sér hljóðs. Konungur kvaðst eigi hlýða vilja.
Hallfreður
segir: "Þú munt því ráða en týna mun eg þá þeim fræðum er þú
lést mér kenna ef þú vilt eigi hlýða kvæðinu og eru þau fræði
ekki skáldlegri er þú lést mig nema en kvæðið er, það er eg
hefi um þig ort."
Ólafur
konungur mælti: "Sannlega máttu heita vandræðaskáld og skal
heyra kvæðið."
Hallfreður
flutti skörulega kvæðið og var það drápa.
Og
er lokið var mælti konungur: "Þetta er gott kvæði og þigg af
mér sverð búið en vandgætt mun þér til þess því að engi fylgir
umgerðin og haf svo þrjá daga og þrjár nætur að engum verði
mein að."
Þá
kvað Hallfreður vísu:
Veit
eg vísu skreyti
víðlendr
konungr sendi
nökktan
hjör af nökkvi.
Nú
flaustr burar austra.
Verða
hjölt fyrir herði,
höfum
gramr kera framdan,
skölkving
þá eg, of skjalga,
skrautleg,
konungsnauti.
Vel
gat Hallfreður varðveitt sverðið.
Og
allmjög lofaði hann goðin og kvað mönnum það illa takast er
menn löstuðu þau. Hann kvað þetta svo að konungur heyrði einn
tíma:
Hitt
var fyrr er harra
Hliðskjálfar
gat eg sjálfan,
skipt
er á gumna giftu,
geðskjótan
vel blóta.
Konungur
mælti: "Allill vísa og bæt yfir."
Hallfreður
kvað enn:
Öll
hefir ætt til hylli
Óðins
skipað hljóðum,
algildar
man eg, aldar,
iðjur
vorra niðja.
En
trauðr, því að vel Viðris
vald
hugnaðist skaldi,
legg
eg á frumver Friggjar
fjón
því að Kristi þjónum.
Þá
mælti konungur: "Allmikinn hug leggur þú á goðin og er það
illa virðanda fyrir þér."
Þá
kvað Hallfreður vísu:
Höfnum,
hölda reifar,
hrafnblóts
goða nafni,
þess
er ól við lof lýða
lóm,
úr heiðnum dómi.
Konungur
segir: "Ekki batnar um og kveð vísu til yfirbóta."
Hallfreður
kvað vísu:
Mér
skyli Freyr og Freyja,
fjarð
lét eg af dul Njarðar,
líknist
gröm við Grímni,
gramr
og Þór hinn rami.
Krist
vil eg allrar ástar,
erumk
leið sonar reiði,
vald
á frægt und foldar
föður,
einn og guð kveðja.
Þá
mælti konungur: "Slíkt er vel kveðið og betra en eigi og yrk
enn."
Hallfreður
kvað vísu:
Sá
er með Sygna ræsi
siðr
að blót eru kviðjuð.
Verðum
flest að forðast
fornhaldin
sköp norna.
Láta
allir ýtar
Óðins
orð fyrir róða.
Nú
em ek neyddr frá Freyju
niðjum
Krist að biðja.
Óttar
hét maður upplenskur. Kálfur hét bróðir hans. Þeir voru
hirðmenn konungs og vasklegir menn og vel metnir af konungi.
Þeir öfunduðu Hallfreð og þótti þeim hann hafa of mikinn gang
af konungi. Og eitt kveld er þeir drukku slógu þeir í deilu
mikla og var konungur hjá og bar konungur viðtal þeirra í hag
Óttari því að hann sá að honum entist eigi þrætan við Hallfreð
og gekk brott síðan. Og eftir það sló í kappmæli með þeim en
svo lauk með þeim að Hallfreður hljóp upp og hjó Óttar
banahögg með exinni Hákonarnaut. Kálfur þreif Hallfreð og menn
með honum og settu í fjötur. En það voru lög að þann mann
skyldi drepa er mann vægi í konungs herbergi. Síðan fundu þeir
konung og kváðu þá sýnast hvað manna Hallfreður var og sögðu
hann bleðja mundu ætla hirðina og rægðu hann nú sem mest máttu
þeir til þess, að konungur bað láta drepa hann um morguninn
eftir. Kálfur varð við þetta glaður. Og um daginn eftir leiddu
þeir hann út og til dráps.
Hallfreður
mælti: "Hvar er konungur?"
Þeir
svara: "Hvað mundi þig það skipta? Dæmdur ertu nú til dauða."
Þá
mælti Hallfreður: "Er sá dauður er eg vann á?"
Þeir
kváðu svo vera.
Hallfreður
mælti: "Ef sá er nokkur hér við staddur er eg hefi vel til
gert þá launi það svo að leiði mig þar í nánd sem konungur er
og vil eg þakka hérvist mína."
Þá
kom það fram sem mælt er að hver á sér vin með óvinum, og voru
þeir þar að við það kenndust að hann hafði vel til gert og
leiddu hann þar hjá er konungur var og biskup.
Og
er Hallfreður kom gegnt þeim þá mælti hann: "Minnist þess
herra er þér hétuð að segja mig yður aldrei afhendan og verðið
eigi heitrofa við mig. Sá annar hlutur að þú ert guðfaðir
minn."
Sigurður
biskup mælti við konung: "Lát hann njóta slíkra hluta."
"Svo
skal vera," segir konungur og bað þá þegar leysa hann.
Nú
var svo gert og líkaði Kálfi allþungt. Nú var Hallfreður enn
með hirðinni og kom sér brátt vel en þó var konungur færri við
hann en áður og bætti þó víg þetta fyrir hann.
Það
var einn dag að Hallfreður gekk fyrir konung og féll til fóta
honum. Konungur sá að hann felldi tár og spurði hvað honum
þótti svo mikið.
Hann
segir: "Nær fellur mér reiði þín og henni vildi eg af mér
koma."
Konungur
segir: "Svo skal vera. Þú skalt fara sendiför mína eftir jól
og skulum við þá sáttir ef þú kemur ferðinni fram eða hvort
áttu sverð það er eg gaf þér?"
"Á
eg víst herra og aldrei hefir það komið í umgerð."
Konungur
mælti: "Það samir vel að vandræðaskáldið eigi vandræðagripinn
eða muntu kunna að nefna sverð í hverju vísuorði?"
Hallfreður
segir: "Við mun eg leita ef þér viljið og allt mun eg til
vinna að koma af mér yðvarri reiði."
Konungur
mælti: "Kveð nú þá."
Hallfreður
kvað þá vísu:
Eitt
er sverð það er sverða
sverðauðgan
mig gerði.
Fyrir
svip-Njörðum sverða
sverðótt
mun nú verða.
