1.
kafli
Það
er upphaf á sögu þessari að Hákon konungur Aðalsteinsfóstri
réð fyrir Noregi og var þetta á ofanverðum hans dögum. Þorkell
hét maður; hann var kallaður skerauki; hann bjó í Súrnadal og
var hersir að nafnbót. Hann átti sér konu er Ísgerður hét og
sonu þrjá barna; hét einn Ari, annar Gísli, þriðji Þorbjörn,
hann var þeirra yngstur, og uxu allir upp heima þar.
Maður
er nefndur Ísi; hann bjó í firði er Fibuli heitir á Norðmæri;
kona hans hét Ingigerður en Ingibjörg dóttir. Ari, sonur
Þorkels Sýrdæls, biður hennar og var hún honum gefin með miklu
fé. Kolur hét þræll er í brott fór með henni.
Maður
hét Björn hinn blakki og var berserkur; hann fór um land og
skoraði á menn til hólmgöngu ef eigi vildu hans vilja gera.
Hann kom um veturinn til Þorkels Sýrdæls; Ari, sonur hans, réð
þá fyrir búi. Björn gerir Ara tvo kosti, hvort hann vill
heldur berjast við hann í hólmi þeim er þar liggur í Súrnadal
og heitir Stokkahólmur eða vill hann selja honum í hendur konu
sína. Hann kaus skjótt að hann vill heldur berjast en
hvorttveggja yrði að skömm, hann og kona hans; skyldi þessi
fundur vera á þriggja nátta fresti.
Nú
líður til hólmstefnu framan. Þá berjast þeir og lýkur svo að
Ari fellur og lætur líf sitt. Þykist Björn hafa vegið til
landa og konu. Gísli segir að hann vill heldur láta líf sitt
en þetta gangi fram, vill hann ganga á hólm við Björn.
Þá
tók Ingibjörg til orða: "Eigi var eg af því Ara gift að eg
vildi þig eigi heldur átt hafa. Kolur, þræll minn, á sverð er
Grásíða heitir og skaltu biðja að hann ljái þér því að það
fylgir því sverði að sá skal sigur hafa er það hefur til
orustu."
Hann
biður þrælinn sverðsins og þótti þrælnum mikið fyrir að ljá.
Gísli
bjóst til hólmgöngu og berjast þeir og lýkur svo að Björn
fellur. Gísli þóttist nú hafa unnið mikinn sigur og það er
sagt að hann biður Ingibjargar og vildi eigi láta góða konu úr
ætt ganga og fær hennar. Nú tekur hann allan fjárhlut og
gerist mikill maður fyrir sér. Því næst andast faðir hans og
tekur Gísli allan fjárhlut eftir hann. Hann lét drepa þá alla
sem með Birni höfðu fylgt.
Þrællinn
heimti sverð sitt og vill Gísli eigi laust láta og býður hann
fé fyrir. En þrællinn vill ekki annað en sverð sitt og fær
ekki að heldur. Þetta líkar þrælnum illa og veitir Gísla
tilræði; var það mikið sár. Gísli heggur í móti með Grásíðu í
höfuð þrælnum svo fast að sverðið brotnaði en hausinn lamdist
og fær hvortveggji bana.
2. kafli
Hér
eftir tekur Þorbjörn við fé öllu því er átt hafði faðir hans
og bræður tveir. Hann býr í Súrnadal að Stokkum. Hann biður
konu þeirrar er Þóra hét og var Rauðs dóttir úr Friðarey og
fékk hennar. Þeirra samfarir voru góðar og eigi langar áður en
þau gátu börn að eiga. Dóttir þeirra er nefnd Þórdís og var
hún elst barna þeirra. Þorkell hét sonur þeirra hinn elsti,
annar Gísli, Ari hinn yngsti og vaxa allir upp heima þar.
Fundust eigi fremri menn þar í nánd þeirra jafnaldrar. Ara var
fóstur fengið með Styrkári, móðurbróður sínum en þeir Þorkell
og Gísli voru heima báðir.
Bárður
hét maður; hann bjó þar í Súrnadal; hann var ungur maður og
hafði nýtekið við föðurarfi sínum.
Kolbjörn
hét maður er bjó á Hellu í Súrnadal; hann var ungur maður og
hafði nýtekið við föðurarfi sínum.
Það
töluðu sumir menn að Bárður fíflaði Þórdísi Þorbjarnardóttur;
hún var bæði væn og vitur. Þorbirni hugnaði það illa og kveðst
ætla ef Ari væri heima að þá myndi eigi vel gefast.
Bárður
kvað ómæt ómaga orð, "og mun eg fara sem áður." Með þeim
Þorkatli var vingott og var hann í bragði með honum en Gísla
var óþokkað um tal þeirra sem föður hans.
Það
er sagt einn tíma að Gísli ræðst í ferð með þeim Bárði og
Þorkatli. Hann fór á miðja vega til Grannaskeiðs, svo heitir
þar er Bárður bjó, og þá er minnst von var heggur Gísli Bárð
banahögg. Þorkell reiddist og kvað Gísla illa gert hafa en
Gísli bað bróður sinn sefast, "og skiptum við sverðum og haf
þú það sem betur bítur;" hann brá á glens við hann.
Nú
sefast Þorkell og sest niður hjá Bárði en Gísli fer heim og
segir föður sínum og líkaði honum vel. Aldrei varð síðan
jafnblítt með þeim bræðrum og ekki þá Þorkell vopnaskiptið og
eigi vildi hann heima þar vera og fór til Hólmgöngu-Skeggja í
eyna Söxu, hann var mjög skyldur Bárði, og var hann þar. Hann
eggjar mjög Skeggja að hefna Bárðar, frænda síns, en ganga að
eiga Þórdísi, systur sína.
Nú
fara þeir til Stokka, tuttugu saman, og er þeir komu á bæinn
mælir Skeggi til mægða við Þorbjörn, "en til samfara við
Þórdísi, dóttur þína."
En
Þorbjörn vildi eigi gifta honum konuna. Það var talað að
Kolbjörn væri í þingum við Þórdísi. Þótti Skeggja sem hann
ylli er hann gat eigi fengið ráðið og fer til fundar við
Kolbjörn og býður honum hólmgöngu í eynni Söxu. Hann kveðst
koma mundu og sagðist eigi verður að eiga Þórdísi ef hann
þyrði eigi að berjast við Skeggja. Þeir Þorkell og Skeggi fóru
heim í Söxu og biðu þar hólmstefnunnar við annan mann og
tuttugasta.
Og
er liðnar voru þrjár nætur fór Gísli og hittir Kolbjörn og
spyr hvort hann er búinn til hólmstefnunnar. Kolbjörn svarar
og spyr hvort hann skal það til ráðsins vinna.
"Það
skaltu eigi segja," segir Gísli.
Kolbjörn
segir: "Svo hyggst mér að eg muni eigi það til vinna að
berjast við Skeggja."
Gísli
biður hann mæla allra manna armastan, "og þótt þú verðir allur
að skömm þá skal eg nú þó fara."
Nú
fer Gísli við tólfta mann í eyna Söxu. Skeggi kom til hólmsins
og segir upp hólmgöngulög og haslar völl Kolbirni og sér eigi
hann þar kominn né þann er gangi á hólminn fyrir hann.
Refur
hét maður er var smiður Skeggja. Hann bað að Refur skyldi gera
mannlíkan eftir Gísla og Kolbirni, "og skal annar standa aftar
en annar og skal níð það standa ávallt þeim til háðungar".
Nú
heyrði Gísli í skóginn og svarar: "Annað munu húskarlar þínir
vinna þarfara og máttu hér þann sjá er þorir að berjast við
þig."
Og
ganga þeir á hólm og berjast og heldur skildi hvor fyrir sig.
Skeggi hefur sverð það er Gunnlogi hét og heggur með því til
Gísla og gall við hátt. Þá mælti Skeggi:
1
Gall
Gunnlogi,
gaman
vas Söxu.
Gísli
hjó í móti með höggspjóti og af sporðinn skildinum og af honum
fótinn og mælti:
2
Hrökk
hræfrakki
hjók
til Skeggja.
Skeggi
leysti sig af hólmi og gekk ávallt við tréfót síðan. En
Þorkell fór nú heim með Gísla bróður sínum og var nú mjög vel
í frændsemi þeirra og þykir Gísli mikið hafa vaxið af þessum
málum.
3. kafli
Bræður
tveir eru nefndir; hét annar Einar en annar Árni, synir
Skeggja úr Söxu; þeir bjuggu á Flyðrunesi, norður frá
Þrándheimi. Þeir eflast að liði eftir um vorið og fara í
Súrnadal til Kolbjarnar og bjóða honum tvo kosti, hvort hann
vill heldur fara með þeim og brenna inni Þorbjörn og sonu hans
eða láta þar líf. Hann kjöri heldur að fara.
Fara
þeir nú þaðan sex tugir manna og koma á Stokka um nótt og bera
eld að húsum. En þau voru öll í svefni í skemmu einni,
Þorbjörn og synir hans og Þórdís. Þar voru inni sýruker tvö í
því húsi. Nú taka þeir Gísli hafurstökur tvær og drepa þeim í
sýrukerin og verjast svo eldinum og slökkva svo þrisvar þar
fyrir þeim eldinn og þá eftir fengu þeir Gísli brotið vegginn
og komast svo á brott, tíu saman, og fylgdu reyk til fjalls og
komust svo brott úr hunda hljóðum; en tólf menn brunnu þar
inni. En þeir þykjast öll þau inni hafa brennt er til komu.
En
þau Gísli fara uns þau koma í Friðarey til Styrkárs og eflast
þaðan að liði og fá fjóra tugi manna og koma á óvart til
Kolbjarnar og brenna hann inni við tólfta mann; selja nú lönd
sín og kaupa sér skip og voru á sex tugir manna og fara á
brott með allt sitt og koma við eyjar þær er Æsundir heita og
liggja þar til hafs.
Nú
fara þeir þaðan á tveimur bátum fjórir tugir manna og koma
norður til Flyðruness. Þeir bræður, Skeggjasynir, voru þá á
leið komnir við níunda mann að heimta landskyldir sínar. Þeir
Gísli snúa til móts við þá og drepa þá alla; Gísli vó þrjá
menn en Þorkell tvo. Eftir það ganga þeir til bæjar og taka
þaðan á brott mikið fé. Gísli hjó þá höfuð af
Hólmgöngu-Skeggja því að hann var þá þar hjá sonum sínum.
4. kafli
Síðan
fara þeir til skips og láta í haf og eru úti aukið hundrað
dægra og koma að hafi vestur í Dýrafjörð á syðri strönd í ós
þann er Haukadalsós heitir.
Tveir
menn eru nefndir og bjó á sinni ströndinni hvor, Þorkatlar
tveir. Annar bjó á Saurum í Keldudal á hinni syðri strönd, þar
var Þorkell Eiríksson, en annar bjó á nyrðri strönd í Alviðru,
hann var kallaður Þorkell auðgi. Þorkell fór fyrstur
virðingarmanna til skips og hitti Þorbjörn súr því að hann var
svo kallaður síðan hann varðist með sýrunni. Öll lönd voru þá
ónumin á hvorritveggja strönd. Nú keypti Þorbjörn súr land á
hinni syðri strönd, á Sæbóli í Haukadal. Þar gerði Gísli bæ og
búa þar síðan.
Bjartmar
hét maður er bjó í Arnarfirði inni í botni en kona hans hét
Þuríður og var Hrafns dóttir af Ketilseyri úr Dýrafirði en
Hrafn var sonur Dýra er fjörðinn nam. Þau áttu sér börn: hét
dóttir þeirra Hildur, hún var elst barna þeirra; Helgi hét
sonur þeirra, Sigurður og Vestgeir.
Vésteinn
hét Austmaður einn er út kom um landnám og vistaðist með
Bjartmari. Hann gengur að eiga Hildi, dóttur hans. Og er þau
höfðu eigi lengi ásamt verið, gátu þau tvö börn að eiga; Auður
hét dóttir þeirra en Vésteinn sonur.
Vésteinn
austmaður var Végeirsson, bróðir Vébjarnar Sygnakappa.
Bjartmar var son Áns rauðfels Grímssonar loðinkinna, bróður
Örvar-Odds, Ketilssonar hængs sonar Hallbjarnar hálftrölls.
Móðir Áns Rauðfelds var Helga dóttir Áns bogsveigis.
Vésteinn
Vésteinsson gerðist fardrengur góður, þó átti hann bú í
Önundarfirði undir Hesti þá er hér var komið sögunni; kona
hans hét Gunnhildur, Bergur hét sonur hans og Helgi.
Nú
eftir þetta andast Þorbjörn súr og Þóra kona hans. Nú tekur
Gísli og Þorkell bróðir hans við búinu en þau Þorbjörn og Þóra
voru í haug lögð.
5. kafli
Þorbjörn
hét maður og var kallaður selagnúpur; hann bjó í Tálknafirði
að Kvígandafelli; Þórdís hét kona hans en Ásgerður dóttir.
Þessarar konu biður Þorkell Súrsson og getur hana að eiga en
Gísli Súrsson bað systur Vésteins, Auðar Vésteinsdóttur, og
fékk hana; búa nú báðir saman í Haukadal.
Eitthvert
vor átti Þorkell hinn auðgi Þórðarson, Víkingssonar, för suður
til Þórsnessþings og fylgdu honum Súrssynir. Í Þórsnesi bjó þá
Þorsteinn þorskabítur, Þórólfsson Mostraskeggs; hann átti Þóru
Ólafsdóttur, Þorsteinssonar, börn þeirra voru þau Þórdís og
Þorgrímur og Börkur hinn digri. Þorkell lauk málum sínum á
þinginu.
En
eftir þingið bauð Þorsteinn heim Þorkatli auðga og Súrssonum
og gaf þeim góðar gjafir að skilnaði en þeir buðu heim
Þorsteinssonum vestur þangað annað vor til þings. Og nú fara
þeir heim. En að öðru vori fara þeir vestur þangað,
Þorsteinssynir, tólf saman, til Hvolseyrarþings og hittast
þeir þar, Súrssynir. Bjóða þeir þá Þorsteinssonum heim af
þinginu en áður skyldu þeir vera að heimboði hjá Þorkatli
auðga, eftir það fara þeir til Súrssona og þiggja þar veislu
góða.
Þorgrími
líst systir þeirra bræðra væn og biður hennar og því næst er
hún honum föstnuð og er þá þegar gert brúðkaupið og fylgir
henni heiman Sæból og réðst Þorgrímur vestur þangað en Börkur
er eftir í Þórsnesi og hjá honum systursynir hans, Saka-Steinn
og Þóroddur.
Nú
býr Þorgrímur á Sæbóli en þeir Súrssynir fara á Hól og reisa
þar góðan bæ og liggja þar saman garðar á Hóli og Sæbóli. Nú
búa þeir þar hvorir og er vinfengi þeirra gott. Þorgrímur
hefur goðorð og er þeim bræðrum að honum styrkur mikill.
Þeir
fara nú til vorþings eitt vor með fjóra tugi manna og voru
allir í litklæðum. Þar var í för Vésteinn, mágur Gísla, og
allir Sýrdælir.
6. kafli
Gestur
hét maður og var Oddleifsson; hann var kominn til þings og var
í búð hjá Þorkatli auðga. Nú sitja þeir við drykkju, Sýrdælir,
en aðrir menn voru að dómum því að sóknarþing var.
Þá
kemur maður inn í búð þeirra Haukdæla, gassi mikill, er Arnór
hét og mælti: "Allmikið er um yður Haukdæla er þér gáið
einskis annars en að drekka en viljið eigi koma til dóma þar
sem þingmenn yðar eiga málum við að skiptast og þykir svo
öllum þótt eg kveði upp."
Þá
mælti Gísli: "Göngum þá til dóma; kann vera að þetta mæli
fleiri."
Ganga
þeir nú til dóma og spyr Þorgrímur ef nokkrir væru þeir menn
er þyrftu þeirra liðveislu; "og skal ekki eftir liggja það sem
vér megum þeim veita meðan vér erum uppi sem vér heitum voru
liði."
Þá
svarar Þorkell hinn auðgi: "Lítils eru mál þessi verð er menn
eiga hér við að skiptast en vér munum yður til segja ef vér
þurfum yðar liðveislu."
Og
nú finnst mönnum orð um hve skrautlegur flokkur þeirra var eða
um málsenda þeirra hversu skörulegir voru.
Þorkell
mælti þá til Gests: "Hve lengir ætlar þú að kapp þeirra
Haukdæla og yfirgangur muni vera svo mikill?"
Gestur
svarar: "Eigi munu þeir allir samþykkir hið þriðja sumar er
þar eru nú í þeim flokki."
En
Arnór var hjá þessu þeirra tali og hleypur inn í búð þeirra
Haukdæla og segir þeim þessi orð.
Gísli
svarar: "Hér mun hann mælt mál talað hafa. En vörumst vér að
eigi verði hann sannspár; enda sé eg gott ráð til þessa að vér
bindum vort vinfengi með meiri fastmælum en áður og sverjumst
í fóstbræðalag fjórir."