Muna
vansverðað verða,
verðr
em eg þriggja sverða,
jarðarmens
að yrði
umgerð
að því sverði.
Konungur
þakkaði honum og kvað honum mikla íþrótt í skáldskap sínum og
gaf honum umgerð mjög vandaða "og þó að svo beri til," segir
konungur, "að þig hendi það víti að þú komir eigi undir borð
eða til kirkju þá skal þér framar upp gefa en öðrum."
Hallfreður
þakkaði konungi.
Eitt
sinn var það að konungur spurði hvar Hallfreður væri.
Kálfur
segir: "Hann mun enn hafa vanda sinn að blóta á laun og hefir
hann líkneski Þórs í pungi sínum af tönn gert og ertu of mjög
dulinn að honum herra og færð hann eigi sannreyndan."
Konungur
bað Hallfreð þangað kalla og svara fyrir sig. Hallfreður kemur
þar.
Konungur
mælti: "Ertu sannur að því er þér er kennt að þú blótir?"
"Eigi
er það satt herra," segir Hallfreður. "Skal nú rannsaka pung
minn. Hefi eg hér ekki undanbragð mátt hafa þó að eg vildi."
Nú
fannst engi sá hlutur í hans valdi er til þess væri.
"Þetta
er dauðaróg," segir Hallfreður, "og mun Kálfi að illu verða ef
eg nái svo til hans. Hann kom mér enn fyrri til dauða."
Konungur
mælti: "Eigi er ykkur saman vært og skal Kálfur fara til búa
sinna. En þú Hallfreður skalt fara sendiför mína til Upplanda
til Þorleifs hins spaka. Hann vill eigi við kristni taka og
skaltu drepa hann eða blinda ella. Hann er dótturson Þorleifs
Hörða-Kárasonar. Skal eg til leggja mína giftu og haf menn svo
marga sem þú vilt."
Hallfreður
kvað ferðina óríflega "en allt að einu skal fara sem þér
viljið. En Jósteinn móðurbróðir yðvar vil eg að fari með mér
og bekkjunautar mínir þeir sem eg kýs til svo að vér séum
saman fjórir og tuttugu."
"Ger
sem þér líkar," segir konungur, "en sent hefi eg fyrri menn
til Þorleifs og hafa þeir engu til leiðar komið því er eg
vildi að væri."
Síðan
riðu þeir Hallfreður brott frá konungi og til þess er þeir
komu í skóg þann er skammt var frá bæ Þorleifs. Þá stigu þeir
af hestum sínum í rjóðri einu.
Þá
mælti Hallfreður: "Hér skuluð þér bíða mín til hinnar þriðju
sólar en fara þá aftur ef eg kem eigi hér."
Jósteinn
bauð að fara með honum. Hann vildi það eigi. Hallfreður tók þá
stafkarlsgervi. Hann lét leggja lit í augu sér og sneri um á
sér hvörmunum og gerði mikla breytni á yfirlitum sínum. Langan
bagga hafði hann á baki og var þar í sverð hans konungsnautur.
Hann gekk nú að bæ Þorleifs og að haugi þeim er hann sat á og
var það snemma dags. Þorleifur heilsaði honum og spurði hver
hann væri.
"Eg
er fátækur maður einn," segir hann. "Kom eg til konungs og
vildi hann mig til trúar brjóta en eg hljóp á brott leynilega
og drap eg áður einn konungsmann. Nú vildi eg biðja þig
nokkurrar ásjá."
Þorleifur
svarar fá um það en spyr hann margs um lönd eða hafnir. Hann
leysti úr öllu fróðlega.
Þorleifur
mælti: "Var nokkur sá maður með konungi er Hallfreður heitir?"
Hann
svarar: "Heyrði eg hans getið og sjaldan að góðu."
Þorleifur
mælti: "Sá maður dreymir mig jafnan en þó er það ómerkilegt.
En koma munu konungsmenn hingað brátt. En hann Hallfreður er
svo manna að eg skil síst hvað manna að er, að frásögn manna,
og horfin heilla er mér hvað sem eftir kemur."
Þá
grunar Þorleif hver maðurinn var og vildi upp standa en
Hallfreður þreif til hans og rak hann undir sig er hann var
miklu sterkari. Þeir ultu ofan fyrir hauginn og varð
Hallfreður efri. Hann setti hæl á augað Þorleifi og hleypti úr
honum auganu.
Þorleifur
mælti þá: "Konungs gifta fylgir þér en við þig hefi eg lengi
áhugafullur verið en nú er það fram komið. En veit eg að þú
gerir konungs boðskap að blinda mig eða drepa. En nú vil eg
biðja þig að þú gefir mér annað auga en eg vil gefa þér hníf
og belti og er hvortveggja góður gripur og koma þér þó að liði
ef svo ber til og ertu ekki ólíklegur að þurfa þess við."
Hallfreður
kvaðst eigi vilja svo brjóta konungs boðskap að þiggja af
honum góðgripi til þess, kvaðst heldur vilja taka það á sig að
gefa honum annað augað. Þorleifur þakkaði honum og skildu þeir
að því. Fer Hallfreður til sinna manna og varð þar
fagnafundur. Þorleifur gekk heim til bæjar og sagði engum
manni áverkann fyrr en þeir voru langt á brottu.
Þeir
Hallfreður riðu leið sína þar til er þeir komu til Kálfs um
farinn veg.
Þá
mælti Hallfreður: "Drepa skal þenna hinn illa mann."
Jósteinn
mælti: "Ger eigi það. Blöndum eigi giftu við ógiftu."
Hallfreður
segir: "Eigi hefir hér að högum verið til skipt. Góður drengur
er meiddur en mannfýlan lifir" og þreif hann höndum og stakk
úr honum augað.
Kálfur
varð hryggur við.
Hallfreður
mælti: "Nú sýnir þú enn greyskapinn."
Síðan
fóru þeir brott og komu til konungs og sat hann að tafli. Þeir
kvöddu hann. Konungur spurði tíðinda. Hallfreður segir alla
sögu konungi.
Konungur
mælti: "Vel hefir þú gert og sýn mér augað."
Síðan
tók Hallfreður augað Kálfs.
Konungur
mælti: "Hvar fékkstu slíkt auga?"
"Þetta
er Þorleifs auga."
"Nei,"
segir konungur, "fleira muntu unnið hafa en eg bauð þér."
Síðan
sýndi hann auga Þorleifs.
Þá
mælti konungur: "Þetta er hans auga og er enn ekki betur en
hálfgert."
Hallfreður
mælti: "Nú galt eg Kálfi er hann stangaði mig spjótsoddinum þá
er hann leiddi mig til bana" og segir nú allt sem farið hafði.
Konungur
mælti: "Viltu nú fara til Þorleifs öðru sinni?"
Hallfreður
segir: "Eigi vil eg þangað fara en fara vil eg til Kálfs og
stinga úr honum annað augað."
Konungur
kvað þar standa skyldu. Tók Hallfreður þá sæmdir með konungi.
7. kafli
Það
var eitt sinni er Hallfreður var fyrir konungi að hann mælti:
"Leyfi
vildi eg hafa í sumar að sigla austur til Eyrar kaupferð."
Konungur
segir: "Eigi skal það banna þér en svo segir mér hugur um að
eigi sé þér óannara aftur til mín en þér er í brott og mart
mun yfir þig líða."
Hallfreður
segir: "Til þess verður nú að hætta."
Síðan
fór Hallfreður á brott. Hann spurði að Sigvaldi jarl var
höfðingi mikill. Hallfreður kemur á fund hans og kvaðst hafa
ort kvæði um hann.
Jarl
spyr: "Hver ertu?"
Hann
segir.
"Ertu
skáld Ólafs konungs?"
"Svo
er," segir Hallfreður, "og vildi eg hljóð fá."
Jarl
mælti: "Hví mun mér það eigi vel sama er Ólafi konungi líkar
vel?"
Hallfreður
kvað kvæðið og var það flokkur. Jarl þakkaði honum kvæðið og
gaf honum gullhring þann er vó hálfa mörk og bauð honum þar að
vera með sér.
Hallfreður
þakkaði honum boð "en til Svíþjóðar skal nú fyrst fara."
Jarl
bað hann ráða.
Það
sama haust fór hann í Vík austur og brutu þar skipið austan
fjarðar og týndu miklu fé. Þaðan fór Hallfreður til
Konungahellu og dvaldist þar um hríð.
Og
einn dag er Hallfreður gekk úti að kaupstefnu þá gekk maður í
móti honum. Þeir kvöddust og spurði Hallfreður hver hann væri.
Hann
kvaðst Auðgísl heita og kominn vestan af Englandi "og skortir
mig eigi fé eða er þetta Hallfreður vandræðaskáld?"
Hann
kvað svo vera.
"Eg
hefi frétt," kvað Auðgísl, "að þú hefir hitt í fjártjón eða
viltu slá kaupi við mig að fara austur til Gautlands með mér
til veturvistar en eg skal gefa þér tíu merkur silfurs til
fylgdar því að mér er sagt að þín fylgd sé fé kaupandi?"
Hallfreður
kvaðst það vilja.
Vegurinn
var óhreinn og hurfu margir aftur. Þeir Hallfreður höfðu fimm
klyfjahesta og einn að ríða, fóru nú austur á markirnar.
Og
einn dag sáu þeir að maður fór móti þeim. Þeir spurðu hver
hann væri. Hann kvaðst Önundur heita.
Hann
var mikill vexti og kvaðst vildu fara með þeim ef þeir gæfu
honum leigu nokkura, "eru mér hér vegir allir kunnigir."
Auðgísli
kvaðst lítið um hann, lést eigi vita hver þegn hann væri.
Hallfreður var eggjandi að við honum væri tekið og það varð og
skyldi hann hafa tólf aura silfurs. Hallfreður var þá sem
gildastur en Auðgísl var við aldur. Nú fóru þeir sem leið lá.
Önundur fór fyrir um daginn og komu að sæluhúsi um kveldið.
Þá
mælti Hallfreður: "Nú munum vér eiga þrenn verk og skaltu
Önundur viða heim, þú hefir exi mikla. Auðgísl skal eld gera
en eg skal vatn sækja."
Þá
mælti Önundur: "Það er þá best að viða ótæpilega til húss því
að margir þurfa eldiviðinn þeir er hér koma."
Hallfreður
kvað það vel sagt.
Þá
mælti Auðgísl: "Fúsari væri eg að taka vatnið en þú gerðir eld
Hallfreður."
"Látum
þá svo vera," segir hann.
Síðan
kveikti hann eldinn en Önundur fór með byrði og gerði það hver
er boðið var. Hallfreði þótti þeim seint verða. Hann grúfði að
eldinum og hafði kastað belti sínu á háls sér og var þar
hnífur mikill er mönnum var þá títt að hafa og var hnífurinn á
bak honum. Nú kemur Önundur inn með byrði. Hann hleypur þegar
að honum Hallfreði og hjó til hans tveim höndum með exinni og
kom í tygilhnífinn.
En
Hallfreður greip til fóta honum og hét á guð og mælti: "Dugi
þú mér Hvíta-Kristur ef þú ert svo máttugur sem Ólafur
konungur segir. Lát eigi þenna mann stíga yfir mig."
Síðan
réttist Hallfreður upp undir honum með fulltingi guðs og giftu
Ólafs konungs. Tók hann þá Önund upp og rak niður svo mikið
fall að hann var í óviti og hraut exin úr hendi honum.
Hallfreður hafði sax eitt lítið og brá því og þá vitkaðist
Önundur.
Hallfreður
spyr: "Hefir þú drepið Auðgísl?"
Hann
kvað svo vera. Þá lagði Hallfreður saxinu í gegnum hann og dró
hann út úr skálanum en byrgði síðan fast. Og um nóttina braust
Önundur á hurðina en Hallfreður stóð við innan og gekk því til
dags. Um morguninn fann Hallfreður Auðgísl dauðan við lækinn
og tók af honum hníf og belti og hafði með sér. Hann bjó um
Auðgísl eftir siðvenju. Sá hann nú að Önundur mundi verið hafa
illvirkinn og drepið menn til fjár sér og það hús var auðigt
að fé og varningi.
Hallfreður
kvað þá vísu:
Ól
eg, þar er aldrei véla
auðgildanda
vildag,
hyrjar
njót á hvítu
hrafnvíns
fé mínu.
Vann
eg til góðs við grenni
gunnmárs,
sem eg kunni,
en
fúrskerðir færði
fjörtál
að mér hjörva.
Síðan
reið hann austur á fjallið og hitti illar leiðir.
8. kafli
Að
kveldi eins dags heyrði hann við felldan og reið þangað eftir.
Þá varð rjóður fyrir honum og var þar maður og hjó við. Hann
var búandlegur og rauðskeggjaður, skolbrúnn og heldur
illmannlegur. Sjá maður heilsar honum. Hallfreður spyr hver
hann væri.
Hann
kvaðst Björn heita "og far með mér til gistingar."
Hann
þiggur það. Björn var allbeinn við hann. Bóndi lá í lokhvílu
en Hallfreður í annarri. Hann grunar Björn og stóð upp undir
tjaldið með brugðið konungsnaut. Og í því lagði Björn í rúmið
en Hallfreður hjó hann banahögg. Húsfreyja bað menn upp standa
og taka þenna glæpamann. Menn báru klæði á vopn Hallfreðar og
var hann handtekinn og bundinn.