En
þeim sýndist þetta ráðlegt. Ganga nú út í Eyrarhvolsodda og
rista þar upp úr jörðu jarðarmen svo að báðir endar voru
fastir í jörðu og settu þar undir málaspjót, það er maður
mátti taka hendi sinni til geirnagla. Þeir skyldu þar fjórir
undir ganga , Þorgrímur, Gísli, Þorkell og Vésteinn. Og nú
vekja þeir sér blóð og láta renna saman dreyra sinn í þeirri
moldu er upp var skorin undan jarðarmeninu og hræra saman allt
moldina og blóðið; en síðan féllu þeir allir á kné og sverja
þann eið að hver skal annars hefna sem bróður síns og nefna
öll goðin í vitni.
Og
er þeir tókust í hendur allir þá mælti Þorgrímur: "Ærinn vanda
hef eg þótt eg geri þetta við þá báða, Þorkel og Gísla, mága
mína, en mig skyldir ekki til við Véstein." og hnykkir hendi
sinni.
"Svo
munum vér þá fleiri gera," segir Gísli og hnykkir og sinni
hendi, "og skal eg eigi binda mér vanda við þann mann er eigi
vill við Véstein, mág minn."
Nú
þykir mönnum um þetta mikils vert. Gísli mælti þá til Þorkels
bróður síns: "Nú fór sem mig grunaði og mun þetta fyrir ekki
koma sem nú er að gert; get eg og að auðna ráði nú um þetta."
Fara
nú menn heim af þinginu.
7. kafli
Það
bar til tíðinda um sumarið að skip kom út í Dýrafirði og áttu
bræður tveir, norrænir menn; hét annar Þórir en annar Þórarinn
og voru víkverskir menn að kyni. Þorgrímur reið til skips og
keypti fjögur hundruð viðar og gaf sumt verðið þegar í hönd en
sumt á frest. Nú setja kaupmenn upp skip sitt í Sandaósi og
taka sér síðan vistir.
Oddur
er maður nefndur og var Örlygsson; hann bjó á Eyri í
Skutulsfirði; hann tók við stýrimönnum. Nú sendir Þorgrímur
Þórodd son sinn að bera saman við sinn og telja því að hann
ætlaði heim að flytja bráðlega. Og kemur hann til og tekur
viðinn og ber saman og þykir þó nokkuð annan veg um kaup
þeirra en Þorgrímur hafði frá sagt. Mælti hann þá illa við
Austmennina en þeir stóðust það eigi og vinna að honum og vega
hann.
Síðan
fara Austmenn frá skipi eftir verk þetta. Þeir fara um
Dýrafjörð og fá sér hesta og vilja ná til vistar sinnar. Þeir
fara dag þann og um nóttina uns þeir koma í dal þann er gengur
upp af Skutilsfirði og eta þar dögurð og fara að sofa síðan.
Nú
eru Þorgrími sögð tíðindi þessi og býst hann þegar heiman og
lætur flytja sig yfir fjörð og fer eftir þeim einn saman. Hann
kemur að þeim þar sem þeir lágu og vekur Þórarin, stingur á
honum spjótskafti sínu. En hann hleypur upp við og vill taka
til sverðs síns því að hann kenndi Þorgrím. En Þorgrímur
leggur á honum með spjóti og vegur hann. Nú vaknar Þórir og
vill hefna félaga síns. En Þorgrímur leggur hann spjóti í
gegnum. Þar heitir nú Dögurðardalur og Austmannafall. Eftir
þetta fer Þorgrímur heim og verður nú frægur af ferð þessari.
Situr hann nú í búi sínu um veturinn.
En
um vorið búa þeir mágar, Þorgrímur og Þorkell, skip þar er
Austmennirnir höfðu átt. Austmenn þessir voru óeirðarmenn
miklir í Noregi og höfðu átt þar óvært. Nú búa þeir skip þetta
og fara utan. Það sumar fara og utan Vésteinn og Gísli í
Skeljavík í Steingrímsfirði. Og láta hvorirtveggja í haf.
Önundur úr Meðaldal ræður fyrir búi þeirra Þorkels og Gísla en
Saka-Steinn fyrir með Þórdísi á Sæbóli.
Og
er nú þetta er tíðinda réð Haraldur gráfeldur fyrir Noregi.
Þeir Þorgrímur og Þorkell koma norðarlega að við Noreg skipi
sínu og hitta konung brátt og ganga fyrir hann og kveðja hann
vel. Konungur tók þeim vel og gerðust þeir honum handgengnir
og verður þeim gott til fjár og virðingar.
Þeir
Gísli og Vésteinn voru úti meir en hundruð dægra og sigla um
veturnáttaskeið að Hörðalandi í miklu fjúki og ofviðri um
nótt, brjóta skipið í spón en halda fé sínu og mönnum.
8. kafli
Maður
hét Skegg-Bjálfi og átti skip í förum. Hann ætlaði til
Danmerkur suður. Þeir fala að honum skipið hálft en hann
kveðst spurt hafa að þeir voru góðir drengir og gaf þeim hálft
skipið og launa þeir þegar meir en fullu.
Nú
fara þeir suður til Danmerkur og í þann kaupstað er í
Vébjörgum heitir og eru þeir þar um veturinn með þeim manni er
Sigurhaddur hét. Þeir voru þar þrír, Vésteinn, Gísli og Bjálfi
og var gott vinfengi með þeim öllum og gjafaskipti. En snemma
um vorið bjó Bálfi skip sitt til Íslands.
Maður
hét Sigurður, félagi Vésteins, norrænn að ætt og var þá á
Englandi vestur. Hann sendi Vésteini orð og kveðst vilja slíta
félag við hann og þóttist eigi þurfa hans fjár lengur. Og nú
biður Vésteinn leyfis að hann færi að hitta hann.
"Því
skaltu heita mér að þú farir aldrei brott af Íslandi ef þú
kemur heill út nema eg leyfi þér."
Nú
játar Vésteinn því.
Og
einn morgun rís Gísli upp og gengur að smiðju; hann var allra
manna hagastur og ger að sér um alla hluti. Hann gerði pening,
þann er eigi stóð minna en eyri og hnitar saman peninginn og
eru tuttugu naddar á, tíu á hvorum hlutnum, og þykir sem heill
sé ef saman er lagður og má þó taka í sundur í tvo hluti.
En
frá því er sagt að hann tekur í sundur peninginn og selur
annan hlut í hendur Vésteini og biður þá þetta hafa til
jartegna, og "skulum við þetta því aðeins sendast á milli að
líf annars hvors okkar liggi við. En mér segir svo hugur um að
við munum þurfa að sendast á milli þó að við hittumst eigi
sjálfir."
Nú
fer Vésteinn vestur til Englands en þeir Gísli og Bjálfi til
Noregs og út um sumarið til Íslands og varð gott til fjár og
góðrar sæmdar og skildu vel sitt félag og kaupir nú Bjálfi
skip hálft að Gísla.
Nú
fer Gísli vestur í Dýrafjörð á byrðingi einum við tólfta mann.
9. kafli
Nú
búa þeir skip sitt í öðrum stað, Þorgrímur og Þorkell, og koma
út hingað í Haukadalsárós í Dýrafjörð þann sama dag sem Gísli
hafði áður inn siglt byrðingnum. Nú hittast þeir brátt og
verður þar fagnafundur og fara nú hvorirtveggja til eigna
sinna. Hefur þeim og gott til fjár orðið, Þorgrími og
Þorkatli.
Þorkell
var ofláti mikill og vann ekki fyrir búi þeirra en Gísli vann
nótt með degi.
Það
var einn góðan veðurdag að Gísli lét alla menn vinna heyverk
nema Þorkell, hann var einn heima karla á bænum og hafði lagst
niður í eldhúsi eftir dögurð sinn. Eldhúsið var tírætt að
lengd en tíu faðma breitt en utan og sunnan undir eldhúsinu
stóð dyngja þeirra Auðar og Ásgerðar og sátu þær þar og
saumuðu. En er Þorkell vaknar gengur hann til dyngjunnar því
að hann heyrði þangað mannamál og leggst þar niður hjá
dyngjunni.
Nú
tekur Ásgerður til orða. "Veittu mér það að þú sker mér
skyrtu, Auður, Þorkatli bónda mínum."
"Það
kann eg eigi betur en þú," sagði Auður, "og myndir þú eigi mig
til biðja ef þú skyldir skera Vésteini bróður mínum skyrtuna."
"Eitt
er það sér," segir Ásgerður, "og svo mun mér þykja nokkra
stund."
"Löngu
vissi eg það," segir Auður, "hvað við sig var og ræðum ekki um
fleira."
"Það
þykir mér eigi brigsl," sagði Ásgerður, "þótt mér þyki
Vésteinn góður. Hitt var mér sagt að þið Þorgrímur hittust
mjög oft áður en þú værir Gísla gefin."
"Því
fylgdu engir mannlestir," segir Auður, "því að eg tók engan
mann undir Gísla að því fylgdi neinn mannlöstur; og munum við
nú hætta þessari ræðu."
En
Þorkell heyrir hvert orð og það er þær mæltu og tekur nú til
orða er þær hættu:
3
"Heyr
undr mikit,
heyr
örlygi,
heyr
mál mikit,
heyr
manns bana,
eins
eða fleiri,"
og
gengur inn eftir það.
Þá
tekur Auður til orða: "Oft stendur illt af kvennahjali og má
það vera að hér hljótist af í verra lagi og leitum okkur
ráðs."
"Hugað
hef eg mér ráð," segir Ásgerður, "það er hlýða mun en ekki sé
eg fyrir þína hönd."
"Hvert
er það?" kvað Auður.
"Leggja
upp hendur um háls Þorkatli er við komum í rekkju og mun hann
þetta fyrirgefa mér og segja þá lygi."
"Eigi
mun því einu mega fyrir hlíta," segir Auður.
"Hvert
úrræði muntu taka?" segir Ásgerður.
"Segja
Gísla bónda mínum allt það er eg á vant að ræða eða af að
ráða."
Um
aftaninn kemur Gísli heim af verkinu. Það var vant að Þorkell
var vanur að þakka bróður sínum verkið en nú er hann hljóður
og mælti ekki orð. Nú spyr Gísli hvort honum sé þungt.
"Engar
eru sóttir á mér," segir Þorkell, "en sóttum verra er þó."
"Hef
eg nokkuð þess gert," segir Gísli, "að þér þyki við mig að?"
"Sá
er enginn hlutur," segir Þorkell, "og muntu þess vís verða þó
að síðar sé."
Og
gengur nú sinn veg hvor þeirra og varð ekki talað fleira að
sinni. Þorkell neytir lítt matar um kveldið og gengur fyrstur
manna að sofa.
Og
er hann var kominn í rekkju þá kemur þar Ásgerður og lyftir
klæðum og ætlar niður að leggjast.
Þá
tók Þorkell til orða: "Ekki ætla eg þér hér að liggja
náttlangt né lengra banni."
Ásgerður
mælti: "Hví hefur svo skjótt skipast eða hvað ber til þess?"
segir Ásgerður.
Þorkell
mælti: "Bæði vitum við nú sökina þótt eg hafi lengi leyndur
verið og mun þinn hróður ekki að meir þó að eg mæli berara."
Hún
svarar: "Þú munt ráða verða hugleiðing þinni um þetta en ekki
mun eg lengi þæfast til hvílunnar við þig og um tvo kosti áttu
að velja. Sá er annar að þú tak við mér og lát sem ekki sé í
orðið . Ella mun eg nefna mér votta nú þegar og segja skilið
við þig og mun eg láta föður minn heimta mund minn og
heimanfylgju og mun sá kostur að þú hafir aldrei hvíluþröng af
mér síðan."
Þorkell
þagnaði og mælti um síðir: "Það ræð eg að þú ger hvort þér
líkar en eigi mun eg banna rekkjuna náttlangt."
Hún
lýsti brátt yfir því hvor henni þótti betri og fer þegar í
rekkju sína. Eigi hafa þau lengi bæði saman legið áður en þau
semja þetta með sér svo sem ekki hefði í orðið.
Auður
kom nú í rekkju hjá Gísla og segir honum ræður þeirra Ásgerðar
og biður af sér reiði og bað hann taka nokkuð gott ráð ef hann
sæi.
"Eigi
sé eg hér ráð til," sagði hann, "það sem duga mun. En þó mun
eg ekki kunna þig um þetta því að mæla verður einnhver
skapanna málum og það mun fram koma sem auðið verður."
10. kafli
Nú
líða misserin af hendi og kemur að fardögum. Þá heimtir
Þorkell Gísla bróður sinn á tal við sig og mælti: "Svo er
háttað, frændi," segir hann, "að mér er ráðabreytni nokkur í
hug og í skapi; en því víkur svo við að eg vil að við skiptum
fé okkar og vil eg ráðast til búlags með Þorgrími, mági
mínum."
Gísli
svarar: "Saman er bræðra eign best að líta og að sjá; að vísu
er mér þökk á að kyrrt sé og skiptum engu."
"Ekki
má svo lengur fram fara," segir Þorkell, "að við eigum búlag
saman því að á því verður stórmikill skaði þar sem þú hefur
jafnan einn haft önn og erfiði fyrir búinu en eg tek til
einskis höndum, þess sem þrifnaður sé í."
"Tel
þú nú ekki að því," segir Gísli, "meðan eg geri ekki orð á;
höfum við nú hvorttveggja reynt að margt hefur verið um með
okkur og fátt."
Þorkell
mælti: "Ekki er undir hvað um er talað, skipta skal fénu að
vísu; og fyrir því að eg beiði skiptis þá skaltu hafa bólstað
og föðurleifð okkar en eg skal hafa lausafé."
"Ef
ekki skal öðru við koma en við skiptum þá ger þú annaðhvort
því að eg hirði eigi hvort eg geri að skipta eða kjósa."
Svo
lauk að Gísli skipti en Þorkell kaus lausafé en Gísli hefur
land. Þeir skiptu og ómegð; það voru börn tvö; hét sveinninn
Geirmundur en Guðríður mærin og var hún með Gísla en
Geirmundur með Þorkatli. Fer Þorkell til Þorgríms mágs síns og
býr við hann; en Gísli hafði bú eftir og saknar einskis í að
nú sé búið verra en áður. Og líður nú svo sumarið og kemur að
veturnóttum.
Það
var þá margra manna siður að fagna vetri í þann tíma og hafa
þá veislur og veturnáttablót en Gísli lét af blótum síðan hann
var í Vébjörgum í Danmörku en hann hélt þó sem áður veislum og
allri stórmennsku. Og nú aflar hann til veislu mikillar þá er
svo líður stundum sem áður var getið. Hann býður til
veisluþeim báðum nöfnum, Þorkatli Eiríkssyni og Þorkatli auðga
og mágum sínum, Bjartmarssonum og mörgum öðrum vinum og
félögum.
Og
þann dag er menn koma þar tekur Auður til orða: "Það er satt
að segja að nú þykir mér eins manns vant, þess er eg vildi að
hér væri."
"Hver
er sá?" kvað Gísli.
"Það
er Vésteinn, bróðir minn; hann myndi eg kjósa til að njóta hér
fagnaðar með oss."
Gísli
mælti: "Annan veg er mér þetta gefið því eg vildi gjarna gefa
til að hann kæmi hér nú eigi."
Og
fellur þetta þeirra tal þar niður.
11. kafli
Maður
hét Þorgrímur og var kallaður nef. Hann bjó á Nefsstöðum fyrir
innan Haukadalsá. Hann var fullur af gerningum og fjölkynngi
og var seiðskratti sem mestur mátti verða. Honum bjóða þeir
Þorgrímur og Þorkell til sín því að þeir höfðu þar og boð
inni. Þorgrímur var hagur á járn og er þess við getið að þeir
ganga til smiðju, báðir Þorgrímarnir og Þorkell, og síðan
byrgja þeir smiðjuna. Nú eru tekin Grásíðubrot er Þorkell
hafði hlotið úr skiptinu þeirra bræðra og gerir Þorgrímur þar
af spjót og var það algert að kveldi; mál voru í og fært í
hefti spannar langt. Nú verður þar að hvílast.
Frá
því er sagt að Önundur úr Meðaldal kom til boðs að Gísla og
bregður honum á einmæli og sagði að Vésteinn væri út kominn,
"og er hans hingað von."
Gísli
bregður við skjótt og kallar til sín húskarla sína, Hallvarð
og Hávarð, og bað þá fara norður í Önundarfjörð og hitta
Véstein, "og bera honum kveðju mína og það með að hann sé
heima þar til er eg sæki hann heim og komi eigi til boðsins í
Haukadal." og selur í hendur þeim knýtiskauta og var þar í
peningur hálfur til jartegna ef hann tryði eigi sögu þeirra
ella.
Síðan
fara þeir og hafa skip úr Haukadal og róa til Lækjaróss og
ganga þar á land og til bónda þess er þar bjó á Bessastöðum,
hann hét og Bessi. Þeir bera honum orð Gísla að hann léði þeim
hesta tvo er hann átti og hétu Bandvettir er skjótastir voru í
fjörðum. Hann ljær þeim hestana og ríða þeir uns þeir komu á
Mosvöllu og þaðan inn undir Hest.
Nú
ríður Vésteinn heiman og ber svo til að þá ríður hann undir
melinn hjá Mosvöllum er þeir bræður ríða hið efra og farast
þeir hjá á mis.
12. kafli
Þorvarður
hét maður er bjó í Holti. Húskarlar hans deildu um verk og
hjuggust með ljáum og varð hvorttveggja sár. Kemur Vésteinn
til og sættir þá og gerir svo að hvorumtveggja hugnar vel;
ríður nú út til Dýrafjarðar og Austmenn, þrír saman.