Síðan
voru send orð þeim manni er Ubbi hét. Hann átti sér bróður er
Þórir hét. Hann var þar höfðingi. Hann átti dóttur er
Ingibjörg hét. Hana hafði átt Auðgísl og var hinn mesti
kvenskörungur. Nú koma menn til fundar þessa að dæma Hallfreð.
Þar kom Þórir og Ubbi og Ingibjörg. Og kom það ásamt með þeim
að hafa Hallfreð til blóta. Hann gekk að Ingibjörgu og kvaddi
hana og kvaðst hafa þar gripi er Auðgísl hafði sent henni.
Hún
segir: "Kenni eg gripina."
Hann
segir henni alla söguna og kvað hann vísu:
Svo
hef eg hermila harma,
hug-Baldr,
í gný skjalda,
baugs
erum svipr að sveigi,
sárlinns,
rekið minna
en
lofhnugginn liggja
lét
eg Baldr roðins skjaldar,
ek
hefndi svo okkar
Auðgísli
hjá dauðan.
Ingibjörg
spurði vandlega að um atburði.
Ek
bar elda stökkvi
ölna
skeiðs af reiði
lagði
eg hendr að hundi,
hunds
glævara mundar.
Stendr
ei sá sendir
síðan
Hlakkar skíða
bál
rauð eg Yggjar éla,
éls
við þjóð á vélum.
Ingibjörg
mælti: "Sé eg að þú munt með sönnu fara og skaltu fara heim
með mér."
Fór
Hallfreður heim með henni og var þá stirður af böndum og lét
hún næra hann. Þau Þórir og Ingibjörg sendu menn á fjallið og
fundu þar þau merki öll er Hallfreður hafði sagt. Var það
allmikið fé er þaðan var flutt. Var það allra samþykki
landsmanna að Hallfreður tæki fé það er Önundur hafði átt og
héldu þeir mikið tal af honum.
Hallfreður
lagði hug á Ingibjörgu og bað hennar.
Hún
segir: "Eigi mun þá vel fyrir öllu séð er þú ert kristinn og
hér útlendur en þú skalt finna föður minn ef þú vilt."
Hann
gerir svo og tjár þetta fyrir Þóri og verða þeir vel ásáttir.
Gekk svo til að Hallfreður fékk Ingibjargar og unni mikið. Þar
stóð saman auður mikill og hafði Hallfreður þar virðingar
miklar. Það hafði hann helst til trúar að hann blés í kross
yfir drykk sínum áður hann drakk en fátt söng hann.
Eitt
sinn talaði hann fyrir Ingibjörgu: "Eg ætla mér að fara á fund
Ólafs Svíakonungs og færa honum kvæði er eg hefi ort um hann."
Hún
kvaðst ætla að hann mundi heyra vilja lofið.
9. kafli
Það
sumar fór Hallfreður til Svíþjóðar og kom á fund konungs og
kvaddi hann. Konungur spyr hver hann væri. Hann segir til sín.
Konungur
mælti: "Víða ertu nefndur og skáld göfugra manna."
"Kvæði
hefi eg ort um yður og vildi eg hljóð fá."
Konungur
játti því. Síðan flutti hann kvæðið. Konungur bauð honum með
sér að vera og gaf honum góðar gjafir.
Hallfreður
kvaðst eiga bú og konu í hans skattlandi "og vil eg þangað
vitja."
Konungur
bað hann vel fara.
Hallfreður
kom aftur til konu sinnar. Þar var hann tvo vetur og á hinum
þriðja vetri var það eina nótt að honum þótti Ólafur konungur
koma til sín og var reiðulegur og kvað hann mjög kasta kristni
sinni: "Far á fund minn og lið þitt."
Hallfreður
andvarpaði mjög er hann vaknaði. Ingibjörg spyr hvað hann
hefði dreymt.
Hann
segir henni "eða hversu mun þér um gefið, viltu nokkuð fara
með mér? Á eg þér mikið gott að launa og þá fengi eg þér helst
umbunað ef þú tækir við trú."
Hún
segir: "Þess er von að þig muni þangað langa og skil eg að sá
mun vera siður miklu betri og mun eg með þér fara."
Auðgísl
hét son þeirra og var hann þá tvævetur. Þau fara á fund Ólafs
konungs og tók hann vel við Hallfreði og ávítaði hann þó mjög
og bað prest skrifta honum. Ingibjörg fæddi þá sveinbarn og
hét sá sveinn Hallfreður og gaf faðir hans honum nafn sitt.
Var þá Ingibjörg skírð og synir hennar báðir.
Ólafur
konungur mælti þá við Hallfreð: "Nú skaltu bæta yfir við guð
er þú hefir lengi verið með heiðnum mönnum og gengið mjög af
trúnni."
Hann
kvaðst það gjarna vilja og orti Uppreistardrápu, gott kvæði.
Þann vetur andaðist Ingibjörg og þótti Hallfreði það allmikill
skaði.
Um
vorið sagði hann konungi að hann lysti að sjá Ísland.
Konungur
sagði að það skyldi sem hann vildi: "Hefi eg þig reynt að
góðum dreng en koma mun þar að þú mundir heldur vilja með mér
vera að því skaplyndi sem þú hefir. En þessa gripi skaltu
þiggja af mér, pellsskikkju, hring og hjálm, því að óvíst er
um fundi okkra. Lóga eigi gripunum," segir konungur, "því að
með þér skulu til kirkju fara en í kistu leggja hjá þér ef þú
andast í hafi."
Hringurinn
stóð þrjá aura.
Hallfreði
þótti mikið fyrir skilnaði við konung. Auðgísl son Hallfreðar
fór austur til Þóris móðurföður síns. Hallfreði syni sínum
fékk hann fóstur gott.
Hallfreður
lét í haf. Hann kom skipi sínu í Kolbeinsárós eftir þing.
Hann
mælti til skipara sinna: "Ferð liggur fyrir mér suður um heiði
að finna föður minn og skulum vér ríða tólf saman."
Nú
var skip upp sett en þeir ríða á brott tólf saman og sneru
vestur til Langadals. Þeir voru allir í litklæðum og stefndu
til selja Gríss. Kolfinna var þar og konur nokkurar hjá henni.
Þar voru fleiri sel og stóðu selin í Laxárdal milli Langadals
og Skagafjarðar. Sauðamaður Kolfinnu sagði að tólf menn riðu
að selinu og voru allir í litklæðum.
Hún
svarar: "Þeir munu eigi kunna leiðina."
Hann
segir: "Kunnlega ríða þeir þó."
Nú
koma þeir til seljanna. Kolfinna fagnar vel Hallfreði og
frétti tíðinda.
Hann
svarar: "Tíðindi eru fá en í tómi munu sögð vera og viljum vér
hér í nótt vera."
Hún
svarar: "Það vildi eg að þú riðir til veturhúsa og mun eg fá
þér leiðsögumann."
Hann
kvaðst þar vera vilja.
"Gefa
munum vér yður mat," sagði hún, "ef þér viljið þetta eitt."
Nú
stíga þeir af hestum sínum.
Og
um kveldið er þeir voru mettir sagði Hallfreður: "Það ætla eg
mér að liggja hjá Kolfinnu en eg lofa félögum mínum að breyta
sem þeir vilja."
Þar
voru fleiri sel og er svo sagt að hver þeirra fengi sér konu
um nóttina.
En
er þau komu í sæng, Hallfreður og Kolfinna, spyr hann hversu
mart væri um ástir þeirra Gríss. Hún kvað vel vera.
Hallfreður
segir: "Vera má að svo sé en annað þykir mér finnast á vísum
þeim er þú hefir kveðið til Gríss."
Hún
kvaðst engar kveðið hafa.
Hann
segir: "Eg hefi litla stund hér verið og hefi eg heyrt
vísurnar."
"Lát
mig heyra," segir Kolfinna, "hverninn verki sá er að mér er
kenndur."
Leggr
að lýsibrekku
leggjar
íss af Grísi,
kvöl
þolir Hlín hjá honum,
heitr
ofremmdar sveiti.
En
dreypileg drúpir
dýnu
Rán hjá hánum,
leyfi
eg ljósra vífa
lund,
sem álft á sundi.
"Ekki
er slíkt bót annars og mikið undur að hraustur maður vill
slíkt gera."
Hallfreður
segir: "Enn hefi eg heyrt aðra:"
Þrammar
svo sem svimmi
sílafullr
til hvílu
fúrskerðandi
fjarðar
fúlmár
á tröð báru
áðr
en orfa stríðir
ófríðr
þorir skríða,
hann
era hlaðs við Gunni
hvílubráðr,
und váðir.
Kolfinna
segir: "Ekki mun Grís yrkja um þig og sæmdi þér betur að
óvingast eigi svo við hann því að eigi veit hvar manni mætir."
Hallfreður
kvað vísu:
Lítt
mun halr inn hvíti
hjálmgrandr
fyrir búr skálmast,
hann
muna aura Eirar
án,
og Strútr hinn gráni.
Þótt
orfþægir eigi
ófríðr
stöðul víðan
hirðandi
nýtr hjarðar
hjörfangs,
og kví langa.
Kolfinna
styggðist þá við.
Hallfreður
kvað vísu:
Kolfinna
lést kenna,
kveð
eg um hlut þenna,
hvat
kveða vitru vífi
valda,
fúlt af skaldi.
Enn
af ungum svanna
auðhnykkjanda
þykkir,
óð
em eg gjarn að greiða,
ganga
dýrlegr angi.
Smalamaður
reið brott um nóttina og sagði Grís hvað komið var en hann
reið heiman við tuttugu menn.
Snemma
um morguninn búast þeir Hallfreður og áður hann steig á hest
kvað hann vísu:
Lítt
hirði eg, lautar
lundr
hefir hætt til sprunda
viggs,
þótt verði hogginn
varrar,
í höndum svarra
ef
eg næði, Sif slæðu,
sóma,
karms, meðal arma.
Máttkat
eg láss um ljósa
lind
oftrega bindast.
Síðan
hljóp hann á bak og brosti.
Kolfinna
mælti: "Hví brosir þú nú?"
Hann
kvað vísu:
Veitkat
eg hitt hvað verða
ver
glóðar skal tróðu,
renni
ást til Unnar
unnar
dags, á munni
ef
fjölgegnir fregna
fagnendr
jötuns sagna,
fló
eg af galtar grísi
geitbelg,
hvað mig teitir.
Hallfreður
vildi gefa Kolfinnu skikkjuna konungsnaut en hún vildi eigi
þiggja.
Og
áður þeir riðu brott kvað hann vísu:
Heim
koma hirði-Naumur
hams
er góðr á fljóðum,
sævar
báls frá seljum
sléttfjallaðar
allar.
Nú
sel eg af þótt ýfist
ölbekkjar
Syn nakkvað,
hverr
taki seggr við svarra
sínum,
ábyrgð mína.
Eftir
það ríða þeir á brott.
10. kafli
Nú
kemur Grís til seljanna. Kolfinnu var skapþungt. Grís sá það.
Hann
kvað vísu:
Nú
þykkir mér nokkur,
námskorð,
vera orðinn,
lít
eg á sumt um sveitir,
sveimr,
meðan eg var heiman.
Hér
hafa gestir gerva,
gengr
út kona þrútin,
þerrir
sjálegr svarri,
slaug,
þunglega augu.
Þar
var með Grísi Einar son Þóris Þrándarsonar. Grís vill eftir
ríða en Kolfinna latti og kvað eigi víst hvort hans hlutur
batnaði við. Grís vill þó eftir ríða. Þeir riðu fram hjá
Auðólfsstöðum til Blöndu. Þá voru þeir Hallfreður komnir á
miðja ána. Þá skaut Grís spjóti til Hallfreðar en hann tók á
lofti og skaut aftur til Gríss en Einar brá við exi. Spjótið
kom fyrir brjóst Einari og fékk hann bana. Grís kvað Hallfreð
renna. Hann kvaðst eigi mundu fara lengra en af ánni og bað þá
að sækja en Grís reið eigi að. Þá lögðu menn það til að
Hallfreður skyldi bæta Grísi fyrir ósóma þann allan er hann
hafði gert honum. Hallfreður spyr hvers hann beiddist.
Grís
svarar: "Því mundi eg una ef eg hefði hringa báða, jarlsnaut
og konungsnaut."
Hallfreður
svarar: "Fyrr mun annað að berast."
Og
skildu við það.
Hallfreður
reið suður til bróður síns, en þá var faðir hans andaður, og
var þar um veturinn.
Og
um vorið er hann fór norður þá rak á fyrir þeim hríð.
Hallfreður kvað það vera gjörningaveður. Þeir riðu ofan eftir
Vatnsdal þar til að fyrir þeim varð einn garður og spruttu þar
upp tuttugu menn. Þar var kominn Már af Mársstöðum. Hann
hleypur fyrir Hallfreð en Hallfreður höggur þegar til hans en
Már brá fyrir blóttrugli og varð hann ekki sár. Hallfreður
reið þá úr garðshliðinu.
Már
kallaði: "Sækjum að þeim."