En
þeir koma undir Hest, Hallvarður og Hávarður, og fregna nú hið
sanna um ferð Vésteins, riðu nú aftur sem þeir mega. Og er
þeir koma til Mosvalla þá sáu þeir mannareið í miðjum dal og
var þá leiti í millum þeirra; ríða nú í Bjarnardal og koma til
Arnkelsbrekku; þar springa báðir hestarnir. Þeir renna þá af
hestunum og kalla. Heyra þeir Vésteinn nú og voru þá komnir á
Gemlufallsheiði og bíða nú og hittast þeir og bera upp erindi
sín, bera nú fram peninginn, þann er Gísli sendi honum.
Hann
tekur nú annan pening úr fégyrðli sínum og roðnar mjög á að
sjá. "Satt eitt segið þig," segir hann, "og myndi eg aftur
hafa horfið ef þið hefðuð hitt mig fyrr en nú falla vötn öll
til Dýrafjarðar og mun eg þangað ríða enda er eg þess fús.
Austmenn skulu hverfa aftur. En þig stígið á skip," segir
Vésteinn, "og segið Gísla og systur minni þangaðkomu mína."
Þeir
fara heim og segja Gísla. Hann svarar. "Svo verður nú að
vera."
Vésteinn
fer til Gemlufalls til Lútu frændkonu sinnar og lætur hún
flytja hann yfir fjörðinn og mælti við hann: "Vésteinn," sagði
hún, "vertu var um þig; þurfa muntu þess."
Hann
er fluttur til Þingeyrar, þar bjó þá maður er Þorvaldur
gneisti hét. Vésteinn gengur þar til húss og lét Þorvaldur
honum heimilan hest sinn; ríður hann nú við hrynjandi og hefur
sitt söðulreiði. Hann fylgir honum til Sandaóss og bauð að
fylgja honum allt til Gísla. Hann kvað eigi þess þurfa.
"Margt
hefur skipast í Haukadal," sagði hann, "og vertu var um þig."
Þeir
skiljast nú. Ríður Vésteinn nú til þess er hann kemur í
Haukadal og var á heiðviðri og tunglskin. En að þeirra
Þorgríms þá láta þau inn naut, Geirmundur og kona sú er
Rannveig hét; bæsir hún nautin en hann rekur inn að henni. Þá
ríður Vésteinn þar um völl og hittir Geirmundur hann.
Geirmundur mælti:
"Kom
þú ekki hér á Sæból og far til Gísla og ver var um þig."
Rannveig
hafði gengið út úr fjósinu, hyggur að manninum og þykist kenna
og er nautin voru inn látin, þræta þau um manninn, hver verið
hafði og ganga við það heim. Þeir Þorgrímur sitja við eld og
spyr Þorgrímur ef þau hefðu nokkuð manna séð eða hitt eða um
hvað þau þrættust.
"Eg
þóttist kenna að Vésteinn var hér kominn," sagði Rannveig, "og
var í blárri kápu og spjót í hendi og reið við hrynjandi."
"En
hvað segir þú, Geirmundur?"
"Ógerla
sá eg til en húskarl ætla eg Önundar úr Meðaldal og var í kápu
Gísla en söðulreiði Önundar og í hendi fiskistöng og veðrar af
upp.
"Nú
mun ljúga annað hvort ykkar," sagði Þorgrímur, "og far þú,
Rannveig, á Hól og vit hvað þar er títt."
Nú
fór hún og kom til dyra er menn voru komnir til drykkju. Gísli
var í dyrum úti og heilsaði henni og bauð henni þar að vera.
Hún
kveðst heim skyldu, "og vildi eg hitta Guðríði mey."
Gísli
kallar á hana og varð ekki að erindum.
"Hvar
er Auður, kona þín?" segir hún.
"Hér
er hún," segir Gísli.
Hún
gengur út og spurði hvað hún vildi. Hún kvað smá erindi ein og
komust engin upp. Gísli bað hana gera annað hvort, vera þar
eða fara heim. Hún fór heim og var þá nokkru heimskari en áður
ef á mætti gæða en kunni engin tíðindi að segja.
En
eftir um morguninn lét Vésteinn bera að sér töskur tvær er
varningur var í og þeir bræður höfðu með farið, Hallvarður og
Hávarður. Hann tók þar úr refil sextugan að lengd og höfuðdúk,
tuttugu álna langan og ofið í glit af gulli í þrem stöðum, og
mundlaugar þrjár, fáðar með gulli. Þetta bar hann fram og gaf
systur sinni, Gísla og Þorkatli, svarabróður sínum, ef hann
vildi þiggja. Gísli gengur og Þorkatlar tveir á Sæból til
Þorkels bróður síns. Segir Gísli að Vésteinn var þar kominn og
hann hefur gefið þeim báðum saman gripina og sýnir honum og
biður hann af hafa slíkt er hann vill.
Þorkell
svarar: "Þó værir þú maklegur þó að þú eignaðist alla og vil
eg eigi þiggja gripina; eigi eru launin sýnni en svo."
Og
vill hann víst eigi þiggja. Nú fer Gísli heim og þykir honum
um allt einn veg á horfast.
13. kafli
Nú
bar það til nýlundu á Hóli að Gísli lætur illa í svefni tvær
nætur í samt og spyrja menn hvað hann dreymdi . Hann vill eigi
segja drauma sína.
Nú
kemur hin þriðja nóttin og fara menn til rekkna sinna og er
menn höfðu sofið svefn kemur bylur á húsið, svo mikill, að af
tekur þekjuna alla öðrum megin af húsinu. Það fylgdi þessu að
vatn féll úr himni svo mikið að það var með ódæmum og tóku
húsin að drjúpa sem líklegt var er þakið tók að rofna.
Gísli
spratt upp skjótt og heitir á menn sína að skýli. En þræll
einn var með Gísla sá er Þórður hét og kallaður hinn huglausi.
Þrællinn var heima en Gísli fór og nær allir mennirnir með
honum til heyjanna að duga þeim við. Vésteinn bauð að fara með
þeim en Gísli vill eigi það. Og nú er mest tóku að drjúpa
húsin þá snúa þau systkin rekkjum sínum um endilangt húsið; en
allir menn aðrir voru brott flýðir úr húsinu nema þau tvö ein.
Nú
er gengið inn nokkuð fyrir lýsing, hljóðlega, og þangað að sem
Vésteinn hvílir. Hann var þá vaknaður. Eigi finnur hann fyrr
en hann er lagður spjóti fyrir brjóstið svo að stóð í gegnum
hann.
En
er Vésteinn fékk lagið þá mælti hann þetta: "Hneit þar," sagði
hann.
Og
því næst gekk maðurinn út. En Vésteinn vildi upp standa; í því
fellur hann niður fyrir stokkinn, dauður. Auður vaknar við og
kallar á Þórð hinn huglausa og biður hann taka vopnið úr
undinni. Það var þá mælt að sá væri skyldur að hefna er vopni
kippti úr sári; en það voru kölluð launvíg en eigi morð ef
menn létu vopn eftir í beninni standa. Þórður var svo
líkblauður maður að hann þorði hvergi í nánd að koma.
Gísli
kom þá inn og sá hver efni í voru og bað Þórð vera kyrran.
Hann tók sjálfur spjótið úr sárinu og kastaði alblóðugu í örk
eina og lét engan mann sjá og settist á stokkinn. Síðan lét
hann búa um lík Vésteins eftir þeirri siðvenju er þá var í
þann tíma. Vésteinn var mjög harmdauða bæði Gísla og öðrum
mönnum.
Þá
mælti Gísli til Guðríðar, fóstru sinnar: "Þú skalt fara á
Sæból og vita hvað menn hafast þar að; sendi eg þig fyrir því
þangað að eg trúi þér best um þetta og annað og kunn að segja
mér hvað menn hafast þar að."
Hún
fer og kemur á Sæból. Þeir voru upp risnir og sátu með vopnum,
Þorgrímar tveir og Þorkell. Og er hún kom inn var henni
heilsað óbrátt því að fólk var flest fámálugt. Þó spyr
Þorgrímur hana tíðinda. Hún sagði víg Vésteins eða morð.
Þorkell
svarar: "Tíðindi myndi okkur það hafa þótt eina stund."
"Sá
maður er þar látinn," segir Þorgrímur, "er vér erum allir
skyldir til virðing að veita og gera hans útferð sem
sæmilegasta og heygja hann; og er það satt að segja að slíkt
er mikill mannskaði. Máttu og segja svo Gísla að vér munum þar
koma í dag."
Hún
fer heim og segir Gísla að Þorgrímur sat með hjálm og sverð og
öllum herbúnaði en Þorgrímur nef hafði bolöxi í hendi en
Þorkell hafði sverð og brugðið af handfang, "allir menn voru
þar upp risnir, sumir með vopnum."
"Slíks
var að von," segir Gísli.
14. kafli
Gísli
býst nú til að heygja Véstein með allt lið sitt í sandmel þeim
er á stenst og Seftjörn, fyrir neðan Sæból. Og er Gísli var á
leið kominn þá fara þeir Þorgrímur með marga menn til
haugsgerðarinnar.
En
þá er þeir höfðu veitt Vésteini umbúnað sem siður var til gekk
Þorgrímur að Gísla og mælti: "Það er tíska," segir hann, "að
binda mönnum helskó þá er þeir skulu ganga á til Valhallar og
mun eg það gera við Véstein."
Og
er hann hafði það gert þá mælti hann: "Eigi kann eg helskó að
binda ef þessir losna."
Eftir
þetta setjast þeir niður fyrir utan hauginn og talast við og
láta allólíklega að nokkur viti hver þennan glæp hefur gert.
Þorkell
spurði Gísla: "Hversu berst Auður af um bróðurdauðann? Hvort
grætur hún mjög?"
"Vita
muntu það þykjast," segir Gísli; "hún berst af lítt og þykir
mikið. Draum dreymdi mig," segir Gísli, "í fyrri nótt og svo í
nótt en þó vil eg eigi á kveða hver vígið hefur unnið en á
hitt horfir um draumana. Það dreymdi mig hina fyrri nótt að af
einum bæ hrökktist höggormur og hyggi Véstein til bana. En
hina síðari nótt dreymdi mig að vargur rynni af sama bæ og
biti Véstein til bana. Og sagði eg því hvorugan drauminn fyrr
en nú að eg vildi að hvorugur réðist."
Og
þá kvað hann vísu:
4
Betr
hugðak þá, brigði
biðkat
draums ens þriðja
slíks
af svefni vökðum
sárteina,
Vésteini,
þás
vér í sal sátum
Sigrhadds
við mjöð gladdir
komskat
maðr á miðli
mín
né hans, at víni.
Þorkell
spurði þá: "Hversu berst Auður af um bróðurdauðann, hvort
grætur hún mjög?"
"Oft
spyrð þú þessa, frændi," segir Gísli, "og er þér mikil
forvitni á að vita þetta."
Gísli
kvað vísu:
5
Hylr
á laun und líni
linnvengis
skap kvinna,
gríðar
leggs ór góðum.
Gefn,
ölkera svefni;
eik
berr angri lauka,
eirreks,
bráa geira,
bróður,
dögg á bæði
blíð
öndugi síðan.
Og
enn kvað hann:
6
Hrynja
lætr af hvítum
hvarmskógi
Gná bógar
hvönn
fylvingum hyljar
hlátrbann
í kné svanna;
hnetr
less, en þreyr þessum,
Þögn,
at mærðar Rögni,
snáka
túns af sínu
sjónhesli
bölgrónu.
Nú
ganga þeir bræður heim eftir þetta, báðir saman.
Þá
mælti Þorkell: "Mikil tíðindi hafa hér gerst og munu þér verða
nokkru meiri tíðindi með harmi en oss; en eigi að síður verður
hver með sjálfum sér lengst að fara. Vildi eg að þú létir þér
eigi þetta svo mikils fá að menn renni þar af því grunum í;
vildi eg að vér tækum upp leika og væri nú svo vel með oss sem
þá er best hefur verið."
"Þetta
er vel mælt," segir Gísli, "og vil eg það gjarna, og þó með
þeim hætti ef nokkuð kann það til að bera á þinni ævi að þér
þyki jafnmikið sem mér þykir þetta þá skaltu mér því heita að
gera þá með sama hætti sem þú beiðir mig nú."
Þessu
játar Þorkell. Síðan fara þeir heim og er þá drukkið erfi
eftir Véstein. Og er það er gert fer hver heim til síns
heimilis og var nú allt kyrrt.
15. kafli
Tókust
nú upp leikar sem ekki hefði í orðið. Eiga þeir mágar oftast
leik saman, Gísli og Þorgrímur, og verða menn eigi á sáttir
hvor sterkari er en þó ætla flestir Gísla aflameiri. Þeir
leika knattleika á tjörn þeirri er Seftjörn heitir; þar var
jafnan fjölmennt.
Það
var einn dag þá er flesta lagi var komið að Gísli bað jafnlega
skipta til leiksins.
"Það
viljum vér víst," segir Þorkell, "enda viljum vér að þú sparir
þá ekki af við Þorgrím því að það orð flyst af að þú sparist
við; en eg ynni þér allvel að þú fengir sem mesta virðing af
ef þú ert sterkari."
"Ekki
höfum við það reynt hér til," segir Gísli, "en þó má það vera
að þar komi að við reynum."
Nú
leika þeir og hefur Þorgrímur ekki við, felldi Gísli hann og
bar út knöttinn. Þá vill Gísli taka knöttinn en Þorgrímur
heldur honum og lætur hann eigi því ná. Þá fellir Gísli svo
hart Þorgrím svo að hann hafði ekki við og af gekk skinnið af
hnúunum en blóð stökk úr nösunum; af gekk og kjötið af
knjánum.
Þorgrímur
stóð seint upp; hann leit til haugsins Vésteins og mælti:
7
Geirr
í gumna sárum
gnast;
kannkat þat lasta.
Gísli
tók knöttinn á skeiði og rekur á milli herða Þorgrími svo að
hann steypist áfram og mælti:
8
Böllr
á byrðar stalli
brast;
kannkat þat lasta.
Þorkell
sprettur upp og mælti: "Nú má það sjá hver sterkastur er eða
mestur atgervismaður er og hættum nú."
Og
svo gerðu þeir. Tókust nú af leikarnir og líður á sumarið og
fækkaðist nú heldur með þeim Þorgrími og Gísla.
Þorgrímur
ætlaði að hafa haustboð að veturnóttum og fagna vetri og blóta
Frey og býður þangað Berki bróður sínum og Eyjólfi Þórðarsyni
og mörgu öðru stórmenni. Gísli býr og til veislu og býður til
sín mágum sínum úr Arnarfirði og Þorkötlum tveimur og skorti
eigi hálft hundrað manna að Gísla. Drykkja skyldi vera að
hvorratveggja og var stráð gólf á Sæbóli af sefinu af
Seftjörn.
Þá
er þeir Þorgrímur bjuggust um og skyldu tjalda húsin en
boðsmanna var þangað von um kveldið þá mælti Þorgrímur við
Þorkel: "Vel kæmu oss nú reflarnir þeir hinu góðu er Vésteinn
vildi gefa þér; þætti mér sem þar væri langt í milli hvort þú
hefðir þá með öllu eða hefðir þú þá aldrei og vildi eg nú að
þú létir sækja þá."
Þorkell
svarar: "Allt kann sá er hófið kann og mun eg eigi eftir þeim
senda."
"Eg
skal það gera þá," sagði Þorgrímur og bað Geirmund fara.
Geirmundur
svarar: "Vinna mun eg nokkuð en ekki er mér um að fara."
Þá
gengur Þorgrímur að honum og slær hann buffeitt mikið og
mælti: "Far nú þá ef þér þykir nú betra."
"Nú
skal fara," sagði hann, "þó að nú sé verra; en vit það fyrir
víst að hafa skal eg vilja til að fá þér fylu er þú færð mér
fola og er þó eigi varlaunað."
Síðan
fer hann. Og er hann kemur þar þá eru þau Gísli og Auður búin
að láta upp tjöldin. Geirmundur ber upp erindið og sagði allt
sem farið hafði.
"Hvort
viltu, Auður, ljá tjöldin?" sagði Gísli.
"Eigi
spyrð þú þessa af því að þú vitir eigi að eg vildi að þeim
væri hvorki þetta gott gert né annað það er þeim væri til
sæmdarauka."
"Hvort
vildi Þorkell bróðir minn?" sagði Gísli.
"Vel
þótti honum að eg færi eftir."
"Það
skal ærið eitt til," sagði Gísli og fylgir honum á leið og fær
honum gripina.
Gísli
gengur með honum og allt að garði og mælti: "Nú er þann veg að
eg þykist góða hafa gert ferð þína og vildi eg að þú værir mér
nú leiðitamur um það sem mig varðar og sér æ gjöf til gjalda
og vildi eg að þú létir lokur frá hurðum þremur í kveld; og
mættir þú muna hversu þú varst beiddur til fararinnar.
Geirmundur
svarar: "Mun Þorkatli bróður þínum við engu hætt?"
"Við
alls engu," sagði Gísli.
"Þá
mun þetta áleiðis snúast," sagði Geirmundur.
Og
nú er hann kemur heim kastar hann niður gripunum. Þá mælti
Þorkell: "Ólíkur er Gísli öðrum mönnum í þolinmæði og hefur
hann betur en vér."
"Þessa
þurfum vér nú," segir Þorgrímur og láta upp refilinn.