Hallfreður
kvað vísu:
Mjök
tegast sveimasökkvir,
snót,
verð eg þegns fyrir hótum,
vér
munum dag hvern dýra,
dulrækinn
mig sækja.
Heldr
mun hæli-Baldri
hrævinns
fyrir því minna,
von
erumk slíks, að sleikja
sinn
blóttrygil innan.
Skildu
þeir við svo búið.
Húnröður
hét maður er bjó að Móbergi. Grís var þingmaður hans. Þorkell
krafla bjó þá að Hofi en Ingólfur var dauður.
Þenna
vetur orti Hallfreður vísur um Grís og er Grís frá það fór
hann til móts við Húnröð og bað hann ráðagerðar "því að
Hallfreður herðir að eins fjandskap við mig."
Húnröður
segir: "Þess fýsi eg þig að þú búir mál til og stefnir
Hallfreði til Húnavatnsþings."
Grís
gerði svo, reið suður um vorið til Hreðuvatns því að þeir
Galti og Hallfreður bjuggu þar þá. Grís stefndi Hallfreði um
víg Einars til Húnavatnsþings.
Og
er þeir voru brottu mælti Galti við Hallfreð: "Hver er
tilætlan þín um mál þetta?"
Hann
svarar: "Eg ætla að sækja traust Þorkels mágs míns."
Þeir
riðu sunnan um vorið og voru saman þrír tigir. Þeir gistu að
Hofi. Hallfreður spurði Þorkel hvert traust hann skyldi þar
eiga. Þorkell kvaðst mundu veita að málum ef boðin væri nokkur
sæmd. Nú koma menn til þings og á þinginu gengu þeir
Hallfreður og Galti til búðar Þorkels og fréttu hvar koma
skyldi.
Hann
segir: "Eg mun bjóðast til gerðar ef þér viljið það
hvorirtveggju og mun eg þá leita um sættir."
Ganga
þeir nú út úr búðinni en Brandur Ávaldsson bróðir Kolfinnu lá
á búðarveggnum. Hann hjó Galta banahögg í því er hann gekk út.
Hallfreður sagði Þorkatli vígið.
Þorkell
gekk með honum til búðar Gríss og bað hann fram selja manninn
"ella munum vér brjóta upp búðina."
Þá
hljóp Hildur móðir Brands í dyrnar og spyr hvað Þorkell vildi.
Hann segir erindið.
Hildur
mælti: "Eigi mundi þér það í hug að drepa son minn þá er eg
skaut þér undan skikkjuskauti mínu og firrði þig bana eftir
víg Glæðis þá er þeir Þorgils og Þorvaldur vildu drepa þig."
Þorkell
mælti: "Liðið er nú það. Gangi konur út úr búðinni og viljum
vér leita mannsins."
Brandur
var faldinn og komst hann svo út og hittist hann eigi. Þorkell
kvað hann farinn mundu til búðar Húnröðar.
Hallfreður
mælti þá: "Grunur er mér nú á um liðveisluna og býð eg nú
Grísi hólmgöngu."
Grís
kvað hann það boðið hafa fyrr.
Þá
kvað Hallfreður vísu:
Þá
mun reyndr að ráðnu
róghnykkjöndum
þykkja
mans
að málma sennu
minn
hugr við Kolfinnu
ef
svo að ör á eyri
uppsátrs
boði, máta
vel
hyggjum það, viggjar
vísar
mér að Grísi.
Grís
hafði í hendi sverðið það er Garðskonungur hafði gefið honum.
Hallfreður
sá einn dag hvar Kolfinna gekk. Hann kvað vísu:
Þykkir
mér er eg þekki
þunnísunga
Gunni
sem
fleybrautar fljóti
fley
meðal tveggja eyja.
En
þá er sér á Ságu
saums
í kvenna flaumi
sem
skrautbúin skríði
skeið
með gylltum reiða.
Það
var um nóttina áður þeir skyldu berjast að Hallfreður svaf í
sæng sinni. Honum þótti Ólafur konungur koma að sér og þóttist
hann verða feginn og þó hræddur.
Konungur
mælti: "Svefns er þér en þó mun þér sem þú vakir. Þú ætlast
ógott ráð fyrir að berjast við Grís við ill málaefni. En hann
hefir svo fyrir mælt og beðið guð að sá ykkar skyldi sigur fá
er betri málaefni hefði. Haf ráð mitt, tak með þökkum að engi
hólmganga verði og bæt fé. En á morgun er þú ert klæddur gakk
út á holt það er hjá þingstaðnum er þar sem götur mætast. Menn
muntu sjá ríða og haf við þá tal og kann vera að þér þyki þá
annað meira vert en hólmganga Gríss og hirð eigi þótt honum
þyki sem þú hræðist."
Hallfreður
vaknar og íhugar hvað fyrir hann hefir borið og segir þeim
manni er hjá honum var.
Sá
svarar: "Hræðist þú nú grísinn og væri betra að hafa tekið
fyrr gott ráð þá er hann mælti vel til en nú mun virt af
óvinum þínum sem þú þorir eigi að berjast."
Hallfreður
mælti: "Virði það hver sem vill. Hafa skal eg ráð Ólafs
konungs. Þau munu mér best gefast."
Um
morguninn gekk hann út á holtið og sá menn ríða í litklæðum að
sér. Hann spurði þá tíðinda en þeir sögðu fall Ólafs konungs.
Hallfreði varð svo við sem hann væri steini lostinn og gekk
þegar heim til búðar með miklum harmi og lagðist þegar niður í
rúm sitt. Þá mæltu Gríss menn að honum yrði lítilmannlega.
Grís
svarar: "Það er ekki á þá leið. Minna sóma hafði eg af
Garðskonungi og þóttu mér þau mest tíðindi er eg missti
höfðingja míns. Er heit lánardrottins ást og er gott er eg
skal eigi berjast við konungsgiftuna. Vil eg enn að Þorkell
dæmi sem ætlað var."
Þorkell
mælti: "Eg mun nú taka máli fyrir Hallfreð og sætta ykkur."
Þessu
játti Hallfreður.
"Það
er gerð mín," segir Þorkell, "að víg Einars komi fyrir víg
Galta og þar með heimsókn við Kolfinnu fyrir mannamun en fyrir
Gríssvísur skal Hallfreður gefa Grísi grip einn góðan."
Þá
kvað Hallfreður vísu:
Auðs
hef eg illrar tíðar
alldrengilega
fengið,
mig
hefir gæddan gulli
gramr
og jarl, of framdan,
ef
glapskyldir gjalda,
gjálfrteigs
og hef eg eigi
mörk,
fyrir minnstan verka
matvísum
skal eg Grísi.