Síðan
koma boðsmenn um kveldið. Og þykknar veðrið, gerir þá
logndrífu um kveldið og hylur stígu alla.
16. kafli
Börkur
og Eyjólfur koma um kveldið með sex tugi manna og var þar
hundrað manna en hálft að Gísla. Tóku menn til drykkju um
kveldið og fara menn í rekkjur eftir það og sofa.
Gísli
mælti við Auði, konu sína: "Eg hef ekki gefið hesti Þorkels
hins auðga og gakk þú með mér og lát loku fyrir hurð og vaki á
meðan eg geng í brott og lát frá loku er eg kem aftur."
Hann
tekur spjótið Grásíðu úr örkinni og er í kápu blárri og skyrtu
og í línbrókum og gengur hann síðan til lækjar þess er fellur
á milli bæjanna og tekið var neytingarvatn af hvorumtveggja
bænum. Hann gengur götu til lækjarins en veður síðan lækinn
til götu þeirrar er lát til hins bæjarins. Gísla var kunnug
húsaskipan á Sæbóli því að hann hafði gert þar bæinn. Þar var
innangengt í fjós. Þangað gengur hann. Þar stóðu þrír tugir
kúa hvorum megin; hann hnýtir saman halana á nautunum og lýkur
aftur fjósinu og býr svo um að eigi má upp lúka þó að innan sé
til komið. Síðan fer hann til mannhúsanna og hafði Geirmundur
geymt hlutverka sinna því að loka var engin fyrir hurðum.
Gengur hann hús inn og lýkur aftur hurðunni sem um aftaninn
hafði verið um búið. Nú fer hann að öllu tómlega. Eftir það
stendur hann og hlýðist um hvort nokkrir vektu og verður hann
þess var að allir menn sofa.
Þrjú
voru log í skálanum. Síðan tekur hann sefið af gólfinu og
vefur saman, kastar síðan í ljósið eitt og slokknar það. Eftir
það stendur hann og hyggur að hvort nokkur vaknar við og
finnur hann það ekki. Þá tekur hann aðra sefvisk og kastar í
það ljós er þar var næst og slekkur það. Þ:á verður hann þess
var að eigi munu allir sofa því að hann sér að ungs manns hönd
kemur á hið þriðja ljósið. Nú gengur hann innar eftir húsinu
og að lokhvílunni þar er þau þorgrímur hvíldu og systir hans
og var hnigin hurð á gátt og eru þau bæði í rekkju. Gengur
hann þangað og þreifast fyrir og tekur á brjósti henni og
hvíldi hún nær stokki.
Síðan
mælti hún Þórdís: "Hví er svo köld hönd þín, Þorgrímur?" og
vekur hann.
Þorgrímur
mælti: "Viltu að eg snúist að þér?"
Hún
hugði að hann legði höndina fyrir hana. Gísli bíður þá enn um
stund og vermir höndina á serk sér en þau sofna bæði. Nú tekur
hann á Þorgrími kyrrt svo að hann vaknaði. Hann hugði að hún
Þórdís vekti hann og snerist þá að henni. Gísli tekur þá
klæðin af þeim annarri hendi en með annarri leggur hann í
gegnum Þorgrím með Grásíðu svo að í beðnum nam stað.
Nú
kallar hún Þórdís og mælti: "Vaki menn í skálanum, Þorgrímur
er veginn, bóndi minn."
Gísli
snýr í brott skyndilega til fjóssins, gengur þar út sem hann
hafði ætlað og lýkur aftur eftir sér rammlega, snýr heim síðan
hina sömu leið og má hvergi sjá spor hans. Auður lætur lok frá
hurðu er hann kom heim og fer hann í sæng sína og lætur sem
ekki sé í orðið eða hann eigi um ekki að vera.
En
menn allir voru ölærir á Sæbóli og vissu eigi hvað af skyldi
ráða; kom þetta á þá óvara og urðu því eigi tekin þau ráð sem
dygði eða þörf var á.
17. kafli
Eyjólfur
mælti: "Hér eru orðin mikil tíðindi og ill og er fólk þetta
vitlaust hér er. Nú sýnist mér það ráð að kveikja ljós og
hlaupa til dyranna svo að vegandinn megi eigi út komast."
Og
svo var gert. Þykir mönnum, er eigi verður við vegandann vart,
sem sá muni þar nokkur inni vera er verkið hefur unnið. Líður
nú til þess er dagur kemur. Er þá tekið lík Þorgríms og brott
kippt spjótinu og til graftar búið og er þar að sex tugir
manna, fara nú á Hól til Gísla. Þórður hinn huglausi var úti
og er hann sér liðið hleypur hann inn og segir að her manns
fer að bænum og var hann allmjög flaumósi.
"Það
er vel þá," segir Gísli og kvað vísu:
9
Fell
eigi ek fullum,
folkrunnr
hjarar munni
ráðit
hefr margra manna
morð,
við hverju orði;
látum
vér, þótt bága
viggruðr
hniginn liggi,
kominn
es þyss í þessa
þjóð,
of oss sem hljóðast.
Nú
koma þeir í bæinn, Þorkell og Eyjólfur; ganga að lokrekkju
þeirri sem Gísli hvíldi í og kona hans en Þorkell, bróðir
Gísla, gengur upp fyrir hvílugólfið og sér hvar að skór Gísla
liggja, frosnir og snæugir allir; hann skaraði þá upp undir
fótborðið og svo að eigi skyldu sjá þá aðrir menn.
Nú
fagnar Gísli þeim og spyr tíðinda. Þorkell kvað bæði mikil og
ill og spyr hverju gegna mundi eða hvað þá skal til ráða taka.
"Skammt
er þá milli illra verka og stórra," segir Gísli; "Viljum vér
til þess bjóðast að heygja Þorgrím og eigið þér það að oss er
það skylt að vér gerum það með sæmd."
Þetta
þiggja þeir og fara allir saman á Sæból til haugsgerðar og
leggja Þorgrím í skip. Nú verpa þeir hauginn eftir fornum sið.
Og
er búið er að lykja hauginn þá gengur Gísli til óssins og
tekur upp stein einn, svo mikinn sem bjarg væri, og leggur í
skipið svo að nær þótti hvert tré hrökkva fyrir en brakaði
mjög í skipinu og mælti: "Eigi kann eg skip að festa ef þetta
tekur veður upp."
Það
var nokkurra manna mál að eigi þótti allólíkt fara því er
Þorgrímur hafði gert við Véstein er hann ræddi um helskóna.
Nú
búast þeir heim frá haugnum. Þá mælti Gísli við Þorkel, bróður
sinn: "Það þykist eg að þér eiga, bróðir, að nú sé okkar
vinfengi sem þá er best hefur verið og tökum nú upp leika."
Þorkell
tekur því vel. Og fara nú heim hvorirtveggja. Gísli hefur nú
eigi allmannfátt og er nú slitið boðinu og gefur Gísli góðar
gjafir sínum boðsmönnum.
18. kafli
Nú
er efri drukkið eftir Þorgrím og gefur Börkur góðar vingjafir
mörgum mönnum.
Það
er næst til tíðinda að Börkur kaupir að Þorgrími nef að hann
seiddi seið að þeim manni yrði ekki að björg er Þorgrím hefði
vegið þó að menn vildu duga honum. Uxi, níu vetra gamall, var
honum gefinn til þess. Nú flytur Þorgrímur fram seiðinn og
veitir sér umbúð eftir venju sinni og gerir sér hjall og
fremur hann þetta fjölkynngilega með allri ergi og skelmiskap.
Varð
og sá hlutur einn er nýnæmum þótti gegna að aldrei festi snæ
utan og sunnan á haugi Þorgríms og eigi fraus; og gátu menn
þess til að hann myndi frey svo ávarður fyrir blótin að hann
myndi eigi vilja að freri á milli þeirra.
Því
fór fram um veturinn og eiga þeir bræður leika saman. Börkur
gengur þar í bú með Þórdísi og fær hennar. Hún fór eigi ein
saman þá er þetta var og fæðir hún svein og er hann vatni
ausinn og er fyrst nefndur Þorgrímur eftir föður sínum. Og er
hann vex upp þótti þeim hann þungur í skaplyndi og óeirinn og
var snúið nafninu og kallaður Snorri goði.
Börkur
bjó þar þau misseri og eiga þeir leika saman.
Kona
er nefnd Auðbjörg er bjó í ofanverðum dalnum á Annmarkastöðum.
Hún var systir Þorgríms nefs. Hún hafði átt sér bónda er
Þorkell hét og var kallaður annmarki. Sonur hennar hét
Þorsteinn; hann var einhver sterkastur að leikunum, annar en
Gísli. Þeir eru jafnan sér í leik, Gísli og Þorsteinn, en þeir
til móts, Börkur og Þorkell.
Einhvern
dag kom þar fjöldi manna að sjá leikinn því að mörgum var
mikil forvitni á að sjá leikinn og vita hver sterkastur væri
eða leikmaður bestur. En þar var sem víða annars staðar að
mönnum er þess meira kapp á er fleiri koma til leikanna. Þess
er getið að Börkur hefði ekki við Þorsteini um daginn og að
lyktum reiddist Börkur og braut í sundur knatttré Þorsteins en
Þorsteinn felldi hann og rak við svellinu niður.
En
er Gísli sér það þá mælti hann að hann skyldi leika sem hann
hefði mátt til við Börk, "og mun eg skipta trjám við þig."
Svo
gera þeir. Gísli sest niður og gerir að trénu, horfir á
hauginn Þorgríms; snær var á jörðu en konu sátu upp í
brekkuna, Þórdís systir hans og margar aðrar. Gísli kvað þá
vísu er æva skyldi:
10
Teina
sák í túni
tál-gríms
vinar fálu,
Gaus
þess's geig of veittak
gunnbliks
þáamiklu;
nú
hefir gnýstærir geira
grímu
Þrótt of sóttan
þann
lét sundr of lendan
landkostuð
ábranda.
Þórdís
nam þegar vísuna, gengur heim og hefur ráðið vísuna. Þeir
skilja nú leikinn; fer Þorsteinn heim.
Maður
hét Þorgeir og var kallaður orri; hann bjó á Orrastöðum.
Bergur hét maður og var kallaður skammfótur; hann bjó á
Skammfótarmýri fyrir austan ána.
Og
nú er menn fara heim ræða þeir um leikinn, Þorsteinn og
Bergur, og deila að lyktum, er Bergur með berki en Þorsteinn
mælir í móti og lýstur Bergur Þorstein öxar hamarshögg; en
Þorgeir stendur á milli og fær Þorsteinn eigi hefnt sín, fer
heim til móður sinnar, Auðbjargar, bindur hún um sár hans og
lætur eigi vel yfir hans ferð.
Kerling
fær ekki sofnað um nóttina, svo var henni bimbult. Veður var
kalt úti og logn og heiðríkt. Hún gengur nokkrum sinnum
andsælis um húsin og viðrar í allar ættir og setur upp
nasirnar. En við þessa hennar meðferð þá tók veðrið að skipast
og gerir á fjúk mikið og eftir það þey og brestur flóð í
hlíðinni og hleypur snæskriða á bæ Bergs og fá þar tólf menn
bana og sér enn merki jarðfallsins í dag.
19. kafli
Nú
fer Þorsteinn á fund Gísla og skýtur hann skjóli yfir hann og
fer hann suður í Borgarfjörð og þar utan. En er Börkur fréttir
þessi fákynstur þá fer hann upp á Annmarkastaði og lætur taka
Auðbjörgu og fer með hana út á Saltnes og ber hana grjóti í
hel. Og er þetta er liðið fer Gísli heiman og kemur á
Nefsstaði og tekur Þorgrím nef höndum og færir á Saltnes og er
dreginn belgur á höfuð honum og er barður grjóti til bana og
er kasaður hjá systur sinni, á hryggnum milli Haukadals og
Meðaldals.
Er
nú kyrrt og líður á vorið. Fer Börkur suður á Þórsnes og ætlar
að ráðast þangað og þykist enga virðingaför hafa farið hafa
vestur þangað, látið þvílíkan mann sem Þorgrímur var en fengið
enga leiðréttu. Hann býr nú ferð sína og skipar til bús síns
og að setja ráð sitt en ætlaði að ger aðra för eftir fé sínu
og konu. Þorkell ætlaði og þangað að ráðast, Súrsson, og bjóst
í för með Berki, mági sínum.
Frá
því er sagt að Þórdís Súrsdóttir hefur leitt Börk á götu, kona
hans, en systir Gísla.
Þá
mælti Börkur: "Nú vil eg að þú segir mér hví þú varst svo
óglöð fyrst á hausti þá er vér slitum leiknum og þú hefur því
heitið að segja mér áður en eg færi heiman."
Þau
eru nú og komin að hauginum Þorgríms er þau ræða þetta. Þá
stingur hún við fótum og kveðst eigi fara lengra; segir hún nú
hvað Gísli hafi kveðið þá er hann leit hauginn Þorgríms og
kveður fyrir honum vísuna. "Og nú ætla eg," segir hún, "að þú
þurfir eigi annan veg eftir að leita um víg Þorgríms og munu
rétt búin málin honum á hendur."
Börkur
verður við þetta ákaflega reiður og mælti: "Nú vil eg þegar
aftur snúa og drepa Gísla. En þó veit eg eigi," sagði hann,
"hvað satt er í þessu er Þórdís segir og þykir mér hitt eigi
ólíkara að engu gegni og eru oft köld kvenna ráð."
Og
ríða þeir Sandaleið, svo getur Þorkell um talið, þar til er
þeir koma að Sandaós; þá stíga þeir af baki og æja. Börkur var
fámálugur en Þorkell sagði að hann vildi hitta Önund, vin
sinn. Hann ríður þegar svo hart að brátt felur sýn. Hann snýr
þá leið sinni út á Hól og segir nú Gísla hvað títt er að
Þórdís hefur nú upp rofið málið og rannsakað vísuna, "máttu nú
og svo við búast að upp er komið máli."
Gísli
þagnar og kvað vísu:
11
Gatat
sál fastrar systir,
sveigar,
mín að eiga
gætin,
Gjúka dóttur
Goðrúnar
hugtúnum;
þás
log-Sága lægis
lét
sinn, af hug stinnum
svá
rak snjallra bræðra
sör-Freyja,
ver deyja.
"Og
þóttist eg eigi þess verður frá henni því að eg þykist það
lýst hafa nokkrum sinnum að mér hefur eigi hennar óvirðing
betri þótt en sjálfs mín; hef eg stundum lagt líf mitt í háska
fyrir hennar sakir en hún hefur nú gefið mér dauðaráð. En það
vil eg nú vita, bróðir, hvað eg skal þar eiga sem þú ert,
slíkt sem nú hef eg að gert."
"Að
gera þig varan við ef menn vilja drepa þig en bjargir veiti eg
þér engar, þær er mér megi sakir á gefa. Þykir mér mikið af
gert við mig að drepinn er Þorgrímur, mágur minn og félagi og
virktavinur."
Gísli
svarar: "Var eigi þess von um slíkan mann sem Vésteinn var að
eigi myndi mannhefndalaust vera og myndi eg eigi þér svo svara
sem þú svarar mér nú og eigi heldur gera."
Nú
skilja þeir. Fer Þorkell til móts við Börk og fara þeir suður
til Þórsness og skipar Börkur til bús síns; en Þorkell kaupir
land á Barðaströnd, það er í Hvammi hét.
Nú
kemur að stefnudögum og fer Börkur vestur með fjóra tugi manna
og ætlar að stefna Gísla til Þórsnessþings og er Þorkell
Súrsson þar í för og systursynir Barkar, Þóroddur og
Saka-Steinn; þar var og í för Austmaður einn er Þorgrímur hét.
Þeir ríða nú til Sandaóss.
Þá
mælti Þorkell: "Eg á skuld að heimta hér á einum bæ litlum,"
og nefndi bæinn, "og vil eg þangað ríða og heimta skuldina en
þér ríðið eftir tómlega."
Nú
ríður Þorkell fyrir og er hann kom þar sem hann hafði á kveðið
þá biður hann húsfreyju að hún skipti hestum við sig og láti
þennan sama standa fyrir dyrum, "og kasta vaðmáli yfir
söðulinn og er förunautar mínir koma eftir þá seg þú að eg
sitji inni í stofu og telji eg silfur."
Nú
fær hún honum hest annan og ríður hann nú skyndilega og kemur
í skóga og hittir Gísla og segir honum hvað vera er að Börkur
er vestan kominn.
20. kafli
Nú
er þar til máls að taka að Börkur býr mál til Þórsnessþings á
hendur Gísla um víg Þorgríms. Á þeirri stundu selur Gísli land
sitt Þorkatli Eiríkssyni og tók við lausafé; það var honum
mjög innan handar. Hann spyr Þorkel bróður sinn ráða eða hvað
hann legði til með honum eða hvort hann vill nokkra ásjá veita
honum. Hann svarar sem fyrr að hann kveðst mundu gera honum
njósn ef honum væru aðfarir veittar en kveðst mundu firra sig
sakagiftum.
Þorkell
ríður nú á brott og víkur svo reið sinni að hann kemst á bak
þeim Berki og seinkar nú ferðina þeirra heldur.
Gísli
tekur nú eyki tvo og ekur til skógar með fjárhlut sinn og með
honum þræll hans, Þórður hinn huglausi.
Þá
mælti Gísli: "Oft hefur þú mér hlýðinn verið og minn vilja
gert og á eg þér góðu að launa." Það var vandi Gísla að hann
var í kápu blárri og vel búinn; hann varpar þá af sér kápunni
og mælti: "Kápu þessa vil eg gefa þér, vinur, og vil eg að þú
njótir nú þegar og farir í kápuna og sit síðan í sleðanum,
þeim er síðar fer, en eg mun leiða eykina og vera í kufli
þínum."
Þeir
gera nú svo. Þá mælti Gísli: "Ef svo ber til að nokkrir menn
kalla á þig þá skaltu þess mest gæta að svara aldregi en ef
nokkrir menn vilja þér mein gera þá haltu til skógarins."
En
það var mjög jafnfært um vit og hugrekki því að hvorugt var
neitt til.
Gísli
leiðir nú eykina. Þórður var mikill maður vexti og bar hann
hátt í sleðanum; hrósaði hann sér og heldur og þóttist veglega
búinn. Nú sjá þeir Börkur för þeirra er þeir fara til
skógarins og hleypa eftir hvatlega. En er Þórður sér það þá
hleypur hann úr sleðanum sem hann má harðast og til skógarins.
Þeir hyggja Gísla þar fara og halda eftir sem ákafast og kalla
á hann sem þeir geta. En hann þegir við og hleypur sem hann
má. Þorgrímur Austmaður skýtur eftir honum spjóti og kemur
milli herða honum svo hart að hann fellur við áfram og var það
hans banasár.
Þá
mælti Börkur: "Skjóttu allra manna heilastur."
Þeir
bræður ræddu sín á milli að þeir mundu fara eftir þrælnum og
vita ef nokkur hugur er í honum; þeir snúa nú til skógarins.
Nú
er frá því að segja að þeir Börkur koma að blákápumanninum og
draga af honum kápuhöttinn og þykir nú minna happ í en þeir
ætluðu því að þeir kenndu þar Þórð hinn huglausa er þeir
ætluðu Gísla.
Það
er nú sagt að þeir bræður koma að skóginum en Gísli er kominn
í skóginn og sér hann þá svo þeir hann. Þá skýtur annar þeirra
spjóti til hans en Gísli tík það á lofti og skaut aftur og
kemur á Þórodd miðjan og fló gegnum hann. Nú snýr Steinn í
móti félögum sínum og segir heldur ógreiðfært um skóginn.
Börkur vill þó þangað að leita og svo gera þeir. Og er þeir
koma að skóginum þá sér Þorgrímur Austmaður hvar limið hrærist
í einum stað og skýtur spjóti á gegngert og kemur í kálfann á
Gísla. Hann sendir aftur spjótið og rekur gegnum Þorgrím og
lætur hann líf sitt.
Nú
leita þeir um skóginn og finna Gísla eigi og hverfa aftur við
svo búið til bæjarins og búa nú mál til á hendur Gísla um víg
Þorgríms. Engan hlut taka þeir þaðan í fjárhlutum og fara
síðan heim.
Gísli
fer nú á fjallið að húsbaki og bindur sár sitt meðan þeir
Börkur voru á bænum. Og er þeir voru á brottu fór Gísli heim
og býr þegar ferð sína og fær sér skip og flytur þangað á
mikinn fjárhlut og fer Auður, kona hans, með honum og
Guðríður, fóstra hans, og út til Húsaness og koma þar við
land. Gísli gengur þar upp til bæjarins og hittir þar mann og
spyr sá hver hann væri en Gísli sagði til slíkt er honum
sýndist en ekki það sem var. Gísli tekur upp stein einn og
kastar út í hólm þann er þar var fyrir landi og bað þar
bóndason eftir gera þá er hann kæmi heim og kvað hann þá vita
mundu hver maðurinn þar hefði komið. En það var einskis manns
að inna og koma þar þá enn það fram að Gísli var betur að
íþróttum búinn en flestir menn aðrir. Eftir það gengur hann á
bátinn og rær út yfir nesið og yfir Arnarfjörð og yfir fjörð
þann er gengur inn af Arnarfirði er heitir Geirþjófsfjörður og
býst hann þar um og gerir þar alhýsi og er þar um veturinn.
21. kafli
Það
er nú þessu næst að Gísli gerir orð mágum sínum, Helga og
Sigurði og Vestgeiri, að þeir fari til þings og bjóði sætt
fyrir hann að hann yrði eigi sekur. Og fara þeir til þings,
Bjartmarssynir, og koma engu áleiðis um sættina og kalla menn
að þeir hafi illa borið sig svo að þeim hafi næsta í allt skap
komið áður en létti. Þeir segja Þorkatli auðga hvað títt er og
kváðust eigi þora að segja Gísla sekt sína. Urðu þar engin
önnur tíðindi á þinginu en Gísli verður sekur. Þorkell auðgi
fer þá til fundar við Gísla og sagði honum sekt sína.
Þá
kvað Gísli vísu þessa:
12
Myndit
þá
á
Þórsnesi
meðallok
á
minni sök,
ef
Vésteins
væri
hjarta
Bjartmars
sonum
í
brjóst lagt.
13
Þá
glúpnuðu,
es
glaðir skyldu,
móðurbræðr
minna
kvánar,
sem
eyðendr
eggi
væri
fjarðar
dags
fúlu
lostnir.
14
Luku
þungliga á þingi,
þau'ro
orð komin norðan,
saldeilandi
sólar,
sómlaust
á mik dómi;
þar
sem bláserkjar Berki,
báru
hreins, ok Steini,
veitir
dags ens vegna,
valdr
hermila at gjalda.
Nú
spyr Gísli hvers hann skal von eiga hjá þeim. Þeir segjast,
hafnar báðir, munu skjóta skjóli yfir hann með þeim hætti að
þeir létu eigi fé sitt fyrir þá sök. Fer Þorkell heim eftir
þetta.
Svo
er sagt að Gísli var þrjá vetur í Geirþjófsfirði en stundum
með Þorkatli Eiríkssyni en aðra þrjá vetur fer hann um allt
Ísland og hittir höfðingja og biður sér liðs. En sakir þess
tröll skapar er Þorgrímur nef hafði haft í seiðnum og atkvæða,
þá verður þess eigi auðið að höfðingjar tækju við honum og þó
að stundum þætti þeim eigi svo ólíklega horfa þá bar þó alls
staðar nokkuð við. Hann var þó löngum með Þorkatli Eiríkssyni
og hefur hann nú sex vetur verið í sektinni. Eftir þetta er
hann stundum í Geirþjófsfirði á bæ Auðar en stundum í fylgsnum
fyrir norðan ána er hann hafði gert sér; annað fylgsni átti
hann við kleifarnar suður frá garði og var hann ýmist.
22. kafli
Nú
er Börkur spyr þetta þá býr hann heiman för sína og hittir
Eyjólf hinn gráa er þá bjó í Arnarfirði í Otradal og beiðir
hann að hann leiti eftir Gísla og drepi hann sektinni og
kveðst mundu gefa honum til þrjú hundruð silfurs, þess að
allgott sé, að hann leggi á alla stund að leita eftir honum.
Hann tekur við fénu og heitir sinni umsýslu.
Sá
er maður var með Eyjólfi er Helgi hét og var kallaður
Njósnar-Helgi; hann var bæði frár og skyggn og var honum um
alla fjörðu kunnugt. Hann er sendir í Geirþjófsfjörð að vita
hvort Gísli væri þar. Hann verður var við manninn og veit eigi
hvort Gísli er eða annar maður. Hann fer heim og segir Eyjólfi
til svo búins. Hann kveðst víst vita að það muni Gísli verið
hafa og bregður við skjótt og fer heiman við sjöunda mann í
Geirþjófsfjörð og verður ekki var við Gísla og fer við svo
búið aftur heim.
Gísli
var vitur maður og draumamaður mikill og berdreymur.
Það
kemur saman með öllum vitrum mönnum að Gísli hafi lengst allra
manna í sekt gengið annar en Grettir Ásmundarson.
Frá
því er sagt eitt haust að Gísli lét illa í svefni nótt eina þá
er hann var á bæ Auðar og er hann vaknar spurði hún hvað hann
dreymdi.
Hann
svarar: "Eg á draumkonur tvær," sagði hann, "og er önnur vel
við mig en önnur segir mér það nokkuð jafnan er mér þykir verr
en áður og spáir mér illt eina. En það dreymdi mig nú að eg
þóttist ganga að húsi einu eða skála og inn þóttist eg ganga í
húsið og þar kenndi eg marga inni, frændur mína og vini. Þeir
sátu við elda og drukku og voru sjö eldarnir, sumir voru mjög
brunnir en sumir sem bjartastir. Þá kom inn draumkona mín hin
betri og sagði að það merkti aldur minn hvað eg ætti eftir
ólifað og hún réð mér það meðan eg lifði að láta leiðast
fornan sið og nema enga galdra né forneskju og vera vel við
daufan og haltan og fátæka og fáráða. Eigi var draumurinn
lengri."
Þá
kvað Gísli vísur nokkrar;
15
Fold,
komk inn þars eldar,
unnfúrs,
í sal brunnu,
eir
várum þar aura,
einn
ok sex, at meini;
sák
blíðliga báðar
bekksagnir
mér fagna;
hróðrdeilir
bað heilan
hvern
mann í því ranni.
16
Hyggið
at, kvað Egða
andspilli
Vör banda,
mildr,
hvé margir eldar,
malmrunnr,
í sal brunnu;
svá
átt, kvað Bil blæju,
bjargs
ólifat marga,
veðrs
Skjöldunga valdi,
vetr;
nú's skammt til betra.
17
Gerskat
næmr, kvað Nauma
niðleiks
ara steikar
árr,
nema allgótt heyrir,
Iðja
galdrs, að skaldum;
fátt
kveða fleyja brautar
fúrþverranda
verra,
randar
logs ens reynda
runnr,
en illt at kunna.
18
Vald
eigi þú vígi,
ves
þú ótyrrinn, fyrri,
morðs
við mæti-Njörðu,
mér
heitið því, sleitu;
baugskyndir,
hjalp blindum,
Baldr,
hygg at því, skjaldar,
illt
kveða háð ok höltum,
handlausum
tý, granda.
23. kafli
Nú
er frá því að segja að Börkur þrýstir að Eyjólfi fast og þykir
eigi svo fylgt sem hann vildi og þykir eigi mikið koma fyrir
féð, það er hann fékk honum í hendur og kveðst þess vís vera
orðinn að Gísli væri í Geirþjófsfirði og segir það mönnum
Eyjólfs er á milli fara að hann leiti eftir Gísla ellegar hann
kveðst sjálfur mundu fara. Eyjólfur vaknar við skjótt og
sendir enn Njósnar-Helga til Geirþjófsfjarðar og hefur hann nú
vistir með sér og er á brott viku og situr nú um að hann yrði
var við Gísla. Sér nú einn dag að hann gengur frá leynum sínum
og kennir Gísla. Lætur hann nú verða við brugðið og fer á
brott og segir Eyjólfi hvers hann er vís orðinn.
Eyjólfur
býr nú ferð sína heiman með níunda mann og fer til
Geirþjófsfjarðar og hittir á bæ Auðar. Þeir finna eigi Gísla
þar og fara nú um alla skóga að leita Gísla og finna hann
eigi, koma aftur til bæjar Auðar og býður Eyjólfur henni mikið
fé til að segja til Gísla. En það fer fjarri að hún vilji það.
Þá heitast þeir að meiða hana að nokkru og tjáir það alls ekki
og verður við það heim að fara. Þykir þessi för hin
hæðilegasta og er Eyjólfur heima um haustið.
En
þó að Gísli yrði þá eigi fundinn þá skilur hann þó að hann
muni tekinn verða er skammt er á milli. Gísli ræðst nú heiman
og inn til Strandar og ríður á fund Þorkels bróður síns í
Hvamm. Hann drepur þar á dyr á svefnhúsi því er Þorkell liggur
í og gengur hann út og heilsar Gísla.
"Nú
vil eg vita," sagði Gísli, "ef þú vilt mér nokkurn fullting
veita; vænti eg nú af þér góðrar liðveislu; er nú mjög þröngt
að mér; hef eg og lengi til þessa sparast."
Þorkell
svarar hinu sama og kveðst enga björg munu veita honum, þá er
hann megi sakir á gefa en kveðst mundu fá honum silfur eða
fjararskjóta ef hann þyrfti eða aðra hluti þá sem fyrr var
sagt.
"Sé
eg nú," sagði Gísli, "að þú vilt mér ekki lið veita. Fá mér nú
þrjú hundruð vaðmála og huggast svo að eg mun sjaldan krefja
þig héðan frá liðs."
Þorkell
gerir svo, fær honum vöru og silfur nokkuð. Gísli kveðst það
nú og þiggja mundu en sagðist eigi þó svo lítillega við hann
gera mundu ef hann stæði í hans rúmi.
Gísla
þykir fyrir er þeir skiljast. Hann fer nú út í Vaðil til móður
Gests Oddleifssonar og kemur þar fyrir dag og drepur á dyr.
Gengur húsfreyja til dyra. Hún var oft vön að taka við
skógarmönnum og átti hún jarðhús; var annar jarðhússendinn við
ána en annar við eldahúsið hennar og sér enn þess merki.
Þorgerður
fagnar vel Gísla, "og mun eg það til láta við þig að þú
dveljist hér um hríð en eg má eigi vita hvort það verður
nokkuð annað en kvenvælar einar."
Gísli
kveðst nú það þiggja mundu en segir nú eigi verða körlunum svo
vel að örvænt sé að konunum verði betur. Gísli er þar um
veturinn og hefur hvergi verið jafnvel gert við hann í
sektinni sem þar.
24. kafli
Þegar
vorar fer Gísli aftur í Geirþjófsfjörð og má þá eigi lengur
vera í brott frá Auði, konu sinni; svo unnast þau mikið; er nú
þar um sumarið á laun og til þess er haustar. Og kemur nú á
þref um draumana þegar lengir nóttina og kemur nú hin verri
draumkonan að honum og gerast nú svefnfarir harðar og segir nú
eitt sinn Auði hvað hann dreymdi er hún spurði eftir og kvað
þá vísu:
19
Villa
oss, ef elli
oddstríðir
skal bíða
mér
gengr Sjöfn í svefna
sauma,
mínir draumar;
stendr
eigi þat, þeygi,
þornreið,
bragar greiði
öl-Nanna
selr annars
efni,
mér fyr svefni.
Og
nú segir Gísli að konan nú hin verri kemur oft að honum og
vill jafnan ríða hann blóði og roðru og þvo honum í og lætur
sér illilega.
Þá
kvað hann enn vísu:
20
Eigi
verðr, en orða
oss
lér of þat, borða
Gefn
drepr fyr mér glaumi,
gótt
ór hverjum draumi,
kemr,
þegars ek skal blunda,
kona
við mik til funda,
oss
þvær unda flóði,
öll
í manna blóði.
Og
enn kvað hann:
21
Sagt
hefk enn frá órum
oddflaums
viðum draumi,
Eir,
varðat mér, aura,
orðfátt,
es munk láta;
verr
hafa vápna snerru
vekjendr,
þeirs mik sekðu,
brynju
hatrs ens bitra
beiðendr,
ef nú reiðumk.
Og
eru nú kyrr tíðindi. Fer Gísli nú til Þorgerðar og er með
henni annan vetur. En um sumarið eftir fer hann í
Geirþjófsfjörð og er þar uns haustar. Þá fer hann enn til
Þorkels, bróður síns, og drepur þar á dyr. Þorkell vill ekki
út ganga og tekur Gísli kefli og ristir á rúnir og kastar inn.
Það sér Þorkell og tekur upp og lítur á og stendur upp síðan,
gengur út og heilsar gísla og spyr tíðinda.
Hann
kveðst ekki kunna að segja, "og er eg nú kominn hið síðasta
sinn á þinn fund, frændi, og lát nú verða að sköruglegri
liðveislu en eg mun því launa að eg mun aldrei krefja þig
oftar."
Þorkell
svarar enn hinu sama og fyrr, býður honum hross eða skip en
skerst undan allri liðveislu. Gísli þiggur skip og biður
Þorkel segja fram með sér skipið. Hann gerir svo og fær honum
sex vættir matar og hundrað vaðmála. Og er Gísli er á skip
kominn stendur Þorkell á landi.
Þá
mælti Gísli: "Nú þykist þú öllum fótum í etu standa og vera
vinur margra höfðingja og uggir nú ekki að þér en eg er sekur
og hef eg mikinn fjandskap margra manna. En það kann eg þér að
segja að þú munnt þó fyrr drepinn en eg. Og munum við nú
skilja og verr en vera skyldi og sjást aldrei síðan en vita
skaltu það að eigi myndi eg svo við þig gera."
"Ekki
hirði eg um spár þínar," sagði Þorkell, og skildust við svo
búið.
Fer
Gísli inn til Hergilseyjar á Breiðafjörð. Þá tekur hann úr
skipinu þiljur og þóftur, árar og allt það sem laust var
innbyrðis og hvelfir skipinu og lætur reka inn að Nesjum. Og
nú geta menn þess til er sjá skipið að Gísli muni drukknaður
vera er skipið er brotið og rekið á land og muni tekið hafa
frá Þorkatli bróður sínum.