Þorkell
bað hann hætta verkanum "og lát fram grip nokkurn þótt eigi sé
af konungsnautum."
Þá
lét Hallfreður fram hringinn Sigvaldanaut og skildu að því.
11. kafli
Síðan
fór Hallfreður suður um heiði og fékk búið í hendur Valgerði
systur sinni en hann fór utan í Kolbeinsárósi og kom við
Orkneyjar. Þaðan fór hann til Noregs og kom á Sognsæ um
veturnátta skeið og spurði þá að um fall Ólafs konungs. Hann
orti þá Ólafsdrápu og er þetta stef í:
Nú
eru öll um orðin
auð
lönd að gram dauðan.
Allr
lemst friðr af falli
flugstyggs
sonar Tryggva.
Honum
þótti svo mikið um fall Ólafs konungs að hann undi engu og
ætlaði suður til Danmerkur eða austur til Svíþjóðar. Þeir
lögðu í einn leynivog. Það spurði Hallfreður að Eiríkur jarl
var þaðan eigi langt á brott á land upp. Það gerði hann sér í
hug að drepa jarl þótt þegar væri hann drepinn.
Og
um nóttina dreymdi hann að Ólafur konungur kæmi að honum og
mælti: "Þetta er ónýtt ráð er þú ætlast fyrir. Yrk heldur
drápu um jarl."
Um
morguninn eftir gekk Hallfreður á bæ þann er Eiríkur jarl var
og að stofu þeirri er jarl drakk inni. Hallfreður var kenndur.
Hann var tekinn og færður jarli. Jarl vildi láta drepa hann
fyrir það er hann meiddi Þorleif spaka og bað fjötra hann. En
er fjöturinn var borinn að honum þá þreif hann til og hnykkti
af þeim er á hann skyldi leggja og laust í höfuðið svo að sá
hafði þegar bana. Jarl bað þegar drepa hann að hann gerði eigi
fleira illt. Gamall maður reis upp utar á bekkinn og gekk
fyrir jarl og bað hann gefa Hallfreði líf og var það Þorleifur
hinn spaki.
Þá
mælti jarl: "Það er og ómaklegast að þú biðjir honum griða eða
manstu eigi að hann meiddi þig?"
Þorleifur
svarar: "Það vil eg herra að Hallfreður hafi grið."
Jarl
kvað svo vera skyldu sem hann vildi. Þorleifur tók Hallfreð í
sveit sína.
Hann
mælti við Hallfreð: "Viltu að eg dæmi með jarli og þér?"
Hallfreður
kvaðst það gjarna vilja.
"Þá
skaltu yrkja kvæði um jarl og haf gert innan þriggja nátta."
Og
er þrjár nætur voru liðnar þá færði Hallfreður kvæðið og er
þetta upphaf á:
Bær
ert hróðr að heyra,
hjaldrör,
um þig görvan.
Jarl
launaði honum vel kvæðið "en ekki vil eg þig með mér hafa
sakir Ólafs Tryggvasonar."
Þorleifur
bauð Hallfreði til sín og þangað fór hann. Þorleifur reyndist
honum hinn besti drengur.
Og
að sumri fór Hallfreður út til Íslands og kom skipi sínu í
Leiruvog fyrir sunnan land. Þá bjó Önundur að Mosfelli.
Hallfreður átti að gjalda hálfa mörk silfurs húskarli Önundar
og svaraði heldur harðlega. Kom húskarlinn heim og sagði sín
vandræði. Hrafn kvað slíks von að hann mundi lægra hlut bera í
þeirra skiptum. Og um morguninn eftir reið Hrafn til skips og
ætlaði að höggva strengina og stöðva brottferð þeirra
Hallfreðar. Síðan áttu menn hlut í að sætta þá og var goldið
hálfu meira en húskarl átti og skildu að því.
Annað
sumar eftir áttu þeir Hallfreður og Gunnlaugur ormstunga ferð
saman og komu á Melrakkasléttu. Þá hafði Hrafn fengið Helgu.
Hallfreður sagði Gunnlaugi hversu honum hafði vegnað við
Hrafn.
Hallfreður
var lengstum í ferðum og undi sér engu eftir fall Ólafs
konungs. Hann fór til Svíþjóðar að vitja Auðgils sonar síns og
fjár síns. Hann ætlaði þar að festast.
Þá
var Hallfreður nær fertugum manni er hann ætlaði til Íslands
að sækja fé sitt. Hallfreður son hans var þá með honum. Þeir
höfðu útivist harða. Hallfreður jós að sínum hlut og var þó
sjúkur mjög. Og einn dag er hann gekk frá austri settist hann
niður á ásinn. Og í því laust áfall hann niður í skipið og
ásinn ofan á hann.
Þá
mælti Þorvaldur: "Er þér bróðir erfitt við orðið?"
Hann
kvað vísu:
Hnauð
við hjarta og síðu
hreggblásnum
mér ási.
Svo
hefir yðr að öðru
áfall
tekið varla.
Meirr
hnauð mínum knerri.
Mjög
er eg vátr of látinn.
Muna
úrþægin eira
aldan
sínu skaldi.
Þeir
þóttust sjá sótt á honum og leiddu hann aftur eftir skipinu og
bjuggu um hann og spurðu hversu honum segði hugur um sig.
Hann
kvað vísu:
Sprund
mun hvítri hendi
hördúks
um brá mjúka,
fljóð
gat fremdar orði,
fjölerrin
mjög þerra
ef
dauðan mig meiðar
morðveggs
skulu leggja,
áðr
var eg ungu fljóði,
út
um borð, að sútum.
Þá
sáu þeir konu ganga eftir skipinu. Hún var mikil og í brynju.
Hún gekk á bylgjum sem á landi. Hallfreður leit til og sá að
þar var fylgjukona hans.
Hallfreður
mælti: "Í sundur segi eg öllu við þig."
Hún
mælti: "Viltu Þorvaldur taka við mér?"
Hann
kvaðst eigi vilja.
Þá
mælti Hallfreður ungi: "Eg vil taka við þér."
Síðan
hvarf hún.
Þá
mælti Hallfreður: "Þér son minn vil eg gefa sverðið
konungsnaut en aðra gripi skal leggja í kistu hjá mér ef eg
andast."
Litlu
síðar andaðist hann og var í kistu lagður og gripir hans með
honum, skikkja, hjálmur og hringur, og skotið síðan fyrir borð
öllu saman. Kistan kom í Eyna helgu í Suðureyjum og fundu
sveinar ábóta. Þeir brutu upp kistuna og stálu fénu en sökktu
líkinu í fen mikið.
Ábóta
dreymdi þegar um nóttina að Ólafur konungur kæmi að honum.