Nú
gengur Gísli í Hergilsey til húss. Þar býr sá maður er
Ingjaldur hét; kona hans hét Þorgerður; Ingjaldur var
systrungur Gísla að frændsemi og hafði með honum farið út
hingað til Íslands. Og er þeir hittast býður hann Gísla allan
greiða og alla björg þá er hann mátti honum veita og það
þiggur Gísli og er þar síðan um kyrrt nokkra stund.
25. kafli
Með
Ingjaldi var þræll og ambátt; þrællinn hét Svartur en ambáttin
hét Bóthildur. Helgi hét sonur Ingjalds og var afglapi sem
mestur mátti vera og fífl; honum var sú umbúð veitt að
raufarsteinn var bundinn við hálsinn og beit hann gras úti sem
fénaður og er kallaður Ingjaldsfífl; hann var mikill vexti,
nær sem tröll.
Gísli
er þar þann vetur og smíðar skip Ingjaldi og marga hluti aðra.
En allt það sem hann smíðaði þá var það auðkennt því að hann
var hagari en flestir menn aðrir. Menn undruðust hví það var
svo vel smíðað margt sem Ingjaldur átti því hann var ekki
hagur.
Gísli
er ávallt á sumrum í Geirþjófsfirði; fer nú svo fram þrjá
vetur frá því er hann hafði dreymt og verður honum þetta að
mestu trausti er Ingjaldur veitir honum. Þykir mönnun nú
grunsamlegt um þetta allt jafnsaman og hyggja nú að Gísli muni
lifa og hafa verið með Ingjaldi en eigi drukknaður sem sagt
hafði verði. Leggja menn nú ræðu á. Ingjaldur á nú þrjú skip
og öll vel ger.
Kemur
þessi kvittur fyrir Eyjólf hinn gráa og hlýtur Helgi enn að
fara og kemur hann í Hergilsey. Gísli er ávallt í jarðhúsi þá
er menn koma í eyna. En Ingjaldur var góður gestgjafi og býður
Helga gisting; þar var hann um nóttina.
Ingjaldur
var iðjumaður mikill; hann reri á sjó hvern dag er sjófært
var. Og um morguninn er hann var búinn til útróðrar spyr hann
hvort Helga er ekki ákaft um ferðina eða hví hann liggur. Hann
kvað sér vera ekki einkar skjallt og blés við og strauk
höfuðbeinin. Ingjaldur bað hann þá liggja sem kyrrastan og fer
hann til sjávar en Helgi tekur að stynja fast.
Nú
er sagt að Þorgerður gengur til jarðhússins og ætlar að gefa
Gísla dögurð en þili er á millum búrsins og þess er Helgi lá
í. Þorgerður gengur í brott úr búrinu. Klífur Helgi upp á
þilið og sér að þar var manni matur deildur og í því kemur
Þorgerður inn og vinst Helgi við fast og fellur ofan af
þilinu. Þorgerður spyr því hann lætur svo að klífa í ræfur upp
og vera eigi kyrr.
Hann
kveðst svo óðvirki vera af beinverkjum að hann mátti eigi kyrr
vera, "og vildi eg," segir hann, "að þú fylgdir mér til
rekkju."
Hún
gerir svo. Síðan gengur hún brott með matinn. En Helgi rís upp
þegar og gengur eftir og sér nú hvað títt er, gengur nú aftur
og leggst niður eftir þetta og þar þann dag.
Ingjaldur
kemur heim um kveldið og fer til rekkju Helga og spyr hvort
honum létti nokkuð. Hann kvaðst áleiðist snúast og beiðir sér
farnings um morguninn úr eynni og er hann fluttur suður til
Flateyjar og fer síðan suður til Þórsness; segir nú að hann er
orðinn var við að Gísli er með Ingjaldi.
Síðan
býst Börkur heiman og eru saman fimmtán, fara á skip og sigla
sunnan yfir Breiðafjörð.
Þennan
dag er Ingjaldur róinn á vastir og Gísli með honum en þræll
hans og ambátt á öðru skipi og sátu hjá eyjum nokkrum, þeim er
heita Skutileyjar.
26. kafli
Nú
sér Ingjaldur að skipið siglir sunnan og mælti: "Skip siglir
þarna og hygg eg að þar muni vera Börkur hinn digri."
"Hvað
er þá til ráðs takandi?" sagði Gísli; "eg vil vita hvort þú
ert svo hygginn sem þú ert drengurinn góður."
"Skjótt
er til ráða að taka," sagði Ingjaldur, "þó að eg sé enginn
viturleiksmaður; Róum sem ákafast að eynni og göngum síðan upp
á Vaðsteinaberg og verjumst meðan vér megum upp standa."
"Nú
fór sem mig varði," sagði Gísli, "að þú myndir hitta það ráðið
að þú mættir drengurinn af verða sem bestur; en verri laun sel
eg þér þá fyrir liðveisluna en eg hafði ætlað ef þú skalt
fyrir mínar sakir lífið láta. Nú skal það vera aldrei og skal
annað ráð taka. Þú skalt róa að eynni og þrællinn og ganga upp
á bergið og búist að verjast og munu þeir ætla mig annan
manninn er sigla sunnan fyrir nesið. En eg mun skipta klæðum
við þrælinn sem eitt sinn fyrr og mun eg fara á bátinn með
Bóthildi."
Ingjaldur
gerði sem Gísli ráðlagði; fannst það eitt á að hann var hinn
reiðasti.
Og
er þeir skilja þá mælti Bóthildur: "Hvað er nú til ráðs?"
Gísli
kvað vísu:
22
Ráðs
leitar nú rítar
ruðr,
vekjum mjöð Suðra
skorð,
þvít skiljask verðum
skjaldsteins,
frá Ingjaldi;
þó
munk, hyrs, að hváru
hafa,
bláfoldar skafla
snyrtigátt,
né sýtik,
snauð,
þats mér verðr auðit.
Nú
róa þau suður í móti þeim Berki og láta sem ekki væri til
vandræða.
Þá
segir Gísli fyrir hversu hátta skal: "Þú skalt segja," segir
hann, "að hér sé fíflið innan borðs en eg mun sitja í stafni
og herma eftir því og vefja mig vaðnum og vera stundum utan
borðs og láta sem eg má ærilegast og ef nokkur ber þá um fram
mun eg róa sem eg má og leita þess á að sem skjótast skilji
með oss."
Og
nú rær hún í móti þeim og þó eigi allnærri þeim Berki og lætur
sem hún bregði til miða.
Nú
kallar Börkur á hana og spyr ef Gísli væri í eynni.
"Eigi
veit eg það," segir hún, "en hitt veit eg að er þar sá maður
er mjög ber af öðrum mönnum, þeim sem í eynni eru, bæði að
vexti og hagleik."
"Já,"
segir Börkur, "en hvort er Ingjaldur bóndi heima?"
"Löngu
áðan reri hann til eyjarinnar," sagði hún, "og þræll hans með
honum að því er eg hugði."
"Það
mun þó eigi verið hafa," sagði Börkur, "og mun Gísli það verið
hafa og róum eftir þeim sem ákafast."
Þeir
svöruðu: "Gaman þykir oss að fíflinu," og horfa á það, "svo
sem það getur ærilega látið."
Þeir
sögðu að hún var hörmulega stödd er hún skyldi fylgja fóla
þessum.
"Svo
þykir mér og," segir hún, "en hitt finn eg á að yður þykir
hlægilegt og harmið mig alllítt."
"Förum
ekki að heimsku þessari," sagði Börkur, "og víkjum áleiðis."
Skiljast
þau nú og róa þeir til eyjarinnar og ganga á land og sjá nú
mennina á Vaðsteinabergi og snúa þangað og hyggja allgott til
sín.; en þeir eru uppi á berginu, Ingjaldur og þrællinn.
Börkur
kennir brátt mennina og mælti til Ingjalds: "Hitt er nú ráð að
selja fram Gísla eða segja til hans ella og ertu mannhundur
mikill er þú hefur leynt bróðurbana mínum og ert þó minn
landseti og værir þú ills verður frá mér og væri það sannara
að þú værir drepinn."
Ingjaldur
svarar: "Eg hef vond klæði og hryggir mig ekki þó að eg slíti
þeim eigi gerr; og fyrr mun eg láta lífið en eg geri eigi
Gísla það gott sem eg má og firra hann vandræðum."
Og
það hafa menn mælt að Ingjaldur hafi Gísla mest veitt og það
að mestu gagni orðið; og það er sagt að þá er Þorgrímur nef
gerði seiðinn að hann mælti svo fyrir að Gísla skyldi ekki að
gagni verða þó að menn byrgju honum hér á landi; en það kom
honum eigi í hug að skilja til um úteyjar og entist því þetta
hóti lengst þótt eigi yrði þess álengdar auðið.
27. kafli
Berki
þykir eigi það til liggja að veita Ingjaldi aðgöngu, landseta
sínum; hverfa þeir nú frá til bæjar og leita þar Gísla og
finna hann eigi sem von var. Þeir fara nú um eyja og koma þar
að í einum stað er fíflið lá og beit gras í dalverpi einu og
bundinn steinn við hálsinn.
Þá
tekur Börkur til orða: "Bæði er nú að mikið er sagt frá
fíflinu Ingjalds enda deilist það nú heldur víðara en eg hugði
og er hér ekki á að horfa og hefur oss orðið svo mikil
vanhyggja að stóru ber; og eigi veit eg nær vér fáum þetta
leiðrétt og mun Gísli þar verið hafa á bátnum hjá oss og mun
hafa látið eftir fíflinu því að hann er við hvorttveggja
brugðinn og er hin mesta hermikráka; og er það skömm
jafnmörgum mönnum ef hann skal nú komast úr höndum oss og
skundum eftir honum og látum hann nú eigi úr færi ganga."
Síðan
hlaupa þeir á skip og róa eftir þeim og falla fast við árar.
Þeir geta að líta að þau eru komin langt inn á sund og sækja
nú hvorirtveggja fast róðurinn. Rennir það skipið meira sem
mennirnir voru fleiri á og leggst svo nærri um síðir að þá er
Börkur kominn í skotfæri er þau eru komin að landi.
Þá
tekur Gísli til orða og mælti við ambáttina: "Nú munum við
skiljast og er hér gull að þú skalt færa Ingjaldi en annað
konu hans og seg þeim að þau gefi þér frelsi og ber þetta til
jartegna. eg vil og að Svarti sé frelsi gefið. Máttu að vísu
heita minn lífgjafi og vil eg að þú njótir þess."
Nú
skilja þau og hleypur Gísli á land og í hamraskarð nokkuð er
það er á Hjarðanesi. Ambáttin reri í brott, alsveitt af mæði
og rauk af henni.
Þeir
Börkur róa að landi og verður Saka-Steinn skjótastur af
skipinu og hleypur að leita Gísla; og er hann kemur í
hamraskarðið stendur Gísli fyrir með brugðið sverð og keyrir
þegar í höfuð honum svo að stóð í herðum niðri og féll hann
dauður á jörð. Þeir Börkur ganga nú upp á eyna en Gísli
hleypur á sund og ætlar að leggjast til lands. Börkur skýtur
eftir honum spjóti og kom í kálfann á honum og skar út úr og
varð það mikið sár. Hann kemur á brott spjótinu en týnir
sverðinu því að hann var svo móður að hann gat eigi á haldið.
Þá var myrkt af nótt. Er hann komst að landi þá hleypur hann í
skóg því að þá var víða skógum vaxið. Þá róa þeir Börkur að
landi og leita Gísla og kvía hann í skóginum og er hann svo
móður og stirður að hann má varla ganga og verður nú var við
menn alla vega frá sér.
Nú
leitar hann ráðs og fer ofan til sjávarins og kemst þar inn
með flæðarbökkum til Haugs í myrkrinu og hittir bónda einn er
Refur hét og var allra manna slægastur. Hann heilsar honum og
spyr tíðinda. Hann sagði allt hversu farið hafði með þeim
Berki. Refur átti sér konu er Álfdís hét, væn að yfirliti en
fárskona sem mest í skapi og var hinn mesti kvenskratti; með
þeim Ref var jafnræði.
Og
er hann hefur sagt Ref tíðindin skorar Gísli á hann til
fulltingis, "og munu þeir koma hér brátt," sagði Gísli, "og
ekur nú að mjög en fáir verða til liðveislu."
"Eg
mun gera á nokkurn," sagði Refur, "þann að ráða einn hversu að
með skal vara að veita þér og hlutast þú til einskis."
"Það
skal nú þiggja," sagði Gísli, "og mun eg eigi ganga fæti
framar."
"Gakk
þú inn þá," sagði Refur og svo gerðu þeir."
Þá
mælti Refur við Álfdísi: "Nú mun eg skipta mönnum við þig í
rekkjunni," og tekur nú fötin öll úr rúminu og mælti að Gísli
skyldi þar niður leggjast í hálminn og ber á hann ofan fötin
og hvílir nú á honum ofan hún Álfdís, "og vertu nú þar," sagði
Refur, "fyrst, hvað sem í gerist."
Hann
biður nú Álfdísi vera sem versta viðskiptis og sem ærasta, "og
spari nú ekki af," sagði Refur, "og að mæla það allt illt er
þér kemur í hug bæði í blóti og skattyrðum en eg mun ganga til
tals við þá og haga svo orðum sem mér sýnist."
Og
í annað sinn er hann kemur út sér hann menn fara og eru þar
förunautar Barkar, átta saman. En Börkur er eftir að Fossá. Og
skulu þessir þangað fara að leita að Gísla og taka hann ef
hann væri þar kominn. En Refur er úti og spyr tíðinda.
"Þau
ein kunnum vér að segja, að þú munt spurt hafa. Eða veistu
nokkuð til að fara Gísla?" segja þeir, "eða hvort hefur hann
hér nokkuð komið?"
"Það
er bæði," sagði Refur, "að hann hefur ekki hér komið enda
myndi honum skammt til skjótra ófara ef hann hefði þess
freistað; og eigi veit eg hversu trúlegt yður þykir að eg
myndi eigi óbúnari en einnhver yðar að drepa Gísla; en hef eg
það vit með mér að eg myndi þykjast ekki alllítið í vinna að
hafa slíks manns traust sem Börkur er og hans vinur vildi eg
vera."
Þeir
spyrja: "Er þér nokkuð um að vér rannsökum þig og hús þín?"
"Já,"
sagði Refur, "það vil eg gjarna; því að eg veit að þér megið
því örugglegar leita í öðrum stöðum ef þér vitið fyrir víst að
hann er eigi hér og gangið inn og leitið sem gersamlegast."
Þeir
ganga inn. Og er Álfdís heyrði hark þeirra þá spyr hún hvað
gauragangi þar væri eða hverjir glóparnir störfuðu á mönnum um
nætur. Refur bað hana að hafa sig að hófi. En hún lætur þó
eigi vant margra fíflyrða; veitir hún þeim mikla ágauð svo að
þeir máttu minni til reka. Þeir rannsaka eigi að síður og þó
minna en þeir myndu ef þeir yrðu eigi fyrir þvílíkum hrópyrðum
af húsfreyju. Fara síðan á brott og finna alls ekki og biðja
bónda vel lifa en hann bað þá vel fara. Og koma þeir aftur til
fundar við Börk og una allilla við sína för og þykjast fengið
hafa mikinn mannskaða með svívirðing en komið engu áleiðis.
Flyst
þetta nú yfir héraðið og þykir mönnum eigi úr steini hefja
hverjum óförum þeir fara fyrir Gísla. Börkur fer nú heim og
segir Eyjólfi hvað um er að vera.
Gísli
er með Ref hálfan mánuð og síðan fer hann á brott og skilja
þeir Refur góðir vinir og gefur Gísli honum hníf og belti og
voru það góðir gripir en ekki hafði hann fleira laust.
Og
eftir þetta fer Gísli í Geirþjófsfjörð til konu sinnar og
hefur nú mikið aukist hans frægð í þessum atburð. Og er það og
sannsagt að eigi hefur meir atgervimaður verið en Gísli né
fullhugi og þó varð hann eigi gæfumaður. Nú er fyrst frá
horfið.
28. kafli
Nú
er þar til máls að taka um vorið að Börkur fer til
Þorskafjarðarþings með fjölmenni og ætlar að hitta vini sína.
Gestur fer vestan af Barðaströnd og Þorkell Súrsson og fer á
sínu skipi hvor þeirra.
Og
er Gestur er albúinn koma til hans sveinar tveir og klæddir
illa og höfðu stafi í höndum. Þess verða menn vísir að Gestur
hefur launtal við sveinana og verða menn þess vísir að þeir
biðja hann fars og hann veitir þeim.
Þeir
fara nú með honum á Hallsteinsnes. Þar ganga þeir á land og
fara sem leiðir liggja fyrir þeim til þess er þeir koma til
Þorskafjarðarþings.
Maður
er nefndur Hallbjörn; hann var göngumaður og fór um héruðin
eigi með færri menn en tíu eða tólf en hann tjaldaði sér búð á
þinginu. Þangað fara sveinarnir og biðja hann búðarrúms og
segjast vera göngumenn. Hann kveðst veita búðarrúm hverjum
þeim er hann vill beitt hafa.
"Hef
eg hér verið mörg vor," sagði hann, "og kenni eg alla
höfðingja og goðorðsmenn."
Þeir
sveinarnir segja að þeir vildu hlíta hans ásjá og fræðast af
honum, "er okkur mikil forvitni á að sjá stóreflismenn, þar er
miklar sögur ganga frá."
Hallbjörn
kveðst mundu fara ofan til strandar og sagðist mundu kenna
hvert skip skjótlega sem kæmi og segja þeim til. Þeir biðja
hann hafa þökk fyrir léttlæti sitt. Fara nú ofan til strandar
og svo til sjávarins, sjá nú að skipin sigla að landi.
Þá
tekur sveinn hinn eldri til orða: "Hver á það skip er nú
siglir hingað næst?"
Hallbjörn
sagði að það á Börkur hinn digri.
"En
hver siglir þar næst?"
"Gestur
hinn spaki," sagði hann.
"En
hverjir sigla þar næst og leggja skip sitt við fjarðarhornið?"
"Það
er Þorkell Súrsson," sagði hann.
Þeir
sjá nú að Þorkell gengur á land og sest niður einhvers staðar
meðan þeir flytja varnað þeirra af skipinu svo sem sjórinn
félli á land. En Börkur tjaldar búð þeirra. Þorkell hafði
gerskan hatt á höfði og feld gráan og gulldálk um öxl en sverð
í hendi. Síðan gengur Hallbjörn og sveinarnir með honum þangað
að sem Þorkell situr.
Nú
tekur annar sveinninn til orða, sá hinn eldri, og mælti: "Hver
er sá hinn göfuglegi er hér situr? Eig hef eg séð vænni mann
né tígulegri."
Hann
svarar: "Vel fara þér orð en Þorkell heiti eg."
Sveinninn
mælti: "Allgóður gripur mun sverðið það vera sem þú hefur í
hendinni eða hvort muntu lofa mér að sjá."
Þorkell
svarar: "Furðu undarlega lætur þú um þetta en þó mun eg þetta
leyfa þér," og réttir að honum.
Sveinninn
tók við sverðinu og veik sér frá líttað og sprettir
friðböndunum og bregður sverðinu.
Og
er Þorkell sá það þá mælti hann: "Það lofaði eg þér eigi þarna
að bregða sverðinu."
"Þar
spurði eg þig ekki að leyfis," sagði sveinninn og reiðir upp
sverðið og rekur á hálsinn Þorkatli svo að af tók höfuðið.
En
þegar þessi tíðindi eru orðin þá hleypur upp Hallbjörn
göngumaður en sveinninn kastar niður sverðinu alblóðugu og
grípur upp staf sinn og hlaupa þeir með þeim Hallbirni og urðu
göngumenn næsta að gjalti. Þeir hlaupa upp hjá búðinni er
Börkur tjaldaði. Menn drífa þá að Þorkatli og þykjast eigi
vita hver verkið hefur unnið. Börkur spyr hverju gegndi þys
sjá eða kliður er var hjá Þorkatli.
Og
er þeir Hallbjörn hlaupa upp hjá búðinni og eru fimmtán
göngumenn og er hann Börkur spurði þessa þá svarar sá hinn
yngri sveinninn er Helgi hét en sá hét Bergur er vígið hafði
vegið: "Eigi veit eg hvað þeir þinga en það hygg eg að þeir
þræti um hvort Vésteinn hefði átt eftir dætur einar eða hefði
hann átt son nokkurn."
Hallbjörn
hleypur til búðar en sveinarnir til skógar er þar var nær og
verða eigi fundnir.
29. kafli
Menn
hlaupa nú til búðar Hallbjarnar og spyrja hve gegndi. En þeir
göngumennirnir segja að sveinar tveir ungir höfðu komið í
flokk þeirra og segja að þeim kom þetta mjög að óvörum og
kváðust engin deili á þeim vita. Þeir segja þó frá yfirlitum
þeirra og viðurtal þeirra, hvílíkt verið hafði. Börkur þykist
nú vita af orðum þeim er Helgi hafði mælt að synir Vésteins
muni verið hafa. Og eftir þetta gengur hann til fundar við
Gest og ræðst um við hann hversu með skal fara.
Börkur
mælti: "Mér er það skyldast allra manna að mæla eftir Þorkel,
mág minn. Þykir oss eigi því ólíkt hafa til borið sem synir
Vésteins muni unnið hafa verið því að eigi vitum vér annarra
manna von, þeirra er sakir hafi átt við Þorkel en þeir. Nú
kann vera að þeir hafi komist brott að sinni. Gef þú til ráð
hversu málið skal upp taka."
Gestur
svarar: "Kunna myndi eg mér ráð ef eg hefði vígið vegið að
hafa það undanbragð að málið mætti ónýtt verða ef á mér yrði
haft að nefnast annan veg en eg héti," og letur Gestur mjög að
sökin sé fram höfð.
Það
hafa menn fyrir satt að Gestur hafi verið í ráðum með
sveinunum því hann var skyldur þeim að frændsemi. Nú hætta
þeir og falla niður málin. En Þorkell er heygður að fornum sið
og fara menn heim af þinginu og gerist ekki fleira til tíðinda
á því þingi.
Börkur
unir nú illa við sína ferð sem þó átti hann stundum vanda til
og hefur þó svo búið mikla sneypu og svívirðing af þessu máli.
Sveinarnir
fara nú uns þeir koma í Geirþjófsfjörð og liggja úti tíu
dægur. Koma þeir til Auðar og er Gísli þar fyrir. Þeir koma
þar um nótt og drepa á dyr. Auður gengur til hurðar og heilsar
þeim og spyr tíðinda en Gísli lá í rekkju sinni og var þar
jarðhús undir niðri og beindi hún raust þegar ef hann þurfti
að varast. þeir segja henni nú víg Þorkels og um hvað véla
var, segja henni og hversu lengi matlausir þeir hafa verið.
"Eg
mun senda ykkur," sagði Auður, "yfir hálsinn í Mosdal til sona
Bjartmars. Skal eg fá ykkur vistir og jartegnir að þeir skjóti
yfir ykkur nokkru skjóli og geri eg því þetta að eg nenni eigi
að kveðja Gísla bjargar við ykkur."
Nú
fara sveinarnir í skóg þá er þeir mega eigi finnast og neyta
matar því að þeir höfðu lengi matar misst og leggjast síðan
niður og sofa er þeir voru mettir því að þeir voru mjög
syfjaðir.
30. kafli
Nú
er að segja frá Auði að hún gengur inn til Gísla og mælti: "Nú
skiptir mig miklu hversu þú vilt til snúa að gera minn sóma
meiri en eg er verð."
Hann
tók þegar undir og mælti: "Veit eg að þú munt segja mér víg
Þorkels, bróður míns."
"Svo
er sem þú getur," sagði Auður, "og eru hér komnir sveinarnir
og vildu að þér byrgjust að allir saman og þykjast nú ekki
traust eiga nema þetta."
Hann
svarar: "Ekki má eg það standast að sjá bróðurbana mína og
vera ásamt við þá," og hleypur upp og vill bregða sverði og
kvað vísu:
23
Hverr
of veit, nema hvassan
hjaldrís
dragi Gísli,
átt
mun fyrða frétta
færiván,
ór spánum,
alls
sigrviðir segja
snyrti
hrings af þingi,
drýgjum
vér til dauða
dáð,
Þórketil ráðinn.
Nú
sagði Auður þá á brott, "og hafði eg vit til þess að hætta
þeim eigi hér."
Gísli
sagði að þann veg var og allra best að þeir hittust eigi. Og
sefast hann brátt og eru nú kyrr ein tíðindi.
Svo
er sagt að nú eru eigi meir eftir en tveir vetur þess er
draumkonan sagði hann mundu lifa. Og er á líður er Gísli í
Geirþjófsfirði og koma aftur draumar hans allir og harðar
svefnfarir og kemur nú jafnan að honum draumkonan sú hin verri
og þó hin stundum, hin betri.
Einhverja
nótt er það enn að Gísla dreymir að konan sú hin betri kom að
honum. Hún sýndist honum ríða gráum hesti og býður honum með
sér að fara til síns innis og það þekkist hann. Þau koma nú að
húsi einu, því er nær var sem höll væri og leiðir hún hann inn
í húsið og þóttu honum þar verða hægindi í pöllum og vel um
búið. Hún bað þau þar vera og una sér vel, "og skaltu hingað
fara og þá er þú andast," sagði hún, "og njóttu hér fjár og
farsælu."
Og
nú vaknar hann og kvað vísur nokkrar eftir því sem hann
dreymdi:
24
Heim
bauð með sér sínum
saum-Hlökk
gráum blakki,
þá
var brúðr við beiði
blíð,
loftskreyti ríða;
mágrundar,
kvazk mundu,
mank
orð of þat skorðu,
hneigi-Sól
af heilu
hornflæðar
mik græða.
Og
enn kvað hann:
25
Dýr
lét drápu stjóra
dís
til svefns of vísat
lægis
elds, þars lágu,
lítt
týnik því, dýnur;
ok
með sér en svinna
saums
leiddi mik Nauma,
sákat
hól í hvílu,
hlaut
skáld sæing blauta.
26
Hingat
skalt, hvað hringa
Hildr
at óðar gildi,
fleina
þollr, með Fullu
fallheyjaðar
deyja;
þá
munt, Ullr, ok öllu,
ísungs,
féi þvísa,
þat
hagar okkr til auðar
ormláðs,
ok mér ráða.
31. kafli
Frá
því er sagt einhverju sinni að Helgi var enn sendur á njósn í
Geirþjófsfjörð og þykir mönnum áræðilegt að Gísli muni þar. Sá
maður fer með honum er Hávarður hét. Hann hafði komið út um
sumarið áður og var frændi gests Oddleifssonar. Þeir voru
sendir í skóga að höggva efnitré en þó að þetta væri yfirbragð
á þeirra ferð þá bjó þó hitt undir að þeir skyldu leita að
Gísla og vita ef þeir fyndu fylgsni Gísla. Og einn dag að
kveldi sjá þeir eld í kleifunum fyrir sunnan ána. Það var um
dagsetursskeið og niðmyrkur sem mest.
Þá
spyr Hávarður Helga hvað þá sé til ráðs, "og muntu," segir
hann, "vera þessu vanari en eg."
"Einn
mun á ger," segir Helgi, "að hlaða hér vörðu á holi þessum er
nú stöndum við á og mun þá finnast er ljós dagur er og sér
héðan frá vörðunni til kleifanna er skammt er að sjá."
Þetta
taka þeir til ráðs. Og er þeir hafa hlaðið vörðuna sagði
Hávarður sig syfja svo að hann kveðst ekki mega annað en sofa.
Hann gerir svo. En Helgi vakir og hleður það sem ógert var að
vörðunni. Og er hann hafði því lokið þá vaknar Hávarður og
biður Helga þá sofa en hann kveðst vaka mundu. Og Helgi sefur
um hríð. Og á meðan hann sefur tekur Hávarður til verks og ber
á brott vörðuna alla og sér hvern steininn í náttmyrkrinu. Og
er hann hefur það gert þá tekur hann stein einn mikinn og
keyrir niður á bergið nærri höfði Helga svo að jörðin bifaðist
við. Og þá sprettur Helgi upp og verður lafhræddur og
felmtsfullur og spurði hverju gegndi.
Hávarður
sagði: "Maður er í skóginum og hafa margir slíkir komið í
nótt."
"Það
mun Gísli verið hafa," segir Helgi, "og mun hann hafa orðið
var við okkur. Og máttu það skilja, félagi góður," segir hann,
"að við munum allir lemjast ef á okkur kemur slíkt grjót. Og
er enginn annar á ger en verða á brott sem skjótast."
Nú
rennur Helgi sem fljótast hann má hann en Hávarður gengur á
eftir og biður Helga eigi hlaupa undan sér en Helgi gaf að því
engan gaum og fór sem fætur toguðu. Og að lyktum koma þeir
báðir til skips og stíga þar á og ljósta síðan árum í sjó og
róa sem ákafast og létta eigi fyrr sinni ferð en þeir koma
heim í Otradal og segir Helgi að hann er vís orðinn hvar Gísli
er niður kominn.
Eyjólfur
víkst við skjótt og fer þegar við tólfta mann og er það í för
Helgi og Hávarður. Þeir fara til þess er þeir koma í
Geirþjófsfjörð og ganga um alla skóga að leita vörðunnar og
fylgsnis Gísla og fundu hvorugt. Nú spyr Eyjólfur Hávarð hvar
þeir settu vörðuna.
Hann
svarar: "Ekki má eg það vita því að bæði var að eg var svo
syfjaður að eg vissi fátt frá mér, enda hlóð Helgi þá vörðuna
er eg svaf. Eig þykir mér örvænt að Gísli hafi orðið var við
okkur og hafi borið brott vörðuna þá er lýsti og við vorum í
brott farnir."
Þá
mælti Eyjólfur: "Afauðið verður oss mjög um þetta mál og munum
vér aftur snúa," og svo gera þeir og kveðst Eyjólfur áður
vilja hitta Auði.
Þeir
koma nú á bæinn og ganga inn og settist Eyjólfur enn á tal við
Auði.
Hann
tekur svo til orðs: "Eg vil eig kaup við þig Auður," segir
hann, "að þú segir mér til Gísla en eg mun gefa þér þrjú
hundruð silfurs þau sem eg hef tekið til höfuðs honum. Þú
skalt og eigi við vera er vér tökum hann af lífi. Það skal og
fylgja að eg mun fá þér ráðahag þann að öllu sé betri en sjá
hefur verið. Máttu og á það líta," segir hann, "hversu
óhallkvæmt þér verður að liggja í eyðifirði þessum og hljóta
það af óhöppum Gísla og sjá aldrei frændur og nauðleytamenn."
Hún
svarar: "Þar þykir mér óvænst um," segir hún, "að vér verðum
um það sátt að þú fáir mér það gjaforð að mér þyki jafnt við
þetta. En þó er það satt sem mælt er að fé er best eftir
feigan og lát mig sjá hvort fé þetta er svo mikið og frítt sem
þú segir."
Hann
steypir nú fénu í kné henni og hefur hún hönd í en hann telur
og tjáir fyrir henni. Guðríður, fóstra hennar, tekur að gráta.
32. kafli
Síðan
gengur hún út og til móts við Gísla og segir honum: "Fóstra
mín er nú vitlaus orðin og vill svíkja þig."
Gísli
mælti: "Ger þú þér gott í hug því að eigi mun mér það að
fjörlesti verða að Auður blekki mig," og kvað vísu:
27
Segja
menn, at manni
mjöð-Hlín
hafi sínum,
fjarðar
elgs, of folgit
fleyvangs
hugi ranga;
en
grjótöluns grátna
golffit
vitum sitja;
hykkat
hælibrekku
hrannlogs
at því sanna.
Eftir
þetta fer mærin heim og segir ekki hvert hún hefur farið.
Eyjólfur
hefur þá talið silfrið en Auður mælti: "Í engan stað er féð
minna eða verra en þú hefur sagt. Og mun þér nú þykja eg
heimilt eiga að gera af slíkt er mér sýnist."
Eyjólfur
tekur því glaðlega og bað hana að vísu gera af slíkt er hún
vill.
Auður
tekur nú féð og lætur koma í einn stóran sjóð, stendur hún
síðan upp og rekur sjóðinn með silfrinu á nasir Eyjólfi svo að
þegar stekkur blóð um hann allan og mælti: "Haf nú þetta fyrir
auðtryggi þína og hvert ógagn með. Engin von var þér þess að
eg myndi selja bónda minn í hendur illmenni þínu. Haf nú þetta
og með bæði skömm og klæki. Skaltu það muna, vesall maður,
meðan þú lifir að kona hefur barið þig. En þú munt ekki að
heldur fá það er þú vildir."
Þá
mælti Eyjólfur: "Hafið hendur á hundinum og drepi, þó að
blauður sé."
Hávarður
tekur þá til orða: "Þó er för vor helsti ill þó að vér vinnum
eigi þetta níðingsverk og standi menn upp og láti hann eigi
þessu ná."
Eyjólfur
mælti: "Satt er hið fornkveðna; án er ills gengis nema heiman
hafi."
Hávarður
var vinsæll maður og voru margir búnir að veita honum lið til
þessa en í annan stað að firra Eyjólf óhappi og verður hann nú
svo búið að hafa og fer á brott við þetta.
En
áður en Hávarður gengi út mælti Auður: "Ekki mun sannlegt að
halda skuld þeirri er Gísli á að gjalda þér og er hér
fingurgull er eg vil að þú hafir."
"Ekki
myndi eg þetta þó heimt hafa," segir Hávarður.
"Eg
vil nú þó gjalda," segir Auður.
Hún
gaf honum þó raunar gullið fyrir liðveislu sína. Hávarður fékk
sér hest og fer suður á Strönd til Gests Oddleifssonar og vill
eigi lengur vera með Eyjólfi. Eyjólfur fer heim í Otradal og
unir illa sinni ferð enda þótti mönnum þessi ferð hin
hæðilegasta.
33. kafli
Líður
nú svo sumarið að Gísli er í jarðhúsum sínum og er var um sig
og ætlar hann nú ekki í brott. Þykir honum nú fokið vera í öll
skjól; nú eru og liðnir draumavetur hans gervallir.
Það
ber enn til einhverja nótt um sumarið að Gísli lætur illa í
svefni. En er hann vaknar spyr Auður hvað hann hefði dreymt.
Hann
segir að nú kom að honum draumkonan sú hin verri og mælti svo:
"Nú skal eg því öllu bregða er hin betri draumkonan mælti við
þig og skal eg þess ráðandi að þér skal þess ekki að gagni
verða er hún hefur mælt."