Hann var reiðulegur og kvað hann illa sveina eiga: "Hafa þeir
brotið skip skálds míns og stolið fé hans en bundið stein við
háls honum. Nú haf þú sannar sögur af þeim ella munu yður
verða hver undur."
Nú
voru sveinar teknir og gengu þeir við og var þeim gefið
frelsi. Lík Hallfreðar var fært til kirkju og var grafið
virðulega. Kaleikur var ger af hringinum en altarisklæði af
skikkjunni en kertastikur úr hjálminum.
Þeir
Þorvaldur tóku land og fóru á Óttarsstaði og voru þar um
veturinn. Þorvaldur fór utan um sumarið en Hallfreður gerði bú
á Óttarsstöðum. Hann var kallaður vandræðaskáld. Hann var
mikilmenni og göfugur maður. Er mart manna frá honum komið.
Og
lýkur hér sögu Hallfreðar.
(Brot úr Flateyjarbók. Það hefst
framarlega í fyrsta kafla.)
Óttar mælti þá: "Viltu bóndi ljá mér skip?"
Hann
spyr: "Hvað sveinum eruð þið?"
Hann
svarar: "Þeir einir eru að betur samir að flytja okkur en
dvelja okkur."
Hann
svarar: "Það mun víst satt. Þið munið vera eyjarsveinar
vorir."
Þá
voru þeir fluttir til lands og kölluðust göngumenn og koma þar
er síldaferja ein var og spurðu hver fyrir réði. Þeir kváðust
vera norðan úr Vogum.
Óttar
mælti: "Viljið þér nokkura þjónustusveina?"
Stýrimaður
svarar: "Vel koma oss bakstursveinar og stigið á skip út."
Héldu
síðan suður með landi og er þeir koma á Sognsæ þá mælti Óttar:
"Nú viljum við hér inn í fjörðinn og eigum hér fyrir frændur."
Stýrimaður
mælti: "Það skal ykkur nú heimilt og kann vera að þið séuð hér
eigi verr komnir en þar sem þið voruð upp teknir og hafið þið
vel þjónað en brugðnir munuð þið við fleira."
Síðan
skildu þeir.
2. kafli
Síð
um aftan komu þeir í Sogn til Galta móðurbróður síns og
settust utarlega í hálm. Galti gekk að þeim og spurði hverjir
þeir væru. Þeir kváðust vera göngusveinar.
Galti
mælti: "Hitt mundi eg ætla að þið væruð dugandi menn og
frændur mínir. Sé eg það á augnabragði ykkru og gangið til
sætis."
Óttar
svarar: "Nú er dulið til hófs er háskinn firrist."
Þar
voru þeir í góðu yfirlæti sjö vetur eða átta og gerðust menn
gervilegir. Og þá varð orusta á Fitjum og féll Hákon
Aðalsteinsfóstri en Gunnhildarsynir tóku ríkið.
Þá
mælti Galti: "Þann veg virði eg Óttar sem þú munir verða fyrir
ykkur frændum. En nú er sú öld í Noregi að eg sé eigi að eg
geti haldið ykkur fyrir óvinum vorum. Nú skuluð þið fara
vestur til Englands og sjáum fyrst hversu við lætur en eg
vænti friðar af Gunnhildarsonum ef þið eruð eigi við."
Óttar
kveðst hans ráð hafa vilja og fóru þeir úr landi og vestur um
haf og öfluðu sér fjár og gerðust miklir menn. Selt hafði
Galti jarðir þeirra og kvikfé og varið í silfur. Þrjá vetur
voru þeir fyrir vestan haf og áttu gnótt fjár.
Þá
fóru þeir til Orkneyja og mælti Óttar við Ávalda: "Það leikur
nú í skapi mér að kaupa mér Íslandsfar. Það spyr eg að þar
hafa menn frelsi og það láta góðir drengir sér sóma."
Ávaldi
bað hann fyrir ráða. Síðan keyptu þeir Íslandsfar.
Óttar
mælti þá: "Nú er svo mál með vexti að vér höfum fengið fé
mikið og gott orð en þó megum vér eigi heita vaskir menn ef
eigi skulu föðurhefndir fram koma. En þó að það þyki eigi sýnt
þá er það þó eigi reynt fyrr en vér finnum óvini vora. Nú skal
framarla til hætta heldur en eigi finnumst vér."
Síðan
fara þeir til fundar við víkinga og sáu í einum leynivogi mörg
skip.
Þá
mælti Óttar: "Nú munum vér hafa breytni. Eg mun frá liði
skiljast og Ávaldi og hætta eigi liði voru. Vænti eg að vér
verðum hamingjumeiri en illvirkjar þessir. En þeir menn er
eftir eru skulu hafa hendur á reipum og verið búnir að vér
komum aftur."
Þeir
komu í lið víkinga og var spurt hvað manna þeir væru. Þeir
kváðust vera matgerðarmenn og létu síld fala og spurðu hvar
höfðinginn væri Sokki, "mun honum eigi hent að kaupa til vista
yður?"
Menn
svöruðu að hann væri eigi vanur að fara einn saman að
síldakaupum "og fer hann jafnan við fjóra tigu manna."
Óttar
svarar: "Hví sæta varleikar þessir eða hvar sefur hann á
nóttum, liggur hann á skipi eða landi?"
Þeir
kváðu hann í lofti einu sofa "því að hann á sökótt við menn og
lætur log bera fyrir sér og ganga ekki allnær og eigi mun hann
ganga að síldakaupum á kveldum."
Þeir
Óttar gengu í brott og sátu um eigi að síður. Sokki lét læsa
dyr hvert sinn er hann gekk á burt eða hann var þar og gætti
sjálfur lukla og trúði sér best en lét standa þrjá tigu manna
fyrir skemmudyrum.
Óttar
hafði þetta allt spurt og hafði við búist og átti nafraskjóðu
og graftól og mælti við Ávalda: "Nú munum við hafa gæslu á er
menn eru á brottu frá skemmunni og grafa undir skemmuna og
leita að koma upp undir skemmunni."
Og
svo gerðu þeir og urðu menn ekki varir við þetta starf. Og um
nóttina er Sokki kom í herbergið þá spratt Óttar upp og lagði
spjóti í smáþarma honum neðan undir brynjuna en Ávaldi hjó úr
Sóta bróður hans þjóhnappana og var það banasár. Síðan hlupu
þeir í jarðhúsið er þeir höfðu gert og komust til báts síns og
síðan til skips síns og fengu góðan byr til Íslands og þótti
eigi skörulegri hefnd orðið hafa.
Gunnhildur
konungamóðir spurði þetta og kvað mein að því að hún leiddi þá
eigi augum er vini hennar höfðu drepið "en veit eg hverjir
gert hafa."