Þá
kvað Gísli vísu:
28
Skuluða
it, kvað skorða
skapkers,
saman verja
svá
hefr ykkr til ekka
eitr
góðmunar leitat;
allvaldr
hefir aldar
erlendis
þik sendan
einn
ór yðru ranni
annan
heim at kanna.
"Það
dreymdi mig enn," sagði Gísli, "að sjá kona kom til mín og
bakk á höfuð mér dreyruga húfu og þó áður höfuð mitt í blóði
og jós á mig allan svo að eg varð alblóðugur."
Gísli
kvað vísu:
29
Hugðak
þvá mér Þrúði
þremja
hlunns ór brunni
Óðins
elda lauðri
auðs
mína skör rauða
ok
hyrkneyfa hreifa
hönd
væri því bandi
báls
í benja éli
blóðrauð
vala slóðar.
Og
enn kvað hann:
30
Hugðak
geymi-Göndul
gunnelda
mér flada
of
rakskorinn reikar
rúf
dreyrugri húfu,
væri
hendr á henni
í
hjörregni þvegnar;
svá
vakði mik Sága
saums
ór mínum draumi.
Nú
gerðist svo mikið um drauma Gísla að hann gerir svo
myrkhræddan að hann þorir hvergi einn saman að vera og þegar
hann leggur sín augu saman þá sýnist honum hin sama kona. Það
var enn eina nótt að Gísli lét raunlítt í svefni. Auður spurði
hvað fyrir hann bæri.
"Það
dreymdi mig," segir Gísli, "að menn kæmu að oss og væri
Eyjólfur í för og margt annarra manna og hittumst vér og vissi
eg að áburðir urðu með oss. Einn þeirra fór fyrstur, grenjandi
mjög og þóttist eg höggva hann sundur í miðju og þótti mér
vera á honum vargs höfuð. Þá sóttu margir að mér; eg þóttist
hafa skjöldinn í hendi mér og verjast lengi."
Gísli
kvað þá vísu:
31
Vissak
fjandr at fundi,
fekk
innan lið minna,
ár
þótt eigi værak
andaðr,
at mér standa,
gætinn
vér, en væri
valtafn
í mun hrafni,
fríðr
í fögru blóði
faðmr
þínn roðinn mínu.
Og
enn kvað hann:
32
Máttut
skildi skaldi,
skjöldr
kom mér að haldi,
gátum
hug, við hneiti,
hjör
gellanda bella,
áðr
an mik þeirs mínu
munu
aldrlagi valda,
gnýr
var hjörs að heyra
hár,
ofrliði báru.
Og
enn kvað hann:
33
Sték
of einn, áðr ynni
árflognis
mik sáran,
hrælækjar
gafk hauki
huggendr,
munins tuggu;
sneið
at sínu ráði
sverðs
egg í tvau leggi,
missti
menja lestir,
mannsbót
var þat, fóta.
Nú
líður á haustið og minnkar ekki draumana og heldur er vaxandi
gangur að þeim. Það var eina nótt er Gísli lét enn illa í
svefni. Auður spurði þá enn hvað fyrir hann bæri. Gísli kvað
vísu:
34
Hugðak
blóð of báðar,
benvíðis,
mér síður,
þann
höfum vér at vinna
vílsinn,
ofan rinna;
slíkt
dreymir mik, seima,
sekt
emk við her nekkvat,
bíðum
brodda hríðar,
ber-Lofn,
es ek sofna.
Og
enn kvað hann vísu:
35
Hugðak
blóð of báðar,
baug-Hlín,
gnáar mínar
herðar
hvössu sverði
hrænets
regin setja
ok
valnæra væri,
Vár,
af miklu fári,
líkn
reynum svá, lauka,
lífs
vánir mér gránar.
Og
enn kvað hann:
36
Hugðak
hlífar flagða
hristendr
af mér kvista
stór
fingum ben, brynju
báðar
hendr með vendi;
enn
fyr mækis munni
minn
hugðak, Syn tvinna,
oss
gein hjörr of hjassa,
hjalmstofn
ofan klofna.
Og
enn kvað hann vísu:
37
Hugðak
Sjöfn í svefni
silfrbands
of mér standa
gerðr
hafði sú gerðu;
grátandi,
brá váta,
ok
eld-Njörun öldu
allskyndila
byndi,
hvat
hyggr mér, en mæra,
mín
sár, und því váru?
34. kafli
Nú
er Gísli heima það sumar og er nú kyrrt. Síðan kemur sumarnótt
síðasta. Þá er þess getið að Gísli mátti ekki sofa og ekki
þeirra þriggja. Veðri var þann veg farið að var á logn mikið;
hélufall var og mikið. Þá kveðst Gísli vilja fara frá húsum og
til fylgsnis síns suður undir kleifarnar og vita ef hann mætti
sofna. Nú fara þau öll og eru þær í kyrtlum og draga
kyrtlarnir döggslóðina. Gísli hafði kefli og reist á rúnir og
falla niður spænirnir.
Þau
koma til fylgsnisins. Hann leggst niður og vill vita ef hann
gæti sofið en þær vaka. Rennur á hann svefnhöfgi, og dreymir
hann að fuglar kæmi í húsið er læmingjar heita, þeir eru meiri
en rjúpkerar og létu illilega of höfðu volkast í roðru og
blóði.
Þá
spurði Auður hvað hann hafði dreymt. "Nú voru enn eigi
svefnfarir góðar."
Gísli
kvað vísu:
38
Mér
bar hljóm í heimi,
hör-Bil,
þás vit skilðumk,
skekkik
dverga drykkju,
dreyra
sals fyr eyru;
ok
hjörraddar hlýddi
heggr
rjúpkera tveggja,
koma
mun dals á drengi
dögg,
læmingja höggvi.
Og
er þetta er tíðinda heyra þau mannamál og er Eyjólfur þar
kominn við hinn fimmtánda mann og hafa áður komið til húss og
sjá döggslóðina sem vísað væri til. Og er þau verða vör við
mennina, ganga þau upp á kleifarnar þar sem vígi er best og
hefur hvor þeirra þusl í hendi mikla. Þeir Eyjólfur ganga að
neðan.
Hann
mælti þá við Gísla: "Hitt er nú ráð að fara eigi undan lengra
og láta þig eigi elta sem huglausa menn því að þú ert kallaður
fullhugi mikill. Hefur nú orðið langt funda á milli og það
mundum vér vilja að sjá væri hinn efsti."
Gísli
svarar: "Sæk þú að karlmannlega fyrir því að eg skal ekki
lengra undan fara. Er það og þín skylda mest að sækja fyrstur
að mér því að þú átt sakir við mig meiri en aðrir menn, þeir
sem hér eru í för."
"Eg
mun það ekki undir þér eiga," segir Eyjólfur, "að skipta liði
mínu sem mér líkar."
"Það
var og líkara," segir Gísli, "að grey þitt mundi eigi þora við
mig vopnum að skipta."
Eyjólfur
mælti þá til Njósnar-Helga: "Það væri nú frægð mikil, að þú
réðir fyrstur upp á kleifarnar að Gísla og mundi það ágæti
lengi upp vera.
"Oft
hef eg það reynt," segir Helgi, "að þú vilt aðra hafa fyrir
þér oftast þar er nokkur raun er að en fyrir því að þú eggjar
svo ákaflega þá skal eg til ráða en þú fylg mér drengilega og
gakk næst mér ef þú ert eigi með öllu blauður."
Helgi
ræður nú til þar sem honum þykir vænst og hefur í hendi öxi
mikla. Gísli var svo búinn að hann hafði í hendi öxi og gyrður
sverði og skjöld á hlið; hann var í kufli gráum og hafði gyrt
að sér með reipi. Nú skopar Helgi skeið og hleypur upp á
kleifarnar að Gísla. Hann snarar í móti Helga og reiðir upp
sverðið og rekur á lendarnar svo að í sundur tók manninn í
miðju og fellur sér hvor hluturinn ofan fyrir kleifarnar.
Eyjólfur komst upp annars staðar og kom þar Auður í móti honum
og lýstur á hönd honum með lurki svo að úr dró allt aflið úr
og hratar hann ofan aftur.
Þá
mælti Gísli: "Það vissi eg fyrir löngu að eg var vel kvæntur
en þó vissi eg eigi að eg væri svo vel kvæntur sem eg er. En
minna lið veittir þú mér nú en þú mundir vilja eða þú ætlaðir,
þó að tilræðið væri gott, því að eina leið mundu þeir nú hafa
farið báðir."
35. kafli
Þá
fara til tveir menn að halda þeim Auði og Guðríði og þykjast
þeir hafa ærið að vinna. Nú sækja tólf að Gísla og komast upp
á kleifarnar. En hann ver sig bæði með grjóti og vopnum svo að
því fylgdi mikil frægð.
Nú
hleypur að förunautur Eyjólfs einn og mælti til Gísla: "Legg
þú af við mig vopnin þau hin góðu er þú berð og allt saman og
Auði konu þína."
Gísli
svarar: "Tak þú þá við ódeiglega því að hvorugt samir, vopnin,
þau er eg hef átt, né svo konan."
Sjá
maður leggur til Gísla með spjóti. En Gísli heggur mót og
spjótið af skaftinu og verður höggið svo mikið að öxin hljóp í
helluna og brestur af hyrnan. Hann kastar þá öxinni en grípur
til sverðsins og vegur með því en hlífir sér með skildinum.
Þeir sækja nú að rösklega en hann verst vel og drengilega;
komu þeir nú hart saman. Gísli vó þá enn tvo menn og eru nú
fjórir látnir.
Eyjólfur
bað þá sækja að sem karlmannlegast, "fáum vér hart af," segir
Eyjólfur, "og væri það einskis vert ef góð yrðu
erfiðislaunin."
Og
er minnst er vonin vinst Gísli við og hleypur upp á hamar þann
er heitir Einhamar og af kleifunum. Þar snýst Gísli við og
verst. Þetta kom þeim að óvörum; þykir þeim nú mjög óhægjast
sitt mál, mennirnir dauðir fjórir en þeir sárir og móðir.
Verður nú hvíld á aðsókninni. Þá eggjar Eyjólfur menn sína
allfast og heitir þeim miklum fríðindum ef þeir næðu Gísla.
Eyjólfur hafði einvala lið með sér að hreysti og harðfengi.
36. kafli
Maður
er nefndur Sveinn er fyrstur réðst í móti Gísla. Gísli heggur
til hans og klýfur hann í herðar niður og fleygir honum ofan
fyrir hamarinn. Nú þykjast þeir eigi vita hvað staðar næmi
manndráp þessa manns.
Gísli
mælti þá til Eyjólfs: "Það mundi eg vilja að þau þrjú hundruð
silfurs er þú hefur tekið til höfuðs mér, skaltu hafa dýrast
keypt og það mundi eg vilja að þú gæfir til þess önnur þrjú
hundruð silfurs að við hefðum aldrei fundist og muntu taka
svívirðing fyrir mannskaða."
Nú
leita þeir sér ráðs og vilja eigi fyrir líf sitt frá hverfa.
Sækja þeir nú að honum tveggja vegna og fylgja þeir Eyjólfi
fremstir er annan heitir Þórir en annar Þórður, frændur
Eyjólfs; þeir voru hinir mestu garpar. Og er aðsóknin þá bæði
hörð og áköf og fá þeir nú komið á hann sárum nokkrum með
spjótalögum en hann verst með mikilli hreysti og drengskap. Og
fá þeir svo þungt af honum af grjóti og stórum höggum svo að
enginn var ósár, sá er að honum sótti, því að Gísli var eigi
missfengur í höggum. Nú sækja þeir Eyjólfur að fast og frændur
hans; þeir sáu að þar lá við sæmd þeirra og virðing. Leggja
þeir þá til hans með spjótum svo að út falla iðrin en hann
sveipar að sér iðrunum og skyrtunni og bindur að fyrir neðan
með reipinu.
Þá
mælti Gísli að þeir skyldu bíða lítt það, "munuð þér nú hafa
þau málalok sem þér vilduð."
Hann
kvað þá vísu:
39
Fals
hallar skal Fulla
fagrleit,
sús mik teitir,
rekkilát
at rökkum,
regns,
sínum vin fregna;
vel
hygg ek, þótt eggjar
ítrslegnar
mik bíti;
þá
gaf sínum sveini
sverðs
minn faðir herðu.
Sjá
er hin síðasta vísa Gísla. Og jafnskjótt er hann hafði kveðið
vísuna hleypur hann ofan af hamrinum og keyrir sverðið í höfuð
Þórði, frænda Eyjólfs, og klýfur hann allt til beltisstaðar
enda fellur Gísli á hann ofan og er þegar örendur. En þeir
voru allir mjög sárir förunautar Eyjólfs. Gísli lét líf sitt
með svo mörgum og stórum sárum að furða þótti í vera. Svo hafa
þeir sagt að hann hopaði aldrei og eigi sáu þeir að högg hans
væri minna hið síðasta en hið fyrsta.
Lýkur
þar nú ævi Gísla og er það alsagt að hann hefur hinn mesti
hreystimaður verið þó að hann væri eigi í öllum hlutum
gæfumaður.
Nú
draga þeir hann ofan og taka af honum sverðið, götva hann þar
í grjótinu og fara ofan til sjávar. Þá andaðist hinn sjötti
maður við sjó niðri. Eyjólfur bauð Auði að hún færi með honum
en hún vildi eigi.
Eftir
þetta fara þeir Eyjólfur heim í Otradal og andaðist þegar hina
sömu nótt hinn sjöundi maður en hinn átti liggur í sárum tólf
mánuði og fær bana. En aðrir verða heilir, þeir sem sárir
voru, og fengu þó óvirðing. Og er það alsagt að engin hafi hér
frægari vörn veitt verið af einum manni svo að menn viti með
sannindum.
37. kafli
Nú
fer Eyjólfur heiman við hinn tólfta mann suður til fundar við
Börk hinn digra og sagði honum þessi tíðindi og allan atburð.
Og
varð Börkur kátur við þetta og biður Þórdísi taka vel honum
Eyjólfi, "og mun þú ást þá hina miklu er þú unnir Þorgrími,
bróður mínum og ger vel við Eyjólf."
"Gráta
mun eg Gísla, bróður minn," segir Þórdís; "en mun eigi vel
fagnað Gísla bana ef grautur er ger og gefinn?"
Og
um kveldið er hún bar mat fram fellir hún niður spónatrogið.
Eyjólfur hafði lagt sverð það í milli stokks og fóta sér er
Gísli hafði átt. Þórdís kennir sverðið og er hún lýtur niður
eftir spónunum þreif hún meðalkaflann á sverðinu og leggur til
Eyjólfs og vildi leggja á honum miðjum. Gáði hún eigi að
hjalti horfði upp og nam við borðinu; hún lagði neðar en hún
hafði ætlað og kom í lærið og var það mikið sár. Börkur tekur
Þórdísi og snarar af henni sverðið. Þeir hlaupa upp allir og
hrinda fram borðunum og matnum. Börkur bauð Eyjólfi sjálfdæmi
fyrir þetta og gerði hann full manngjöld og kveðst gert mundu
meira ef Berki hefði verr í farið.
Þórdís
nefnir sér þá votta og segir skilið við Börk og kveðst eigi
skyldu koma síðan í sömu sæng hjá honum og það endi hún. Fór
hún þá að búa á Þórdísarstöðum út á Eyri. En Börkur er eftir
að Helgafelli, til þess er Snorri goði kom honum á brott og
fór Börkur þá að búa í Glerárskógum. En Eyjólfur fer heim og
unir illa við sína ferð.
38. kafli
Synir
Vésteins fara til gests, frænda síns, og skora á hann að hann
komi þeim utan með ráðum sínum og Gunnhildi, móður þeirra, og
Auði er Gísli hafði átt og Guðríði Ingjaldsdóttur og Eirmundi
bróður hennar. Fara þau öll utan í Hvítá, kom Gestur þeim utan
með fé sínu.
Þau
voru skamma stund úti og komu við Noreg.
Gengur
Bergur á stræti og vill kaupa þeim brúðarrúm í kaupangi og
tveir menn með honum. Þeir mæta tveim mönnum og var annar í
skarlatsklæðum, ungur maður og mikill vexti; sá spurði Berg að
nafni. Hann sagði til hið sanna um nafn sitt og kyn því að
hann ætlaði að hann mundi þess víðar koma a hann mundi njóta
föður síns en gjalda. En sá er í skarlatsklæðunum var brá
sverði og hjó Berg banahögg. Það var Ari Súrsson, bróðir Gísla
og Þorkels. Förunautar Bergs fóru til skips og sögðu tíðindin.
Stýrimaður kom þeim undan og tók Helga far til Grænlands.
Helgi kom þangað og þroskaðist þar og þótti hinn besti drengur
og voru menn sendir til höfuðs honum en þess varð eigi auðið.
helgi týndist í veiðiför og þótti það mikill skaði.
Þær
Auður og Gunnhildur fara til Danmerkur í Heiðabæ, tóku þær við
trú og gengu suður og komu eigi aftur.
Geirmundur
var eftir í Noregi og kvongaðist og varð vel að þroska.
Guðríður, systir hans, var manni gefin og þótti skýr kona og
eru margir menn frá henni komnir.
Ari
Súrsson fór til Íslands. Hann kom í Hvítá og seldi skipið en
keypti sér land að Hamri og bjó þar nokkra vetur. Víða hefur
hann búið á Mýrum og eru menn komnir frá honum.
Lúkum
vér hér Gísla sögu Súrssonar.